Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Síða 31
DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986.
31
Hún vildi ekki láta mynda skíðin og gamla gormabúnaðinn. „Þau eru búin að vera i geymslu í 25 ár,“ sagði
Guðbjörg Sigurðardóttir en lét þó til leiðast. Það var á ísafirði sem hún renndi sér síðast á skíðunum, fór
alveg upp á topp og komst alla leið niður; standandi. í dag er hún 71 árs.
Það sem Guðbjörg vissi ekki, og veit ef til vill ekki ennþá, er að skiðin hennar eru komin í tísku aftur.
Skíðafólk um víða veröld streymir nú í verslanir og reynir að verða sér úti um Telemark-skíði með gorma-
bindingum og lausum hæl. Það er nefnilega allt annað mál að renna sér á slíkum skíðum. Eftir áratugaút-
legð eru þau komin i tísku aftur.
Skíðamenn segja það sérstaka list að renna sér í svigi á Telemark-skíðunum. Lausi hællinn gegnir þar
veigamiklu hlutverki og gamaldags skíðaskór kosta nú álíka mikið og nýtísku plasthólkar með spennum.
Nú ætti Guðbjörg að vita betur og getur óhrædd rennt sér á Miklatúni -með finasta útbúnaðinn á svæðinu.
-EIR DV-mynd GVA.
jll^ndhanila^^uat
Mmetime
Pantanir í síma
671613
Á myndband eru komnar nýjar
TOPP-MYNDIR,
framleiddar 1985. Þetta eru myndir sem kvikmyndahúsin hafa
ekki ennþá fengið.
I
TÍSKU
Eigum til afgreiðslu nú þegar mikið úrval
notaðra rafmagns- og dísillyftara, enn-
fremur snúninga- og hliðarfærslur.
Tökum lyftara upp í uppgerðan, leigjum
lyftara. Flytjum lyftara, varahluta- og við-
gerðaþjónusta.
Líttu inn - við gerum þér tilboð.
Tökum lyftara í umboðssölu.
LYFTARASALAN HF.,
Vitastig 3, simar 26455 og 12452.
J
FLUGSKÓLINN FLUGTAK
Bóklegt einkaflugmannsnámskeið hefst
í janúar.
Væntanlegir nemendur^
hafi samband við ÆLl/Œ/jtl/C
skólann í síma 28122. reykjavíkurflugvelli
Gam/a flugturninum, Reykjavikurflugvelli. Sími28122.
Um áramótin tóku ný útvarpslög gildi. Einkaréttur
Ríkisútvarpsins verður afnuminn og aðrir aðilar munu
fá tímabundið leyfi til útvarps fyrir afmörkuð svæði.
Ríkisútvarpið væntir þess að nýjar útvarpsstöðvar
veiti holla samkeppni og kosti jafnan kapps um að hafa
margþætt og vandað efni í dagskrám sínum, sem
stuðli að aukinni fjölbreytni í útvarpsmálum lands-
manna.
Þeim, sem hyggja nú á útvarpsrekstur, skal bent á,
að í 16. gr. nýrra útvarpslaga er svofellt ákvæði:
„Heimilt er Ríkisútvatpinu að ieigja öðrum
aðilum afnot af tækjabúnaði sínum til
útsendingar.“
I dreifikerfi Ríkisútvarpsins, sem nær um land allt,
felast nokkrir nýtingarmöguleikar sem gætu komið
öðrum aðilum að gagni.
Ríkisútvarpið vill hér með vekja athygli á þessu
ákvæði útvarpslaganna og er, eftir því sem aðstæður
leyfa, reiðubúið að fylgja því eftir, þegar í Ijós kemur
hver áhugi er á samstarfi og hverjar þarfir annarra eru
fyrir leiguafnot af útsendingarbúnaði Ríkisútvarpsins.
Tekið skal fram, að þetta á aðeins við um útsendingu
efnis en ekki dagskrárgerð.
Þeir sem áhuga hafa á könnun þessa máls sendi
skriflegar umsóknir til skrifstofu útvarpsstjóra, Ríkis-
útvarpinu, pósthólf 120, Skúlagötu 4, Reykjavík fyrir
10. febrúar 1986.
RÍKISÚTVARPIÐ
UTVARP
ALLRA
LANDS-
MANNA