Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Side 11
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986. 11 Viðtaiið Viðtalið Viðtalið „Ritvélin og reykurinn ímynd blaðamannsins” „Ég lá í flensu einn góðan miðviku- dag þegar hringt var og ég beðinn að vera þriðji maðurinn í þættinum Á líðandi stundu. Þetta kom mér mjög á óvart en ég sló til. Maður er búinn að skrifa ótal pistla um sjónvarpsdagskrána, gagnrýnt hana og fjallað um hvað hefði mátt fara betur. Ég gat ekki hafnað þessu. Daginn eftir var ég byrjað- ur,“ sagði hin 25 ára gamli Sig- mundur Ernir Rúnarsson sem verið hefur blaðamaður um langa hríð og er nú orðinn ein af aðal- stjörnunum í sjónvarpinu. Sigmundur Ernir er fæddur á Akureyri og er stúdent frá Mennta- skólanum þar i bæ. Sigmundur fæddist með blaðamanninn í blóð- inu, hóf ungur að fikta við skriftir. Tvær ljóðabækur hafa komið út eftir hann, sú fyrri 1980 og heitir Kringumstæður en sú síðari 1983 og nefnist Óstaðfest ljóð. „Á við 30 ára kúrs að starfa við Helgarblað DV Vorið 1981 réð hann sig á gamla Vísi. Er Vísir og Dagblaðið samein- uðust varð hann blaðamaður hjá DV. „Ég var með Helgarblað DV í a.m.k. tvö ár. Það var æðisleg vinna, á við 30 ára kúrs í blaða- mennsku en árin á helgarblaðinu gerðu mig að þeim blaðamanni sem égerídag.“ Haustið 1984 hóf Sigmundur störf á Helgarpóstinum sem er allt önnur Ella að sögn Sigmundar.„Þar er meira kommúnulíf á ritstjórninni og meira svigrúm fyrir einstaka blaðamenn. f blaðamennsku fær maður hug- mynd, kemur henni strax á blað, hendir því til útlitsteiknaranna og þar með er málið búið. í sjónvarp- inu fær maður líka hugmynd en framkvæmdin getur ekki orðið fyrr en nokkrum dögum seinna. Það þarf að panta allt tæknilið með fyrirvara. Svo loksins þegar fram- kvæma á hugmyndina þá er maður kannski orðinn afhuga henni. Maður verður örugglega yfirveg- aðri með svona vinnubrögðum." Þyngdist um 10 kíló eftir reykingastoppið Þeir sem hafa séð Sigmund Erni í sjónvarpinu geta varla haldið því fram að hann sé feitur. „Samt hef ég þyngst um 10 kíló eftir að ég gifti mig í ágúst og hætti að reykja. Ég gaf nefnilega konunni minni í morgungjöf loforð um það að ég skyldi hætta að reykja. Maður getur ekki tekið gjöf til baka, svo ég stend mig í stykkinu." Sigmundur er giftur Báru Aðal- steinsdóttur þroskaþjálfa og eiga þau 1 ár gamla dóttur, Eydísi Eddu. Sigmundur gerði fleira á síðasta ári en gifta sig, hann keypti sér hús við Hallveigarstíg og hyggst gera það upp í sínum stíl. Er kvikmyndafrik Aðaláhugamál Sigmundar fyrir utan kvikmyndir eru skriftir. Uppáhaldsstellingin hans var að sitja fyrir framan ritvélina með iðandi reykinn upp úr öskubakk- anum og svo hulinn reykjarmekki að ekki sást nema móta fyrir útlín- um á líkama hans. „Ég er búinn að vera ómögulegur maður síðan ég hætti að reykja, blaðamannsímyndin horfin. En ég hef komið mér upp öðrum kæk, sem er að núa saman höndunum í gríð ogerg. Geðþekkasta kvikmynd af þeim aragrúa mynda sem Sigmundur hefur séð er danska myndin Zappa eftir Nils Malmros. „Annars hef ég -séð ótal góðra kvikmynda. Ég hef yndi af þeim.“ Aðeins helmingurinn af blaðamannsímyndinni eftir, eða ritvélin. Sigmundur er hættur að reykja og nýr saman höndunum af krafti í staðinn, 10 kílóum þyngri. DV-mynd KAE. Vinnslusalurinn hefur verið endurnýjaður. Þar hefur m.a. verið komið fyrir nýju tölvustýrðu vinnslukerfi. Myndin er frá vígsluathöfn sem haldin var við það tækifæri. Þorlákshöfn: VINNA í MEITLINUM í FULLAN GANG Frá Einari Gíslasyni, fréttaritara DV í Þorlákshöfn: Vinna í frystihúsi Meitilsins í Þorlákshöfh er nú komin í fullan gang en hún hafði legið niðri um alllangt skeið eða frá 20. desember sl. Ástæðan var íyrst og fremst sú að verið var að lagfæra báða togar- ana, Jón Vídalín og Þorlák. Að sögn Snorra Snorrasonar yfir- verkstjóra drógust viðgerðir á skip- unum fram úr áætlun en ráðgert hafði verið að þeim lyki það fljótt að vinna gæti hafist fljótlega upp úr áramótum. Hún hófst þó ekki fyrr en 4. febrúar sl. Snorri sagði að nú væri allt komið í fullan gang. Hefðu togararnir komið með samtals 280 tonn úr fyrstu veiðiferðinni. Einnig væri verið að taka á móti fyrstu loðnunni en fyrir- hugað væri að frysta eitthvert magn í vetur. Hjá Meitlinum starfa nú 280 manns þegar allt er talið, bæði til sjós og lands. Taldi Snorri ekki ganga veru- lega illa að fá mannskap í fiskvinnsl- una en verið væri að gera tilraun með að sækja fólk í nágrannabyggð- arlögin Selfoss og Hveragerði með rútubíl á vegum fyrirtækisins. Hefði það skilað misjöfnum árangri en lofaði nú aftur á móti góðu því þáttt- aka væri talsverð í byrjun vertíðar. Snorri Snorrason yfirverkstjóri DV-myndir Einar. Væru bundnar vonir við að fólk af Árborgarsvæðinu kæmi til með að nýta sér þessa nýju þjónustu er Meitillinn býður nú upp á og losni þá jafnframt við það amstur að þurfa að flytja inn erlent vinnuafl. Flugumf erðarstjórar sáttir Matthíasi Bjarnasyni samgöngu- ráðherra og Birgi Guðjónssyni, deildarstjóra hans, virðist hafa tekist að höggva á hnút þann sem deila flugumferðarstjóra við Pétur Einars- son flugmálastjóra var komin í. „Við erum búnir að fá þær leiðrétt- ingar sem við töldum þörf á,“ sagði Jón Árni Þórisson, stjórnarmaður í félagi flugumferðarstjóra. Flugumferðarstjórar koma saman til félagsfundar á morgun, laugar- dag. „Ég vonast til að þetta verði sam- þykkt á fundinum. Eftir er þó að ganga frá smáformsatriðum,“ sagði Jón Árni. Samkvæmt samkomulaginu verða vaktstjórastöður, sem flugmálastjóri hafði ráðið í, auglýstar að nýju. Ráðherra mun skipa í þær. Enn- fremur hefur ráðherrann afturkallað áminningarbréf. „Það kemur enginn sigurvegari út úr svona máli. Það tapa allir,“ sagði Guðlaugur Kristinsson, formaður samninganefndar flugumferðar- stjóra: -KMU . . WÉfc

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.