Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Qupperneq 18
18 DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986. LIFANDI DAUÐ AÐ BÚAÍ RE YKJAVÍK Björn á Löngumýri aftur fluttur í sveitina eftir 3 ár í höfuðborginni „Mér leiddist í Reykjavík. Það er lifandi dauði að búa þar. Svo verður maður slæmur í hnjánum af að ganga á malbikinu, það er ekki hollt að ganga á steini. Það vita hestamir. Héma geng ég hins vegar á grasi og er allt annar maður. Ég held að fólki líði ekki vel í Reykjavík.“ Leiðinlegt Reykja viku rævintýri Bjöm á Löngumýri er fluttur aftur í sveitina eftir þriggja ára búsetu í höfuðborginni. Hann er kominn á níræðisaldur, verður 81 árs í næsta mánuði og heitir ekki lengur Bjöm á Löngumýri heldur Bjöm Pálsson i Vesturhlíð. Vesturhlíð er jörð í 7 kílómetra fjarlægð frá Löngumýri og þar hefur Bjöm hafið búskap á nýjan leik eftir Reykjavíkurævintýrið sem fór svo mjög í taugarnar á honum. „Ég ætlaði að hugsa og fást við skriftir í Reykjavík, birti reyndar þrjár greinar í Morgunblaðinu um efnahags- og bankamál og svo ekki meira. Það er gott að vera kominn aftur í sveitina, það finnst bæði mér og konunni. Ég er byrjandi, bý ekki stórt, aðallega mér til heilsubótar og hressingar. í Vesturhlíð eru góð ræktunarskilyrði, fallegt bæjarstæði og ég er búinn að girða allt landið. Kannski byggi ég mér einhvern tíma íbúðarhús þama, langar reyndar til þess áður en ég verð of gamall." Ekkert heimili án hunds Eins og stendur býr Bjöm í Vestur- hlíð í íbúðarhúsi á Löngumýri þar sem sonur hans bjó áður: „Strákurinn vildi græða meira og fór þess vegna að vinna í Búnaðar- bankanum í Reykjavík. Hann hefur meira gaman af því að mkka aðra en að láta rukka sig. Vonandi kemur hann aftur, þá flytur hann hér inn og ég byggi mér í Vesturhlíð." - Saknarðu einskis í Reykjavík? „Jú, Landsbókasafnsins. Það var gott að koma þangað og ná sér í fróðleik. En skemmtilegra var að koma aftur í sveitina og hitta gamla hundinn minn. Hann var orðinn óttalegt skar, hafði saknað okkar og svo fékk ég mér nýjan hvolp. Það er ekkert heimili án hunds.“ Björn í Vesturhlíð hlakkar til vors- ins, „...nú fer dag að lengja og þá verður svo fallegt héma, fitan rennur af manni og heilsan batnar. Ég er sannfærður um að fólki líði betur úti á landsbyggðinni en í Reykjavík; hins vegar halda margir að þeim hljóti að líða betur í þéttbýli. Þetta er eins og með skepnumar sem rása út um allt í leit að betri haga en enda svo á sama stað. Ég held að efnahagur manna í Reykjavík sé almennt ekki betri en fólks úti á landi. Það er einn og einn braskari sem hefur það gott í höfuðborginni." Ráðherrasótt á þingi - En nú streymir fólkið í bæinn? „Já, þessi flótti er ekki góður. Það vantar eldsálir á marga staði úti á landi. Eldhuga sem stjóma, blása kjarki og bjartsýni í brjóst íbúanna, fá þá til að trúa á lífið og vinna. Það vantar starfsamar, hagsýnar og dug- legar eldsálir víða.