Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 13
DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986. 13 Er Jakob Magnússon með eitthvað i pokahorninu? Valgeir Guðjónsson sendi inn tvö lög; samkvæmt óstaðfestum fregnum. Axef Einarsson, höfundur hjálparlagsins, stefnir á Bergen 3. maí. Jóhann G. Jóhannsson langar líka til Noregs. HEIMSFRÆGÐ A NÆSIA HORNI? - skilafresturinn í Eurovision útrunninn „Þetta er eins og að fara í 3-bíó. Annaðhvort setur maður sig í ókveðnar stellingar og semur lagið eða sleppir því,“ sagði Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður, að- spurður hvort hann hefði sent lag í söngvakeppni sjónvarpsstöðva, Eurovision. I sama streng tók fé- lagi hans, Jóhann Helgason..það er dálítið erfitt að semja beint fyrir þessa keppni. Eins og stendur er ég ekki með neitt heppilegt lag en ég reyni kannski að hrista eitt fram úr erminni fyrir morgundaginn. Atlirmeö? Þetta sagði Jóhann Helgason fyrir tveim dögum. í dag rann hins vegar út fresturinn til að skila inn lögum fyrir söngvakeppnina; þá fyrstu er íslendingar taka þátt í. „Ég held að langflestir í bransan- um taki þátt í þessu,“ sagði Axel Einarsson, höfundur hjálparlags- ins, sem selst hefur í tæplega 17.000 eintökum, en Axel sendi lag í söngvakeppnina. Gott ef ekki fleiri en eitt. Það sama má segja um félaga hans, Jóhann G. Jóhanns- son. Hann er líka með í slagnum. Tilgangur Eurovision, söngva- keppni sjónvarpsstöðva, er að örva samningu vandaðra dægurlaga með samkeppni og alþjóðlegum samanburði. Hér á landi verða valin 10 lög, þau útsett, hljóðrituð og kynnt, bæði í sjónvarpi og út- varpi, og síðan verður besta lagið valið af sérstakri dómnefnd í beinni sjónvarpsútsendingu 15. mars næstkomandi. Sigurlagið verður svo flutt í sjálfri Eurovision-keppn- inni í Bergen í Noregi 3. maí í vor. Frjálst framhald Ef Islendingar sigra í keppninni í Bergen er höfundi og flytjanda lagsins í sjálfsvald sett hvernig þeir haga framhaldinu. Væntan- lega blasir þá við frægð og frami enda er talið að 600 milljónir manna fylgist með Eurovision- keppninni í beinni útsendingu. Fullvíst er talið að Magnús Eir- íksson hafi sent lag, eitt eða fleiri, í keppnina en hins vegar óvíst með Stuðmenn. „Það hefur verið svo mikið að gera hjá okkur að við höfum ekki haft tíma til að hugsa þessa hugsun til enda,“ sagði Jakob Magnússon nokkrum klukkustundum áður en skilafresturinn rann út. „En það er aldrei að vita hvað maður dregur upp úr pokahorninu. Þessi keppni er reyndar hið besta mál fyrir alla.“ Fógetinn passar Valgeir Guðjónsson, einn þeirra Stuðmanna, mun að öllum líkind- um hafa sent inn tvö lög þó það hafi ekki fengist staðfest. Nafn- leyndin er í hávegum höfð og mun sjálfur fógetinn sjá til þess að umslög með nöfnum dægurlagahöf- undanna verði ekki rofin fyrr en á úrslitastundu, í beinni útsendingu í undanúrslitum i sjónvarpssal 15. mars. -EIR IÐNAÐARHÚSNÆÐI 60-80 m3 iðnaðarhúsnæði óskasttil leigu. Upplýsingar í síma 36288 og 3881 5 eftir kl. 18.00. ATHUGIÐ! ATHUGIÐ! UMSJÓNARMENN OG EIGENDUR FROSK- OG REYKKÖFUNARTÆKJA. Reglulegt eftirlit með útbúnaði frosk- og reykkafara er öryggismál. Við bjóðum upp á sérhæfða og viður- kennda þjónustu sem vert er að kynna sér. Yfirförum og stillum frosk- og reykköfunartæki. Þrýstireynum og speglum lofthylki. Hlöðum lofthylki. Útvegum varahluti í flestar gerðir tækja. Lítið inn og fáið ráðleggingar um viðhald og notkun búnaðarins ykkur að kostnaðarlausu. FLJÓT OG GÓÐ ÞJÓNUSTA. PRÓFUN HF. Fiskislóð 1 19 B 121 Reykjavík P O. Box 1406 Sími: 91-26085 SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ RX-7 sportbíll árg. ’80, ekinn 37 þús. Verfl 450 þús. s—*—i {.Kttrnauj 323 station árg. ’80, ekinn 86 þús. Verð190þús. AKSTUW AKSTUR 323 3 dyra Hatchback árg. '78, ekinn 74 þús. Verð 140 þús. 626 2 dyra HT árg. '79, ekinn 95 þús. Verfl 210 þús. RtfYbSSLU AKSTUR AKSTUR 323 1300 Saloon árg. '81, ekinn 55 þús. Verð 240 þús. 929 LTD 4 dyra m. öllu árg. ’82, ekinn 42 þús. Verfl 420 þús. 929 station m. vökvast. árg. ’82, ekinn 38 þús. Verð 390 þús. 323 1500 5 dyra Hatchb. árg. ’81, ekinn 71 þús. Verð 240 þús. 929 LTD 2 dyra HT m. öllu árg. '82, ekinn 23 þús. Verð 450 þús. Fjöldi annarra bíla á staðnum. 626 2000 4 dyra árg. '82, ekinn 56 þús. Verð 310 þús. OPIÐ LAUGARDAGA FRÁ KL.10-4. BILABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.