Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Qupperneq 4
4 DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 Stjómmál Stjórnmál Stjórnmál Stjórnmál FÉLAGSMÁLARÁÐ HERRA Á BEINNILÍNU Á RITSTJÓRN DV í KVÖLD Hringið í síma 27022 milli klukkan 19.30 og 21 Alexander Stefánsson félags- málaraðherra verður á beinni línu á ritsjóm DV í kvöld.Lesendur DV geta hringt í síma 27022 milli klukkan 19.30 og 21 (hálf átta til níu) í kvöld fimmtudagskvöld og lagt spurningar fyrir félagsmála- ráðherra. Húsnæðismálin eru sá mála- flokkur sem heitast hefur brunnið á ráðherranum að undanförnu. Ymis önnur mál heyra undir fé- lagsmálaráðherra. Má þar nefna sveitastjórnarmálin en frumvarp um þau hefur verið til meðferðar hjá stjórnarflokkunum um all langt skeið.Þá heyra atvinnumál einnig undir félagsmálaráðherra svo helstu málaflokkar séu nefndir. Lesendur em beðnir a'ð hafa spurningar sínar stuttar og hnit- miðaðar og gera ekki ráð fyrir að koma að nema einni spurningu hver. Svör verða síðan birt í DV á morgun eftir því sem kostur er. -óm Með Jón Helgason spriklandi ífanginu Frá Halldóri Kristjánssyni, frétta- ritara DV á Skógum: Sá fátíði atburður átti sér stað á bænum Raufarfelli í Rangárvalla- sýslu að kálfur fæddist sjö vikum fyrir tímann. Þrátt fyrir það lifir hann góðu lífí og heilsast vel. Kálfurinn vó ekki nema 10,5 kíló . Vegna smæðar kálfsins nýfædda revndist ekki erfitt að finna honum nafn. Hann þykir nefnilega af svip- aðri stærðargráðu og mjólkurkvót- inn sem landbúnaðarráðherra út- deildi bændum nýlega. Þess vegna var kálfurinn þegar í stað nefndur Jón Helgasaon Með Jón Helgason í fanginu. Eins og sjá má er hann ekki miklu stærri en angórakötturinn á heimilinu. Það er heima- sætan Rósa Olafsdóttir sem heldur á kálfmum en Kristín Halldórsdóttir er með köttinn í fanginu. Hinar stúlkurnar á myndinni eru Gyða Vestmann, Katrín Ólafsdóttir og Hjördís Þorsteinsdóttir. DV-mynd Halldór Framsókn byggir ofaná Hús Framsóknarflokksins að Rauðarárstíg 18 verður stækkað á næstunni um eina hæð. Það er nú þrjár hæðir og kjallari. Byggingar- nefnd borgarinnar samþykkti um- sókn flokksins með þrem atkvæðum gegn tveim, en einn nefndarmanna sat hjá. Mótatkvæðunum fylgdu mótmæli vegna skerðingar á birtu í íbúðum við Grettisgötu. Við afgreiðslu málsins lá fyrir, að íbúar hússins að Grettisgötu 98 höfðu mótmælt stækkun á Rauðarár- stíg 18 formlega. Vegna stækkunar- innar þarf Framsóknarflokkurinn að greiða borginni rúmlega 400 þúsund krónur fyrir 10 bílastæði. Á Rauðar- árstíg 18 er nú meðal annars Hótel Hof. HERB Gengiðfrálista sjáHstæðismanna íReykjavík: Albert hafnaði 28. sætinu „Þeir spurðu mig hvort ég vildi 28. sætið og ég neitaði því,“ sagði Albert Guðmundsson iðnaðarráðherra og fyrrum borgarfulltrúi í samtali við D V. í fyrrakvöld samþykkti Fulltrúa- ráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík einróma framboðslista Sjálfstæðis- flokksins til borgarstjórnarkosning- anna 31. maí næstkomandi. Úrslit prófkjörs voru bindandi i 8 efstu sætin og þar situr Davíð Oddson efstur. í 30. sæti er Geir Hallgrímsson fyrrum utanríkisráðherra og í 29. sæti Markús Örn Antonsson út- varpsstjóri. Albert Guðmundssyni var boðið 28. sætið, hann neitaði og féll það því í skaut Ingibjargar J. Rafnar lögfræðings. -EIR I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Dagpeningamir hjá Denna Óskaplega voru fréttamennirnir dónalegir við forsætisráðherra í sjónvarpsþættinum í fyrrakvöld. Þeir byrjuðu þáttinn á því að spyrja Steingrím að því hvaða skýringar hann hefði á miklum kostnaði við utanlandsreisur ráðherra og emb- ættismanna á síðasta ári. Rétt eins og þeim kæmi það við. Það var eðlilegt