Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Qupperneq 6
6 DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 Viðskipti Viðskipti Peningamarkadurinn Innlán meö sérkjörum Alþýöubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stœður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-74 ára geta losað inn- stœður með 6 mánaöa fyrirvara, 75 áfa og eldri með 3ja raánaða fyrirvara. Reikningam- ir eru verðtryggðir og með 8% nafnvöxtum. Þriggja stjömu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lifeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafn- vextir eru 29% og ársávöxtun 29%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 27% en 2% bætast við eftir hveija þrjá mánuði án úttektar upp í 33%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 33,5% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 36% nafnvöxtum og 36% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðrétt- ingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 39% nafnvöxtum og 42,8% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Iönaöarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 28% nafnvöxtum og 30% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3,5% vöxtum. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 2% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 36% nafnvöxtum og 39,2% ársávöxtun eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 1,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 22%, eftir 2 mánuði 25%, 3 mánuði 27%, 4 mánuði 29%, 5 mánuði 31%, og eftir 6 mánuði 37%. Frá 11.02.1986 verða vextir eftir 12 mánuði 38% og eftir 18 mánuði 39%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggð- um reikningum gildir hún um hávaxtareikn- inginn. 18 og 24 mánaöa reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 34,6%, eða ávöxtun 3ja mán- aða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxt- um sé hún betri. Samanburður er gerður mánaðarlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir spari- sjóðsvextir, 22%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 34,8% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3,5% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 22%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 32%, með 34,3% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ásfjórðungi. Reynist tromp- vextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður inn- an mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 22%. Vextir færast misserislega. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverð- tryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með afföllum og ársávöxtun er al- mennt 12-18% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 4. ársfjórðungi 1985: Til einstaklinga 720 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 916 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.073 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.237 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema .á 4. ársfjórðungi 1985: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 348 þúsund krónur til einstaklings, annars mest 139-174 þúsund. 24 manna fjöl- skylda fær mest 442 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 177-221 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 518 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 207-259 þúsund. Lánstími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóðurákveðursjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að láns- rétti er 30-60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-700 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5-8% vöxtum. Lánstími er 15-35 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í eitt ár og reiknaðir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 22% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tímans 1220 krónur og ársávöxtunin þannig 22%. Liggi 1000 krónur inni í 6 + 6 mánuði á 22% nafnvöxtum reiknast fyrst 11% vextir eftir 6 mánuði. Þá er upphæðin orðin 1110 krónur. Á hana koma svo 11% vextir eftir næstu 6 mánuði. Þannig verður innstæðan í lok tím- ans 1232 krónur og ársávöxtunin 23,2%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru 3,75% á mánuði eða 45%. á ári. Dagvextir reiknast samkvæmt því 0,125%. Visitölur Lánskjaravísitala í febrúar 1986 er 1396 stig en var 1364 stig í janúar. