Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 10
10 DV. LAUGAEDAGUR 25. JANÚAR1986. Tónskóli ,w<v Emils Kennsliigreinar: :cvé. , • talmagnsorgel ftUv :aih.,pa ^vp\ö • blokkllauta * • hópttmai-ogelnkallmar Alllratdtírshópal' á«v= cAs'- s^e1 ua HUGMYNDA- Framkvæmdamenn og hugmyndasmiðir hittast Iðnaðarráðuneytiö hefur „ákveðið að gangast fyrir hugmyndastefnu ef næg þátttaka fæst. Fyrirhugað er að sýna á hugmyndastefnunni upp- finningar og framleiðsluhæfar hugmyndir, sem til- búnar eru til markaðsfærslu af hálfu höfunda. Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að miðla fram- leiðsluhugmyndum til þeirra sem hafa hug á að fram- leiða, fjármagna eða setja á markað nýjungar í iðn- aði en einnig er henni ætlað að veita upplýsingar um þjónustu og fyrirgreiðslu opinberra aðila við ný- sköpun í atvinnulífinu. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í hugmynda- stefnunni er bent á að snúa sértil Iðnaðarráðuneytis- ins er veitir allar nánari upplýsingar. Þátttökutilkynn- ingum ber að skila til Iðnaðarráðuneytisins fyrir 10. febrúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum sem fást í ráðuneytinu. Þátttökugjald verður auglýst síðar. IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ Franco hershöfðingi í líkkistunni. Nú vita sum börn á Spáni ekki hver þessi karl var. Ég reyndi að hlusta á Felipe Gonz- alez flytja ávarp í sjónvarpi á gaml- árskvöld. Þetta var stór stund fyrir Gonzalez og alla Spánverja að sögn hans og annarra stjómmálamanna því Spánn gekk í Efnahagsbandalag Evrópu þama á miðnætti. Það varð hins vegar að almennu samkomulagi milli þeirra Spánveija, sem í kringum mig vom, að slökkva á sjónvarpinu. Þetta var ekki í neinni vonsku út í Gonzalez eða Evrópu, fólkið þarna inni var hins vegar löngu gengið inn í Evrópu og þurfti engin orð um það lengur. Spánn hefur breysi meira á tíu árum en flest ef ekki öll lönd Evrópu. • Sumt er byltingu líkast. Hátindur þeirra breytinga, sem þjóðin hefur einsett sér að gera á högum sínum, var inngangan í Efnahagsbandalag- ið. Barátta fyrir þessari aðild var rekin af stjómmálalegum og menn- ingarlegum ekki síður en af efna- hagslegum ástæðum. Þetta er tákn- rænt ekki síður en raunvemlegt rof við aldir einangmnar. Um þessa stefnu er þjóðin sátt að kalla. andi fyrir breytingar á Spáni. Kyn- Hver var Franco? slóðaskiptin em þarna greinilegri en Einangmn Spánar á sér margra víðast, þetta er þjóðfélag ungs fólks. alda sögu og um sumt hefur þjóðin Það er eins og unga fólkið hafi her- aldrei að fullu tilheyrt Evrópu í tekið borgimar. Eg tók sérstaklega pólitískum og menningarlegum eftir þessu í Barcelona, þar sem ég skilningi vegna tengsla suður til hafði ekki komið í sex ár þar til núna arabaheimsms og tilhneiginga til um daginn. Þessi her af virðulegum einangrunar frá stórveldum Evrópu. gráum mönnum, sem áður gengu um Tengslin við arabaheiminn sjást á stræti að viðra hundana sína eða því að það var ekki fyrr en eftir þessi konumar sínar, er horfinn og í stað- áramót að Spánverjar viðurkenndu inn er kominn öllu litríkari her af ísrael og þá með því að skrifa upp á ungu fólki. Það merkilega við allt pappír hér í Haag í Hollandi að þetta unga fólk er yfirbragð þess og beiðni Efnahagsbandalagsins. Ein- öryggi. Þetta