Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1986, Blaðsíða 36
68*78*58
Hafir þú ábendingu eða vitn-
eskju nm frétt - hringdn þá í
sima 687858.
Fyrir hvert firéttaskot, sem
birtist eða ■ er notað í DV,
greiðast 1.000 krónur.
Fyrir besta firéttaskotið í
hverri vikn greiðast 3.000
krónur.
Fullrar nafiileyndar er gætt.
Við tökum við firéttaskotum
allan sólarhringinn.
FOSTUDAGUR 14. FEBRUAR 1986
INNBR0TAALDAINOTTI
REYKJAVIK 00 K0PAV0GI
Faraldur innbrota gekk yfir höf-
uðborgarsvœðið í nótt. Þegar síð-
ast fréttist hafði lögreglan verið
kölluð til að rannsaka þrettán til-
vik í Reykjavík og þrjú í Kópavogi
þar sem rúður höfðu verið brotnar
og óboðnir gestir farið inn.
„Það hlýtur að hafa verið gengi
á ferðinni,“ sagði varðstjóri á lög-
regluvarðstofunni i Reykjavík í
samtali við DV. í sumum tilvikum
voru aðeins skemmdir unnar en í
öðrum var einhverju fémætu stolið.
Þegar blaðið fór í prentun hafði
lögreglan haft hendur í hári eins
manns en aðrir skemmdarvargar
höfðu ekki náðst.
Tvívegis varð vart við ferðir þjóf-
anna. I rakarástofunni við Star-
mýri var tilkynnt um innbrot fyrri-
part nætur en þeir sem voru þar á
ferð sluppu.
Auk þess vissi lögreglan til þess
að brotist hafði verið inn hjá
Brauði h/f, í Póstmiðstöðina við
Eiðistorg, Tommaborgara, hús við
kirkjugarðana í Fossvogi, Biskups-
stofu, verkfræðistofu við Skúlatún,
nýbyggingu í nýja miðbænum,
lager hjá Nesco á Hverfisgötu og
bíl við Krummahóla. Þá voru
brotnar rúður hjá Karnabæ, í húsi
við Rauðarárstíg og í hárgreiðslu-
stofu við Grettisgötu.
í Kópavogi var brotist inn í Heil-
sugæslustöðina, Borgarbúðina og
Blómahöllina. Skemmdir eru enn
að mestu ókannaðar en rannsókn-
arlögreglan vinnur að rannsók
þessara mála. -GK
Samningar:
Næstu
dagarráða
úrslitum
„Það ætti að ráðast um eða upp
úr helginni hvort tekst að semja á
þessum viðræðugrundvelli. Ef ekki
þá er ljóst að stokka verður allt upp
og taka þetta öðrum tökum,“ sagði
Björn Björnsson, hagfræðingur VSÍ,
í viðtali við DV í morgun.
Eftir samningafund í gær var
ákveðið að efnahagsnefndin kæmi
saman klukkan 10 í morgun. Björn
sagði að atvinnurekendur væru til-
búnir að ræða málin á töluvert öðr-
•um grundvelli og hefðu enn ekki
lokað neinum leiðum. ASÍ hefði ekki
enn sett fram kröfugerð í tölum en
viðræður þeirra byggðust á því
hvernig hægt væri að ná upp kaup-
mætti síðasta árs og síðan að auka
kaupmáttinn.
„Staðan er orðin mjög þröng og það
er ljóst að samningar verða að takast
fljótlega. Staða fiskvinnslunar hefur
sett okkur stólinn fyrir dyrnar og
fiskverðshækkunin, sem ákveðin var
í gær, hefur ekki létt á stöðunni,"
sagði Þórarinn Þórarinsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri VSÍ.
Allmörg verkalýsfélög hafa boðað
fundi nú um helgina þar sem verður
aflað verkfallsheimilda. -APH
siá einnig bls. 40
RAUSTIR
MENN
25050
SETlDIBiLJISTOÐin
LOKI
Þetta hefur örugglega verið'
eitthvert framsóknarljós!
Jón náði
jafntefli
Ásdís, Njáll og Bryndís taka upp afmælispakka, þriggja ára og ákaflega samrýnd. Þegar pappírinn hafði verið
tekinn utan af komu í ljós vettlingar og sokkar. DV-mynd S.Æ., Djúpavogi.
Það óvænta gerðist seint í gær-
kveldi að Jón L. gerði jafntefli við
De Firmian. Skákin fór í bið í gær
og menn voru næstum vissir um að
Jón. L. mundi tapa, hann hafði verri
stöðu. En Jón lét ekki deigan síga,
hélt sér stíft við skákina og marði
jafnteflið.
Guðmundur Sigurjónsson tapaði
hins vegar fyrir Curt Hansen sem er
þess vegna orðinn efstur á mótinu
með 3 vinninga. Jóhann Hjartarson
og Jón L. Árnason eru næstir með 2
1/2 vinning ásamt nokkrum öðrum.
