Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Síða 10
10
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986.
Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd
Haiti og voodoo
Duvalier-ættin var ekki sú eina,
sem réð ríkjum á Haiti. Voodoo-
andar „nöðrunnar og regnbogans",
kukl, sem rekja má allt til þess að
fyrstu blökkuþrælar höfðu við-
komu á Haiti á leið frá hinni svörtu
álfu til vesturheims, er veldi sem
jafnan hefur þurft að reikna fast-
lega með á Haiti.
Því gerði einmitt Francois „Papa
Doc“ Duvalier, fyrrum einvaldur á
Haiti, sér fulla grein fyrir. Hann
sótti sér því nokkurn stuðning til
þess samfélagshlutans sem kennd-
ur er við voodoo-kuklið. - Sonur
hans, Jean-Claude „Baby Doc“
Duvalier, hafði aldrei lag á að færa
sér þau ítök föðursins í nyt.
Papa Doc dró úr áhrifum
múlattanna
Eða svo segir einn örfárra sér-
fræðinga í leyndarmálum voodoo-
kuklsins, maður að nafni Wade
Davis, þjóðgrasafræðingur frá
Harvard-skóla. Hann segist hafa
mætt augliti til auglitis zombie-um,
hinum frægu dauðadágenglum sem
flestar draugasögur á Haiti snúast
um. Davis hefur skrifað bók um
athuganir sínar á þessu galdrak-
ukli Haitimanna.
Bókin, sem ber titilinn „Naðran
og regnboginn", kom út nokkrum
vikum áður en mótmælaaldan reið
yfír Haiti og „Baby Doc“ Duvalier
forseti „til lífstíðar“ neyddist til að
flýja land. - Þar sem bókin er meir
frásögn af athugun á þjóðháttum
og þjóðmenningu heldur en könn-
un á stjórnmálaástandi, þá hefur
bókarhöfundur sniðgengið stjórn-
arhættina og harðstjórn Duvaliers.
Wade Davis er meðal þeirra sem
fréttamenn hafa tekið tali í kjölfar
umbrotanna á Haiti í leit að skýr-
ingum á umrótinu. Hann segir að
„Papa Doc“, sem í reyndinni var
læknir, hafi - þegar hann tók við
völdum 1957 eftir Paul Magloire
hershöfðingja - reynt að draga úr
valdaáhrifum múlattanna á eynni
og hafi mjög stigið í vænginn við
frammámanneskjur í voodoo-
menningunni. Þótt „Papa Doc“
hafi síðasta valdaár sitt keppst við
að treysta grunninn fyrir valda-
töku sonarins og séð til þess að
hann yrði einnig gerður að „forseta
til lífstíðar", þá hafði nítján ára
Kuml úr fjöldagröf sem fundist hefur utan við Port-au-Prince og er talin
hafa verið leynigrafreitur Tonton Macoute (draugamannanna), hinnar
ægilegu leyniiögreglu sem Duvalierarnir byggðu valdatök sín á.
unglingurinn ekki ítök föðurins
meðal hins frumstæða íbúahluta.
Þar á ofan styggði hann ýmsa af
bakherjum „Papa Doc“ með því að
kvænast múlattastúlku, Michele
að nafni.
„I ýmsu tilliti var það hjónaband
tákn fyrir sættir milli múlattanna
og hinnar nýrri valdaklíku Duvali-
ers. En um leið voru fólgin í því
svik við fyrri samfélagsskiptingu,“
segir Davis. „Eftir það má segja,
að hvert árið í valdatíð „Baby
Docs“ hafi verið keyptur frestur.“
Hitti zombia í eigin persónu
Fyrra grúsk Wade Davis hefur
teymt hann til Amazon í Suður-
Ameríku og Andesfjalla. Sömuleið-
is skógaróbyggðirnar í Norður-
Kanada. Ekkert af því gat samt
búið hann undir verkefnið, sem
hann tók sér fyrir hendur fyrir
nokkrum árum. Nefnilega að
rannsaka hvað hæft væri í frásögn-
um af því að læknar á Haiti hefðu
fundið tvo ósvikna zombía.