fólk ber sig eins og angmn Spánar náði hámarki sínu á skaparar eigin menningar. þessari öld og það kannski fyrir fáum árum. Þá hafði Vestur-Evrópa komið Minnimáttarkennd sér upp velferðarkerfi, lýðræði og Annars er Barcelona ein af þremur almennu ffelsi svo kynslóð manna eða íjórum glæsilegustu borgun álf- fannst þetta alltaf hafa verið svona. unnar. Hún er í flokki með París og Spánverjar sátu eftir með einræði, Madríd. Þetta er eins og leyndarmál staðnaða menningu og fjötrað mann- 0g þag verða flestir jafnhissa þegar líf. Það em ekki nema tíu ár síðan þeir koma þama fyrst. Við glæsi- Franco dó og konungsstjóm tók við leikann hefur nú bæst gróska í list- á Spáni. Nýleg athugun í bamaskól- um og tísku sem gerir borgina eina um landsins sýndi að böm landsins af hinum athyglisverðustu í Evrópu höfðu hinar margvíslegustu hug- umþessarmundir. myndir um Franco, sum töldu hann Það fyrsta sem ég tók eftir með hafa fundið Ameríku en önnur sögðu Spánverja, þegar ég fór að heim- hann fótboltahetju. sækja borgir landsins þar sem hjarta Þetta er ýkt mynd en þó einkenn- þjóðarinnar slær öllu greinilegar en Jón Ormur Halldórsson skrifar frá Haag á Costa del Sol, var þessi rembings- lega minnimáttarkennd sem gerði samtöl oft kúnstug og erfið. Ef menn höfðu fyrirvara við einhver tollamál gagnvart Efnahagsbandalaginu var það tekið eins og yfirlýsing um andúð á spánskri menningu og lítilsvirðing við sögu þjóðarinnar. Viðkvæmnin var ótrúleg, það var eins og menn væm alltaf á varðbergi og grunuðu okkur norðanmenn um fyrirlitningu á spænsku stjórnkerfi og menningu. Ég minnist þess að sitja á tali við valdamann í skrifstofu hans sem var innréttuð samkvæmt duttlungum Lúðvíks fjórtánda og hafði að geyma málverk sem dýrgripir hefðu víða þótt. Allt sem ég heyrði frá þessum manni var barnsleg minnimáttar- kennd gagnvart Vestur-Evrópu. Spennandi þjóðfélag Þetta hefur gerbreyst. Sjálfsörygg- ið er komið og rembingurinn því minni. I borgum landsins, í það minnsta, hefur skapandi og frjó kynslóð fólks tekið ráðin. Þetta er svolítið öðruvísi enn til sveita. Menn vona hins vegar að aðildin að Efnahagsbandalaginu muni breyta landbúnaði á Spáni í nútímalegn vem. Þar eru enn svæði sem eiga meiri andleg samskipti við liðnar aldir en Evrópu okkar daga. Það eru hins vegar önnur svæði á Spáni um sumt dauðari og dapurlegri en harðbýlar sveitir. Suður með ströndinni hefur byggst aragrúi af bæjum á borð við þá sem margir íslenskir ferðalangar hafa heimsótt á liðnum ámm. Það er heldur nötur- legt að þetta skuli sá Spánn sem flestir sjá, steindautt umhverfi sem þó er kallað líf. Sjálfur Spánn, utan þessara stranda, er um margt hvað mest spennandi þjóðfélag í Evrópu þessi árin. Þaðan munu vafalítið koma miklir straumar í listum og öðrum greinum menningar á næstu árum. Vandamál á efnahagssviðinu eru hins vegar gífurleg, fimmti hver maður er atvinnulaus og enginn veit enn hvort iðnaður landsins mun blómstra eða deyja við inngöngu í Efnahagsbandalagið. Ennþá er fjöl- mennur hópur Spánveija tortrygg- inn í garð lýðræðis og frjálslyndis og öfgahópar til hægri og vinstri hafa ekki skirrst við morð á síðustu árum. Úr þessum hrærigraut er hins vegar nokkurs að vænta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.