“ - Eru ráðherramir okkar duglegar eldsálir? „Menn halda að þeir séu valdir ráðherrar vegna þess að þeir hafi vit á hlutunum en því er oft öfugt farið. Menn eru yfirleitt gerðir að ráð- herrum vegna þess að þeir hafa ekkert vit á hlutunum. í ráðherra- dómi er það þægðin sem skiptir máli. Annars er mikil ráðherrasótt ríkj- andi í þinginu. Sérstaklega á þetta við um Reykjavíkurmennina. Menn úti á landi sem standa í atvinnu- rekstri hafa ekki tíma til að verða ráðherrar og eru því ekki haldnir þessari sótt. Það er oft gaman að fylgjast með þingmönnum þegar búið er að gera þá að ráðherrum. Fyrst er mikill ánægjusvipur á þeim, svo fer brúnin að þyngjast og þegar þeir em látnir hætta þá verða þeir óham- ingjusamir." Steingrímur þykist vita allt - Hringja framsóknarmenn aldrei í þig til að leita ráða? - Aldrei! Stundum hringi ég sjálfur í Steingrím en þá hefur hann orðið allan tímann. Steingrímur þykist vita þetta allt. - Er hann líkur pabba sínum? „Nei, þeir eru ekki mjög líkir.“ - Eruð þið Jón Helgason vinir? „Jón Helgason á enga óvini, hann elskar friðinn. Kannski á hann ein- hveija vini en hann er ekki bardaga- maður.“ - Hvemig líst þér á Þorstein Páls- son? „Ég þekki ekki nýja fjármálaráð- herrann og vil ekki vera að fella dóma yfir mönnum sem ég þekki ekki. Þorsteinn var kosinn formaður án þess að hafa pólitíska reynslu og menn geta fengið snert af mikil- mennskubrjálæði þegar þeir komast snöggt til valda. Vonandi kemur það ekki að sök í þessu tilfelli. Annars ruglaði Þorsteinn saman útflutn- ingstekjum og þjóðartekjum um daginn. Það var dálítið meinlegt." Forríkarkerlingar- tóm vitleysa! - Sverrir Hermannsson? „Ég held það væri ráð að láta Sverri Hermannsson fara á milli ráðuneyta og taka til. Hann hefur gert margt gott enda gamall sjómað- ur sem kann að stíga ölduna. Hann hristi upp í þeim hjá RARIK og nú er það Lánasjóðurinn. Það má svo sem vel vera að hann hafi farið of geyst þar og rekið einhvem i bráð- ræði en það stendur eftir að það er ekkert vit í þessum menntamálum lengur. Það er allt of mikið af menntamönnum og hvaða vit er til dæmis í því að verið sé að lána forrík- um kerlingum peninga svo þær geti lært það sem þeim dettur í hug. Þetta ertóm vitleysa." Skóli og lífsleiði Ekki þykir Birni í Vesturhlíð grunnskólalögin gáfulegri. Lögin sem Ólaíúr Jóhannesson leyfði Magnúsi Torfa að hafa í gegn vegna þess að Ólafi þótti svo vænt um Magnús og Magnúsi svo vænt um hugmyndirnar sem síðar urðu að lögum. Eða svo segir Bjöm í Vestur- hlíð: „Það er neikvætt að þvinga fólk með lagaboði til að sitja of lengi í skóla. Sumir hafa nefnilega hvorki áhuga né getu til að stunda nám og af því getur sprottið minnimáttar- kennd, vanlíðan og jafnvel lífsleiði. Það er að sjálfsögðu voða gott að leyfa öllum að læra og ferðast um heiminn og það er líka gott að búa vel að öldruðum. En það em takmörk fyrir því á hverju við höfum efni. Sjálfur fékk ég leið á því að vera á flakki...“ Umhverfis jörðina - Hefurðu farið til útlanda? „Ég fór í kringum jörðina um tví- tugt; sendur af SÍS til að kynna mér frystingu kjöts á Nýja-Sjálandi. Það var gaman að koma til Indlands, Egyptalands og Kína. Ég sá bæði indíána og svertingja en þegar ég kom aftur til Evrópu nennti ég varla að líta í kringum mig. Mér fannst allt vera eins.