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 1. ársfjórðungi 1986 er 250 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3699 stig á grunni 100 frá 1975. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÓÐA (%) 11.-20.02198». INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUIVI sjAsérusta II l! lililllillii INNLÁN óverðtryggð SPARISJÚÐSBÆKUR úbundin innstnöa 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 22.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mén. uppsögn 25.0 26.6 25.0 25.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 6 mán. uppsögn 31.0 33.4 30.0 28.0 26.5 30.0 29.0 31.0 28.0 12mán.uppsögn 32.0 34.6 32,0 31.0 33.3 SPARNAÐUR- LANSRETTUR Sp.r.í 3 5 min. 25.0 23.0 23.0 23.0 23.0 25.0 25.0 Sp. Gmán. ogm. 29.0 26.0 28.0 29.0 28.0 INNlANSSKfRTEINI Til 6 mánaða 28.0 30.0 28.0 28.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanaraikningar 17.0 17.0 8.0 8.0 10,0 10.0 8.0 10.0 10.0 Hlauparaikningar 10.0 10.0 8.0 8.0 10.0 10.0 8.0 10.0 10.0 INNLÁN verðtryggð SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 2.0 1.5 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 6 mán.uppsögn 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0 INNLAN gengistryggð GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarlkjadollarar 8.0 8.0 7.5 7.0 7.5 7.5 7.5 7.5 8.0 Sterlingspund 11.5 11.5 12.0 11.0 11.5 11.0 11.0 11.5 11.5 Vestur-þýsk mörk 5.0 4.5 4.0 4.0 4.5 4.5 4.5 5.0 4.5 Danskar krónur 10.0 9.5 8.0 8.0 9.0 9.0 9.0 10.0 9.0 útlAn úverðtryggð ALMENNIR VlXLAR (forvaxtir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30,0 30.0 VIÐSKIPTAVlXLAR (forvextir) 34,02) kg« 34.0 kge 32.5 kge kge kge 34.0 ALMENN SKULDABRÉF 32.03) 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 32.0 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 35.02) kge 35.0 kge 33.5 kge kge kge 35.0 HLAUPAREIKNINGAR yfirdrAttur 31.5 31.5 31,5 31.5 31,5 31.5 31,5 31,5 31.5 ÚTLAN VERÐTRYGGÐ SKULDABRÉF Að 21 /2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengri en 2 1/2 ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 útlAntilframlebsuj sjAneðanmAlsi) 1) Lán til innanlandsframleiðelu eru á 28,5% vöxtum. Vegna útflutnings, í SDR 10%, í Bandaríkjadollurum 9,75%, í sterlingspundum 14,25%, í vestur-þýskum mörkum 6,25%. 2) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðékiptaskuldabréíum er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá sparisjóðunum í Hafiiarfirði, Kópavogi, Keflavík, Sparisjóði Reykjavíkur og Sparisj. vélstj. 3) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubankanum og Verslunarbankanum. Utflutningsskólanum sýndur mikill áhugi „Kennsla í útflutningsverslun og markaðssókn verður stöðugt brýnni þar sem æ fleiri fyrirtæki eiga nú í vaxandi samkeppni jafnt innanlands sem erlendis. Meginhvatinn að stofn- un þessa skóla er sú mikla og já- kvæða umræða sem nú á sér stað um útflutnings-og markaðsmál og að stöðugt fleiri fyrirtæki hér á landi leita fyrir sér á þessu sviði,“ sagði Jens Pétur Hjaltested, skólastjóri hins nýstofnaða Útflutnings- og markaðsskóla Islands. Stjórnunarfélag Islands og Út- flutningsmiðstöð iðnaðarins hafa stofnað þennan skóla, sem mun bjóða fram skipulegt nám og námskeiða- hald á sviði útflutnings-og markaðs- mála, auk þess sem