Aðrar biðskákir fóru þannig að
Árni Árnason tapaði fyrir Herzog,
Remlinger vann Halldór G. Einars-
son, Kogan vann Ólaf Kristjánsson,
Davíð Ólafsson vann Jón G. Viðars-
son. Skák Gellers og Wilders fór
aftur í bið, leikirnir í þeirri skák eru
orðnir yfir tvö hundruð. -KB
s já bls. 2
Þríburarnir á Djúpavogi þriggja ára:
Sú næstelsta stjórnar
Grænt Ijós í
Garðsárdal
Það var mikið um dýrðir heima
hjá Ásdísi, Njáli og Bryndísi á
Djúpavogi í síðustu viku. Þá héldu
þau upp á þriggja ára afmælið sitt,
öll í einu, enda þríburar.
„Þetta gengur eins og í sögu með
þríburana, mér finnst þetta vera
orðinn eðlilegasti hlutur í heimi
að vera með þau þrjú svona á sama
aldri,“ sagði þríburamóðirinn,
Guðmunda Brynjólfsdóttir, þegar
gestirnir voru farnir heim úr af-
mælisveislunni og þríburarnir
sofnaðir með súkkulaðikökurnar í
maganum. „Annars geta þau
stundum verið eins og Bakkabræð-
ur, þegar eitt þeirra tekur upp á
einhverju fylgja hin á eftir í
blindni. Þau eru ákaflega sam-
rýnd.“
Nú eftir þriggja ára jarðvist er
það Bryndís sem tekið hefur foryst-
una og stjórnar hópnum. Hún er
þó ekki nema næstelst, Njáll fæd-
dist fyrstur, svo Bryndís og Áslaúg
rak lestina.
Við bíðum spennt eftir næsta
afmæli; þá hafa valdahlutföllin ef
til vill eitthvað raskast.
-EIR
Frá Jóni G. Haukssyni á Akureyri:
„Ég stóð við eldhúsgluggann minn
og var að horfa á fjöllin þegar ég sá
allt í einu grænt ljós skjótast þvert
yfir dalinn. Þetta minnti helst á flug-
eld á ferð,“ sagði Ragna Björnsdóttir,
húsfreyja á Ytri-Hóli í Öngulsstaða-
hreppi. „Sennilega hefur þetta verið
ljósbrot en ég þorði ekki annað en
láta vita, taldi það vissara."
Hjálparsveitir könnuðu ástandið í
Garðsárdal í gær, í framhaldi af
ábendingum húsfreyjunnar á Ytri-
Hóli, en urðu einskis vísari. -EIR
Hagstofan f lytur Borg
nesing austur á f irði
Ungum Borgnesingi, Páli Aðal-
steini Svanssyni, brá heldur en
ekki í brún er honum var tilkynnt
að hann byggi ekki lengur á Bor-
garnesi heldur væri fluttur til
Seyðisfjarðar og byggi nú á Tún-
götu 21 þar í bæ.
Það kom þinggjaldskrafa frá
sýslumannsembættinu í Borgar-
nesi á Pál þar sem hann var skráð-
ur á þetta heimilsfang á Seyðisfirði.
Strákurinn, sem er 18 ára, vinnur
hjá Loftorku í Borgarnesi og þang-
að kom krafan. Birna Konráðs-
dóttir, sem þar vinnur, hringdi í
Pál og spurði hvort hann hefði flutt
lögheimili sitt á Túngötu 21 á
Seyðisfirði. Páll kannaðist ekkert
við það, sagðist aldrei til Seyðis-
fjarðar hafa komið og alltaf búið
hjá foreldrum sínum í Borgarnesi.
Birna hóf að kanna málið.„Ég
skildi ekkert í þessu, Túngata er
ekki til í Borgamesi og ég hélt að
strákurinn byggi í Borgarvík 5 hér
í Borgarnesi," sagði Birna. Komst
hún að því að Páli Aðalsteini hefði
verið ruglað saman á Hagstofunni
við Pál Rúnar nokkurn sem hafðist
við í Reykjavík, var á báti frá
Seyðisfirði og hafði flutt lögheimili
sitt þangað. Birna gerði eðlilega
athugasemdir við þetta en þeir á
hagstofunni stóðu fastir á sínu,
tölvan hafði skráð þetta svona.
Birna lét sig ekki, enda þessi Páll
Rúnar allt annar maður og miklu
eldri en Páll Aðalsteinn. Þegar hún
var búin að þrælast í þessu máli
rnn nokkurt skeið gaf hagstofan sig
loksins. Ruglingurinn var m.a.
fólginn í því að Páll Rúnar og Páll
Aðalsteinn fæddust á sama degi
ársins þó nokkur ár skildu þá að.
Ruglingurinn var leiðréttur.
-KB
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4