Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 5
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
5
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
Stjórnmál
r Nýtt framboð á Djúpavogi:
Oflokksbundinn listi
Frá Sigurði Ægissyni, fréttaritara
DV á Djúpavogi:
Nýlega var haldinn borgarafurak
ur í félagsmiðstöðinni á Djúpavogi.
Var tilgangurinn sá að koma á
laggirnar óflokksbundnum lista
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í
vor.
Um 50 manns sóttu fundinn og
átti sér þar stað forvai á umræddan
lista. Þegar upp var staðið höfðu
náðst á annan tug nafna á lista og
mátti þar meðal annarra greina
nöfn flokksbundinna manna úr
ýmsum flokkum. Var ákveðið að
kjósa óháða kjörnefnd til að sjá
um framhald málsins, sem var að
undirbúa prófkjör þar sem raðað
yrði í sæti.
Þann 1. mars næstkomandi fer
svo umrætt prófkjör fi-am og verða
þá á listanum óflokksbundna eftir-
taldir menn og er þeim hér raðað
eftir starfsrófsröð:
Bjöm Jónsson, Röðli, Drífa
Ragnarsdóttir, Hvoli, Eðvarð
Ragnarsson, Háaleiti, Eysteinn
Guðjónsson, Steinum, Geirfinna
Óladóttir, Kambi, Gísli B. Bogason,
Grýtu, Hafdís Bogadóttir, Laufási,
Jón Þ. Agnarsson, Hraunprýði,
Magnús Hreinsson, Vík, Olafur
Ragnarsson, Kambstúni.
Rót þessa lista má rekja til óán-
ægju með fyrirkomulag síðustu
sveitarstjórnarkosninga en þá var
óhlutbundin kosning, þ.e.a.s. eng-
inn listi, og dreifðust þá atkyæði
viða. Þótti ýmsum ráð að kanna
nú hvernig óflokksbundnum lista
myndi reiða af í slíkum kosningum.
Hugsanlegt er að stofnaður verði félagsskapur þeirra er standa að fiskeldi
og fiskeldisstöðin í Kollafirði verði rekin sem rannsóknarstöð á sviði fiskeld-
is.
Fiskeldisstöðin íKollafirði allsherjar rannsóknarstöð:
„Skortur á
rannsóknum og til-
raunum er æpandi”
Lögð hefur verið fram þingsálykt- lykilatriði til þess að þetta fólk nýtist
unartillaga þess efnis að fiskeldis- semskyldi. -APH
stöðin í Kollafirði verði rekin sem
tilraunastöð fyrir erfðafræðirann-
Bandalag jafnaðarmanna vill brey tingar á skattakerfinu:
Eitt ríkisútsvar í
stað núverandi skatta
Ríkisútsvar, staðgreiðslukerfi
skatta og aðeins ein álagsskatta-
prósenta eru meðal atriða sem
Bandalag jafnaðarmanna leggurtil
að hrint verði í framkvæmd. Á
næstu dögum kemur út bæklingur
þar sem þessar breytingar eru
boðaðar. Þessar breytingar ættu
að hafa í för með sér hærri laun,
stuðla að auknum sparnaði og
iækkun erlendra lána. Og ef þessar
breytingar verða gerðar lofar
flokkurinn landsmönnum góðu lífi
áíslandi.
Þessar tillögiu- fjalla einkum um
róttækar breytingar á skattakerí-
inu. Lagt er til að tekið verði upp
staðgreiðslukerfi skatta. Það hafi
í för raeð sér mikla einföldun og
spamaði í skattheimtu. Einnig
auðveldar það launþegum að hafa
yfirlit yfir ráðstöfunarfé sitt.
Þá er lagt til að aðeins eitt gjald
verði tekið af launum og það gjaid
sameini öll þau 15 gjöld sem nú eru
tekin af launum. Þetta eru gjöld
eins og stéttarfélagsgjald og lífeyr-
issjóðsgjald svo eitthvað sé nefnt.
Jafnframt þessu er gert ráð fyrir
að allar greiðslur sem launþegar
eiga rétt á fari í gegnum Trygg-
ingastofnun. Aðeins verði um eina
skattprósentu að ræða eða svokall-
að ríkisútsvar. Þessi breyting hefði
mikil áhrif á tekjudreifinguna eins
og hún er núna. Þess vegna yrði
að aðlaga kjarasamninga að þessu
nýja kerfi. Lagt er til að enginn
skattafrádráttur verði nema í sam-
bandi við sparnað. Allar vaxtatekj-
ur yrðu skattfrjálsar. Skattafrá-
dráttur tengdur sparnaði yrði á
þann veg að hægt væri að draga
frá sköttum sparnað sem væri lagð-
ur inn á ákveðna verðtryggða
reikninga til ákveðins árafiölda.
Tillögumar gera einnig ráð fyrir
sérstöku húsnæðisframlagi til
þeirra sem standa í húsnæðiskaup-
um. Honum yrði úthlutað í ákveð-
inn árafjölda eða á meðan kaupin
stæðu yfir.
Hér hefur aðeins verið drepið á
nokkur atriði þessara breytinga á
skattakerfinu sem Bandalag jafn-
aðarmanna boðar. Aðalhöfundur
þessar tillagna er Guðlaugur Ell-
ertsson viðskiptafræðingur sem
sæti á í landsnefnd flokksins. Ekki
hefur enn verið ákveðið hvort
þingmenn flokksins muni leggja
fram frumvörp á Alþingi til að
kanna hug þingmanna til þeirra.
-APH
sóknir og kynbætur á eldisfiskum,
einnig fyrir lífeðlisfræðirannsóknir
og rannsóknir á fisksjúkdómum. Þar
verði síðan aðstaða.til leiðbeiningar
og fræðslu um varnir gegn fisksjúk-
dómum.
Það er Björn Dagbjartsson, Sjálf-
stæðisflokki, sem leggur fram þessa
tillögu og hvetur landbúnaðarráð-
herra til að nota heimild í lögum um
lax- og silungsveiði og standa fyrir
stofnun félagsskapar ríkisins og
þeirra sem stunda fiskeldi. Þessi fé-
lagsskapur á síðan að reka fiskeldis-
stöðina í Kollafirði.
„Menn gera sér grein fyrir þekk-
ingarskorti og nauðsyn fræðslu um
fiskeldi almennt og fisksjúkdóma.
Skortur á rannsóknum og tilraunum
er æpandi. Þar fyrir utan vantar svo
auðvitað fé,“ segir í greinargerð með
tillögunni.
í greinargerðinni eru síðan færð
rök fyrír því að rannsókna sé þörf í
fiskeldi. Hér á landi séu nú þegar
nokkrir vel menntaðir sérfræðingar
á þessu sviði. Rannsókna- og til-
raunaaðstaða sem þessi sé því algjört
Frjálst.óháö dagblaö
Fréttaskot D V
Síminn sem
aldrei sefur
Síminn er
68-78-58.
SASEM
FLESTIR VliA
EKA
Framhjóladrifinn með
framúrskarandi
aksturseiginleika.
Sniðinn fyrir íslenskar
aðstæður.
Þú kemst strax á bragðið
þegar þú keyrir hann.
TÖGGUR HF.
UMBOÐFYRIR
BÍLDSHÖFÐA16, SÍMAR 81530-83104