“ í Húnavatnssýslunni líður Bimi í Vesturhlíð hins vegar vel; segir sveitafólk margfalt sælla en bæjar- búa: Lungnabólga og blóðtappi „Undirstaðan er að sjálfsögðu gott fæði. Ég hef lifað á kjöti og mjólk og aldrei orðið misdægurt. Ég borða kjöt á hveijum degi, stundum tvisvar á dag. Þetta með að fitan í kjötinu sé óholl er tómt kjaftæði og vitleysa. Hér áður fyrr dóu bændur úr lungna- bólgu en ekki blóðtappa. Sjálfur fæ ég ekki blóðtappa á meðan ég stend í málaferlum." - Við hverja ertu nú að kljást fyrir dómstólum? „Ég er með tvö dómsmál í gangi núna. Eitt er gegn manni sem reyndi að stela af mér hlutabréfum, annar reyndi að stela af mér hrossum...“ - En áfram með mataræðið? „Ég lít á fisk sem snarl og tóbak reykti ég í 40 ár, byijaði fertugur vegna þess að ég var með tannpínu og hætti þegar ég var áttræður. 10 þúsund krónur í NT - Og brennivín? „Ég er svo til alveg hættur að bragða það vegna þess að mér líður ekki nógu vel daginn eftir. Hins vegar held ég að fólk hafi aldrei haft það betra á Islandi en einmitt í dag; hvorki gamalt fólk né ungt...“ - En fylgið hrynur af Framsóknar- flokknum? „Já, Framsóknarflokkurinn er búinn að vera lengi í stjórn en hefur ekki ráðið einn. -NT? „Ég setti 10 þúsund krónur í það fyrirtæki; tímdi ekki að gefa þeim meira enda bjóst ég aldrei við að fá neinn arð af þessu fé. Það kom líka á daginn að þeir eyddu öllum pening- unum í blóm á ritsjómina og fóru með allt til andskotans. Framsóknar- menn kunna ekki að reka dagblað og nú er Kristinn Finnbogason kominn aftur. Ef ekki er hægt að reka Tímann Kiddalausan þá verður bara að hafa Kidda. Ég hef oft sagt við þessa Tímamenn að þeir ættu að fara yfir til Sveins Eyjólfssonar á Dagblaðinu og læra að reka dagblað af honum. Sjálfur hef ég verið að hugsa um að fara suður og halda blaðamannafund um hvemig reka eigi blað. Verðbólga og prestar - En hvað myndi Bjöm í Vesturhlíð gera ef hann fengi að ráða öllu hér á landi? „Ráðast á verðbólguna, rífa hana upp eins og njóla en til þess verða menn að skilja eðli verðbólgunnar..." Nú fylgir tveggja stunda fyrirlestur um verðbólgu og vexti þama í stáss- stofunni á Löngumýri og ræðan endar á því að ef menn ætli að reikna dæmi þá verði þeir að skilja dæmið. Það sé íslenskum stjómmálamönn- um ekki gefið, „...það hlýtur að vera ömurlegt að vera prestur. Þeir em alltaf að tala um eitthvað sem þeir vita ekkert um. Sjálfur gæti ég ekki verið embættismaður. Ef ég fengi að lifa upp á nýtt þá færi ég í búskap og útgerð, það er svo skemmtilegt." Bjöm á Löngumýri er ekki viss um að hann skrái endurminningar sínar í Vesturhlíð. Hann byijaði reyndar á ævisögunni fyrir tveimur árum, skráði niður eitt og annað um upp- vaxtarárin en hætti svo. „Það em margir sem hafa yiljað skrifa ævi- sögu mína. Jónas Ámason var alltaf að djöflast í mér en hann vildi bara láta mig tala og svo ætlaði hann að skrifa. Ég vil skrifa mína ævisögu sjálfur." Lítið en snoturt Bjöm í Vesturhlíð er alsæll að vera kominn í Húnavatnssýsluna aftur og sloppinn af gangstéttunum í Reykja- vík sem fara svo illa með liðamótin, sérstaklega hnén. Það er svo gott að ganga á grasinu í sveitinni og ágætt að stunda búskap ef maður skuldar ekkert. Aðrir ráða ekki við neitt. Við bændur og stjómmálamenn segir hann: „Það á að búa lítið en snoturt. “ -EIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.