Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Side 32
44
DV. FÖSTUDAGUR14. FEBRÚAR1986.
Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós Sviðsljós
Þarna syngja þeir Lárus Loftsson og Alli Rúts fyrir Ellert B. Schram,
líklega nýjustu gluntana.
Þrír Fjölnismenn, Þórir Jensen, Svanur Þór Vilhjálmsson og Brynjar Franzson, fá sér bita.
Fjölnismaðurinn Wolfgang Stross með gesti sínum, Stefáni Edelstein, og öðrum gestum við kjötkatlana.
„Batinn er að mmnsta kosti þessi.“ Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra var aðalræðumaður á villibráðarkvöldinu og talaði mest um
fingurmein og fótamein. Ágúst Einarsson, einnig gestur, til vinstri.
Sigurður E. Guðmundsson, gestur,
reiðubúinn til viðskipta við þessa
léttklæddu drós. Hún seldi mönn-
um happdrættismiða og seldi vel.
Villibráð úr öllum landshomum, happdrætti, málverkauppboð og tilheyrandi
grín og gaman: allt var þetta ómælt á villibráðarkvöldi Lionsklúbbsins Fjöln-
is í Súlnasal Hótel Sögu. Þar voru 50 klúbblimir mættir með á fjórða hundr-
að gesta, alla karlkyns. Ljónaklúbbar eru ennþá einkynja.
Það er villibráðin sem er helsta aðdráttarafl á þessu kvöldi, auk félagsskap-
arins að sjálfsögðu. Þama vom hreindýrasteikur, hvalur, alls konar fuglar
og þar á meðal súla úr Eldey. Með þessu vom dmkkin erlend eðalvín,
enda vínrækt ekki hafin hér við norðurheimskautið.
Allt þetta tilstand er svo auðvitað út af því að Fjölnismenn em að safna
fé til þess að styðja þjóðþrifamál. Núna em þeir að skenkja Hrafnistu þrjú
sérbúin sjúkrarúm, styðja baráttu gegn fíkniefnum, kosta búnað í sérkennslu-
stofu Heymleysingjaskólans, auk þess að hlúa að Víðinesi, hæli Bláa
bandsins, en það hefur verið fast verkefni Fjölnis í áraraðir.
Baldur Óskarsson var gestaveislu-
stjóri og gerði hvort tveggja að tala
og syngja og spila síðan sjálfur
undir í helstu hljómkviðunum.
VJJTT
VlLLii
bráð og
VILLT gieði
}