Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1986, Blaðsíða 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
ai
Það nýjasta
frá Jean-Paul
Gaultier
Jakkaföt, eru ekki lengur gjald-
geng ef þau eru með gamla laginu
- jakki og síðbuxur í einhverjum
óútreiknanlegum lit eða litleysi.
Sá frægi franski Jean-Paul Gaulti-
er sýnir nýtt form karlmannafata
og á meðfylgjandi myndum sjást
nokkur dæmi um verðandi tísku.
Pils og sokkabuxur koma nú í stað
síðbuxnanna og oft eru pilsin notuð
yíír þröngar buxur eða sokkabux-
ur.
Fatnaðinn á meðfylgjandi mynd
má kaupa á gjafverði, fyrsta sam-
stæðan kostar með kápu og öllu
tilheyrandi 52.920 krónur, jésúgall-
inn á næstu mynd fæst fyrir 35.280
- með krossinum - menn geta orðið
blúndutöffarar fyrir 52.92o og
röndótti gallinn leggur sig á heilar
32.340 krónur, hatturinn fylgir með
í kaupunum. Og þá er bara að drífa
í því að breyta ímyndinni, strákar-
eða hver vill ekki slá í gegn fyrir
himinhrópandi glæsileika?
Nú er betra að losa sig við gömlu jakkafötin sem allra fyrst ef fylgja á kröfum tiskunnar.
Augljós-
lega tíma-
ruglingur
í bók Jules Verne, Timavél-
inni, segir frá atburóum sem
verða þegar menn fara á milli
alda í sögunni og árekstrum
sem af því leiðir. Á þessari
mynd er engu líkara en eitt-
hvað slíkt hafi hent félagana
fjóra sem í vagninum sitja.
Byggingarnar að baki og far-
artækið eiga fátt sameiginlegt
í stílstefnu með hárprúðum
fjórmenningunum sem áttu
leið um Vínarborg á dögun-
um. Þeir vöktu óskipta athygli
vegfarenda og nutu þess
greinilega, alveg frá tám og
upp í efsta hárbrúsk.
Nýjasta nýtt í U.S.A er draumar-
gjöfín fyrir dallasaðdáendur, sæng-
urfatnaður með myndum af goðun-
um öllum með tölu. Ekki er vafi á
að góðir draumar hlotnast þeim
sem fíáfesta í slíkum yfirbreiðslum
og á meðfylgjandi myndum sjást
nokkur dæmi um framleiðsluna.
Hver samstæða kostar um 16.000
krónur og telst gjafverð miðað við
margt annað á markaðnum nafn-
tengt hinum dáðu stjörnum. Sagt
er að öll fíölskyldan þoli alla venju-
lega þvottameðferð ágætlega og því
eiga rúmfötin að endast og endast
- og endast...
DALLAS-
DRAUMAR
j
|