Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1986, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1986, Side 28
28 DV. ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986. Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós ai Það nýjasta frá Jean-Paul Gaultier Jakkaföt, eru ekki lengur gjald- geng ef þau eru með gamla laginu - jakki og síðbuxur í einhverjum óútreiknanlegum lit eða litleysi. Sá frægi franski Jean-Paul Gaulti- er sýnir nýtt form karlmannafata og á meðfylgjandi myndum sjást nokkur dæmi um verðandi tísku. Pils og sokkabuxur koma nú í stað síðbuxnanna og oft eru pilsin notuð yíír þröngar buxur eða sokkabux- ur. Fatnaðinn á meðfylgjandi mynd má kaupa á gjafverði, fyrsta sam- stæðan kostar með kápu og öllu tilheyrandi 52.920 krónur, jésúgall- inn á næstu mynd fæst fyrir 35.280 - með krossinum - menn geta orðið blúndutöffarar fyrir 52.92o og röndótti gallinn leggur sig á heilar 32.340 krónur, hatturinn fylgir með í kaupunum. Og þá er bara að drífa í því að breyta ímyndinni, strákar- eða hver vill ekki slá í gegn fyrir himinhrópandi glæsileika? Nú er betra að losa sig við gömlu jakkafötin sem allra fyrst ef fylgja á kröfum tiskunnar. Augljós- lega tíma- ruglingur í bók Jules Verne, Timavél- inni, segir frá atburóum sem verða þegar menn fara á milli alda í sögunni og árekstrum sem af því leiðir. Á þessari mynd er engu líkara en eitt- hvað slíkt hafi hent félagana fjóra sem í vagninum sitja. Byggingarnar að baki og far- artækið eiga fátt sameiginlegt í stílstefnu með hárprúðum fjórmenningunum sem áttu leið um Vínarborg á dögun- um. Þeir vöktu óskipta athygli vegfarenda og nutu þess greinilega, alveg frá tám og upp í efsta hárbrúsk. Nýjasta nýtt í U.S.A er draumar- gjöfín fyrir dallasaðdáendur, sæng- urfatnaður með myndum af goðun- um öllum með tölu. Ekki er vafi á að góðir draumar hlotnast þeim sem fíáfesta í slíkum yfirbreiðslum og á meðfylgjandi myndum sjást nokkur dæmi um framleiðsluna. Hver samstæða kostar um 16.000 krónur og telst gjafverð miðað við margt annað á markaðnum nafn- tengt hinum dáðu stjörnum. Sagt er að öll fíölskyldan þoli alla venju- lega þvottameðferð ágætlega og því eiga rúmfötin að endast og endast - og endast... DALLAS- DRAUMAR j |

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.