Mannfræðingar og Davis nota
orðið „voudoun" yfir andakuklið
og taka það fram yfir „voodoo",
eftir að Hollywood hefur klæmst á
því í gegnum árin með í huga
vaxbrúður gegnumstungnar prjón-
um. Davis kallar þetta hin „litríku
trúarbrögð Haiti þjóðahátta“. - í
eldra viðtali, sem birtist þegar bók
hans kom út, lýsti Davis ferðum
sínum um Haiti þvert og endilangt
í fjögur ár, heimsóknum sínum til
„Hounfour" (voodoo-hofanna), þar
sem Haitibúar dönsuðu fyrir and-
ana, haldnir öndum sjálfir. Upp-
hafspunktur hans var ævi, dauði
og seinni ævi manns sem hét Cla-
irvius Narcisse, að því er Davis
segir sjálfur frá.
Árið 1962 undirritaði bandarísk-
ur læknir við sjúkrahús eitt á Haiti
dánarvottorð Narcisse þessa, sem
var blökkumaður. En átján árum
síðar var gengið fram á gamla
manninn þar sem hann viðutan
ráfaði um dreifbýlið. Narcisse
kunni frá því að segja að hann
hefði verið særður upp úr gröf
sinni, barinn og sljóvgaður með
lyfjum og þrælkaður. Ör, sem hann
bar á kinninni, sagðist hann hafa
fengið af einum líkkistunaglanum.
James Bond-eitur á Haiti
Erindi Davis í „framlínu dauð-
ans“, eins og hann kallaði það, var
að komast yfir og sundurgreina
f U /
Faðir og sonur þegar allt lék i lyndi enda hafði faðirinn, „Papa Doc“ lag
á að halda góðum samböndum við voodoo-menningu Haiti og hélt fyrri
valdastétt, múlöttunum, í skefjum. - „Baby Doc“ braut af sér þegar hann
kvæntist Michele, múlattastúlku.
zombía-eitur. Það sóttist honunm
lygilega létt og tók aðeins fáar
vikur. - Sumt af því samsulli var
svo sem nógu alvanaleg efni og
auðfinnanleg í hverjum grafreit.
Annað voru froskar, ormar og hita-
beltisplöntur. En lykilefnið, sem
fannst við efnagreiningar á rann-
sóknarstofum, kom úr hinum ban-
eitraða blöðrufiski eða blásturs-
físki.
Blöðrufiskur er ekki óþekkt eit-
ur. Höfundur James Bond gerði
það heiminum kunnugt þegar hann
kom 007 milli heims og helju af
einum dropa þessa eiturs sem roðið
hafði verið á lítið hnífsblað. - Vitað
er að Japanir kunna að tiireiða
biöðrufiskinn svo að þeir geti notið
hans sem hnossgætis. Elia væri
hætt við slysum.
„í Japan er fórnarlamb blöðru-
fiskseitrunar einfalt slysatilvik,"
segir Davis. „Á Haiti var fórnar-
iambið kallað zombie. Mig langaði
að vita hvers vegna.“
Hann komst að raun um að
blöðrufiskeitrun var oft banvæn.
En í einhverjum tilvikum var það
bara svo að hún „virtist" banvæn.
Eitrunin veldur lömun og hægir
svo á efnaskiptum líkamans að
fómardýrið virðist tæknilega séð
steindautt.
Vann sér traust særingar-
meistaranna
Svo virðist sem Narcisse hafi
orðið fyrir eitrun. Hann veiktist
og „dó“. Var hann jarðsettur lif-
andi en síðan vakinn upp úr gröf
sinni með voodoo-kukli, á honum
lumbrað rækilega og honum byriað
lyf úr jurt sem á Haiti er kölluð
„gúrka zombianna“. - Kuklathöfn-
inni lauk með því að Narcisse var
rúinn því sem kalla mætti sjálf-
stæðan eigin vilja.
Með því að vinna sér traust „ho-
ungan“ og „bokor", sem eru voudo-
un-prestar og særingameistarar, þá
leyfðist Davis að vera viðstaddur
ýmsar leyniathafnir þeirra. Af þeim
skildist honum að innan „voudo-
un“ væri ekkert tilviljunum háð,
engin slys. - „Bokor" deilir ekki
út eitri af handahófi. Þegar einhver
er gerður að zombia þá er það
útdeiling refsingar, rétt eins og
dauðarefsingin í annarri siðmenn-
ingu, og kemur því aðeins til fram-
kvæmdar að voodoo-söfnuðurinn
hafi lagt yfir það blessun sína.
Narcisse hafði dregist inn í fjöl-
skyiduværingar, landaerjur og
hafði í augum særingarmeistar-
anna verðskuldað zombia-örlög
sín. - „Víst er það ófagurt," segir
Davis. „En það er dauðarefsingin
einnig."
Forsetakosningar í Portugal á sunnudag:
AMARAL^SoaREs?