að Denna sárnaði þessi dónaskapur. Ekki veit hann betur en að kollegar hans i útlöndum ferðist villt og galið um allar trissur án þess að almenningur sé að skipta sér af því. Schliiter Danaráð- herra fór með fimmtíu manna föru- neyti til Austurlanda í fyrra og ætlar aftur. Islendingar eru sjálf- stæð þjóð og það kostar sitt að vera sjálfstæður. Steingrímur getur ekki verið sjálfstæður nema hann geti ferðast á vegum ríkisins og sannað fyrir umheiminum að landið sé sjálfstætt. Fréttamennirnir spurðu Stein- grim hvað hann hefði verið að gera. Hvílík og önnur eins frekja! Denni fór til ísrael og Jórdaníu til að flytja fyrirlestur um verðbólguþjóðfélag- ið, Þangað var hann boðinn. Það boð kostaði þrjú hundruð þúsund krónur. Átti hann kannski ekki að þiggja þetta góða boð? Steingrímur upplýsti að gestgjafarnir hefðu borgað ferðalagið aðra leiðina. Gaman hefði verið að fá það upplýst nánar hvora leiðina þeir greiddu. Vildu þeir fá hann eða vildu þeir kannski losna við hann? Við þessu fékkst ekkert svar. Það var galli á þættinum. Fréttamennirnir gagnrýndu að Steingrímur hefði komið við í Madrid til að sækja fund framsókn- arflokkanna í Evrópu. Þetta fannst Denna skrítin krítik. Hann vissi ekki betur en að allir fyrirrennarar hans í öllum flokkum hefðu haft það fyrir sið að láta ríkissjóð borga fyrir sig fargjald og uppihald á bræðraflokkasamkundum út í heimi. Og úr því að aðrir hafa misnotað aðstöðu sína með þessum hætti, hvers vegna má hann ekki gera það líka? Ef hinir svindla, af hveiju má ég þá ekki svindla? Þegar fréttamennirnir fóru að færa sig upp á skaftið benti Denni á mjög athyglisverða staðreynd. Hann fór á ólympíuleikana í Los Angeles, tók sér frí í leiðinni og rukkaði ríkið ekki nema um helm- inginn af dagpeningunum. Ekki var annað að heyra en ráðherrann stæði í þeirri trú að hann hefði þannig sparað ríkissjóði heilmikinn ............ ----------- líMBIÍ pening. Og fyrir það eigum við að vera þakklát. Það er greinilega ekki a hveijum degi sem ráðherrum dettur sú fórnarlund í hug að taka sér frí i útlöndum án þess að láta ríkið borga. Síðast en ekki síst fór Steingrím- ur á íjörtíu ára afmæli Sameinuðu þjóðanna. Hann minntist raunar «8rtm>É».rfiHi»... ekki á það að eiginkonan fór með og sótti aðra ráðstefnu í leiðinni sem var auðvitað miklu merkilegra og sannaði miklu betur en allt annað hvað Island er sjálfstætt land. Imyndið ykkur ef kona for- sætisráðherrans hefði ekki farið á þessa ráðstefnu. Alveg er maður viss um að íslendingar hefðu um- svifalaust misst sjálfstæði sitt. Að því er varðar ferðir annarra ráðherra og farareyri þeirra vissi Steingrímur ekki mikið og taldi greinilega að sjálfstæðinu væri ekki hætta búin þótt þeir sæjust ekki á erlendri grund. Eins og hann sjálf- ur. Það stóð nokkuð í Páli fréttmanni hvernig hægt væri að bjóða i boðs- ferðir, hvað þá að þiggja boðsferðir, þegar gesturinn þyrfti að borga. Þetta stafar af því að Páll þekkir ekki diplómatíska gestrisni. Hún er samkvæmt upplýsingum forsætis- ráðherra fólgin í því að gestirnir borga fyrir sig. Oftast báðar leiðir nema þegar Steingrímur er boðinn. Þá er borguð önnur leiðin sem ber vott um helmingi meiri gestrisni. Já, forsætisráðherra verður að ferðast til að sanna að hann sé sjálfstæður. Hann verður að þiggja boð, sem íslenska ríkið greiðir, til að sanna að Island sé sjálfstætt. Það fer í taugarnar á Denna þegar fréttamenn eru að fetta fingur út í utanferðir sem eru liður í sjálfstæð- isbaráttuni. Sérstaklega þegar hann getur sýnt fram á hreinan sparnað með því að rukka ekki inn dagpeninga þegar hann er í fríi. Það gerirenginnnemaDenni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.