Frá vinstri: Mario Soares, fyrrum forsætisráðherra og gamalkunnur leiðtogi sósíalista, og
Freitas Do Amaral, frambjóðandi hægrimanna í forsetakosningunum á sunnudag. Báðir ætla
frambjóðendurnir að berjast fyrir auknu jafnvægi í þjóðarbúskap Portúgal á kjörtímabili sínu,
en þá greinir á um leiðirnar.
Portúgalir ganga að kjörborðinu á sunnu-
dag og kjósa sér forseta, fyrsta forseta lands-
ins sem kosinn er úr röðum almennra borgara
í 60 ár.
Forkosningar fóru fram í lok janúar síðast-
liðinn um hvaða tvo frambjóðendur skyldi
kjósa á sunnudag. Hægrimaðurinn Diogo
Freitas Do Amaral og gamalkunnur leiðtogi
sósíalista, Mario Soares, sigruðu í forkosn-
ingunum með nokkrum yfirburðum, unnu
auðvelda sigra á tveim róttækum frambjóð-
endum vinstrimanna.
Afnám kreppu og stjórnmálaóvissu
Amaral og Soares boða báðir aukið j afnvægi
og minnkandi sveiflur í þjóðarbúskap Portú-
gala á næstu árum í kosningaboðskap sínum
en þá greinir á um leiðimar.
Báðir frambjóðendur eru sammála um
mikilvægi þess fyrir Portúgal að ná sér upp
úr lægð efnahagskreppu og stjómmálaóvissu
er einkennt hefur daglegt líf í landinu í þau
tólf ár sem liðin em frá því lýðræði var endur-
reist árið 1974.
Forseti Portúgal hefur takmarkað valdsvið
samkvæmt stjómarskránni en getur þó haft
töluverð áhrif.
Fyrsti óbreytti borgarinn forseti í 60 ár
Forsetinn getur meðal annars leyst upp
þingið ef hann telur stofnanir lýðræðis í
hættu og hann hefur vald til að tefja af-
greiðslu umdeildra lagafrumvarpa.
Innganga Portúgal í Efnahagsbandalagið í
byrjun janúar og sú staðreynd að væntanleg-
ur forseti verður úr röðum óbreyttrá borgara
í fyrsta sinn í 60 ár er túlkað af frambjóðend-
um sem teikn um að Portúgal sé að öðlast
sess sem alvöru lýðræðisríki á meðal ríkja
Vestur-Evrópu eftir óvissutíð margra áratuga
herforingj astj ómar.
„Draumur okkar allra um nútímalegra og
evrópskara Portúgal er innan seilingar. Það
er orðið tímabært," sagði Amaral sigri hrós-
andi eftir að hafa fengið flest atkvæði i for-
kosningunum.
„Byltingin 25. apríl 1974 færði okkur lýð-
ræði og frið en hins vegar ekki nóga hagsæld,
við viljum meira að bíta og brenna.... eftir
þessar kosningar verður ekkert hið sama,“
segir Soares, leiðtogi sósíalista og forsætis-
ráðherra í þrem af sextán ríkisstjórnum er
myndaðar hafa verið í Portúgal frá því lýð-
ræði var endurreist.
Líkur á tvísýnum kosningum
Frambjóðendumir eru sammála um hvaða
vandamál það em sem hrjá Portúgal hvað
mest, en það er fátt annað sem sameinar þá.
Soares kveðst í kosningabaráttu sinni vera
fulltrúi fyrir lýðræðissinnaða jafnaðar- og
vinstrimenn sem verið hafa í sókn í Portúgal
frá 1974.
Amaral er aftur á móti studdur af hægri
sinnuðum flokki kristilegra demókrata og
sterkum öflum innan flokks sósíaldemókrata
er nú fer með völd í Portúgal.
Amaral fékk yfir 46 prósent atkvæða í fyrstu
umferð kosninganna á meðan Soares fékk
aðeins 25 prósent. Amaral tókst aftur á móti
ekki að fá þau 50 prósent atkvæða er tilskilin
voru til að ná kosningu strax.
Auðveldur sigur Amaral í fyrstu umferð
byggðist fyrst og fremst á klofningi vinstri
aflanna, er dreifðu sér á þrjá frambjóðendur,
meðan hægri menn fylktu sér um einn. Nú
hafa kommúnistar og aðrar fylkingar vinstri-
manna ákveðið að styðja Soares í kosningun-
um á sunnudag og því allar líkur á að mjótt
verði á mununum.
Umsjón: Guðmundur Pétursson og Hannes Heimisson