skólinn mun standa fyrir kynningu á einstökum markaðssvæðum og útflutnings- möguleikum. Starfsemi skólans hefst um miðjan mars með 10 mánaða námi sem eink- um er ætlað þeim sem þegar fást við markaðsmál og útflutning í hinum ýmsu fyrirtækjum í landinu og geta tengt námið daglegum verkefnum sínum. Þótt skólinn standi í 10 mánuði þurfa nemendur aðeins að vera 9 daga frá vinnu. Mest byggist námið á heimavinnu. Tíu mánaða námskeiðið kostar um 90 þúsund krónur með námsgögnum. Athygli skal vakin á því að oft á tíðum borga atvinnurekendur þenn- an kostnað eða hluta af honum. „Skólanum hefur verið sýndur mikill áhugi og hafa fjölmargir skráð sig á námskeið skólans," sagði Jens Pétur Hjaltested. -KB Helsti útflutningur Is lendinga, frosinn fiskur. Nú geta menn sest á skólabekk og lært hvernig standa á að útflutningi og markaðsmálum. Laxinn lækkar í verði Hér hefur verið stiklað á stóru og eingöngu teknar aðaltegundir sem helst eru afgerandi fyrir ver- tíðaraflann. Sleppt er uppbótum á kassafísk og verði á undirmálsfíski, svo og uppbótum á línufisk. Sleppt er uppbótum úr verðjöfnunarsjóði, einnig er sleppt öðrum ákvæðum um stærðarmælingu o.s.frv. Upp- sagnarákvæði eru: Heimilt er að segja upp verðinu ef launahækkan- ir verða meiri en 5% á vertíðar- tímabilinu, þó ekki fyrr en 15. mars 1986. Hér er aðeins getið um skipta- verð til sjómanna en ekki það verð sem útgerðin fær fyrir sinn hlut. Hull: Frá 11. til 18. febrúar var selt nokkuð af fiski frá íslandi. Fiskur- inn var afar misjafn að gæðúm. 1. flokks fiskur var á góðu verði. Verð á 1. fi. þorski var kr. 70 fyrir kíló og ýsa, sem var 1. fl., seldist á kr. 72 kílóið. Mikið af fiskinum var lélegt að gæðum og komst verð á þorski í kr. 38 kílóið og verð á ýsu var að meðaltali kr. 58 kílóið. Verð á öðrum tegundum fór eftir gæðum fisksins, fyrir góðan fisk fékkst sæmilegt verð. Vanda þarf meðferð þess fisks sern sendur er á markað erlendis. Hamborg: Vikuna frá 11. til 18. febrúar hefur verð á þorski, karfa, ufsa og grálúðu staðið nokkuð vel. Verð á laxi hefur aftur á móti lækkað mikið, hefur smálax t.d. lækkað allt að kr. 50 fyrir kg að undan- förnu og ekki telja menn að sjáist batavon fyrst um sinn. Madrid: Verð á fiski hefur farið lækkandi að undanförnu. Talið er að það sé aðallega í janúar og febrúar, en þá er verðið yfirleitt fremur lágt, en lagast venjulega þegar febrúar er liðinn. Þorskur var á 109 kr. kg, er það um 25% lægra verð en það var þegar þorskur stóð í sem bestu verði. Nokkrar tegundir hafa hald- ið sæmilegu verði og er það helst flatfiskur, en fyrirannan sjávarafla fæst ekki eins gott verð. Lax hefur fallið mikið í verði og er nú á um 30 til 50 kr. lægra verði en var fyrir jól. Þorskhrogn eru nú á kr. 141 kg, (sólkoli) þykkvalúra var á kr. 188 og sandhverfa á kr. 68. London: Biliinggate. Nokkrir erfiðleikar hafa verið moð sölu fisks að undanförnu og hefur verðið verið nokkru lægra Fiskmarkaðirnir INGOLFUR STEFÁNSSON en það var fyrripart janúar. Kemur þar inn í að sterlingspundið hefur lækkað nokkuð í verði, sérstaklega kemur þetta niður á verðinu á laxi, sem hefur lækkað þar eins og á öðrum mörkuðum. Verð á rækju fór þó í kr. 474 kg í pd. pakkningum. Hausaður þorskur fór á kr. 115, en það verð hefur oft verið fyrir þorsk meðhaus. París: Verð á markaðnum hjá Rungis hefur lækkað að undanförnu um 56 kr. kílóið. Annað fiskverð hefur einnig verið lægra en það hefur verið að undanförnu. Verð á þorski var í síðustu viku kr. 97, en verið allt að kr. 150 þegar það hefur verið best. Selafæia: Fundið hefur verið upp hljóð- bylgjutæki sem sendir frá sér hljóð sem styggir selinn. Hér er um lítið tæki að ræða, hljóðið hefur haldið selnum frá eldisgirðingum þar sem því hefur verið komið fyrir. Ingólfur Stefánsson Fiskverðið Nýtt fiskverð frá 1. febrúar 1986. Þorskur kr. kg. 1. flokkur, 20 fiskar í 100 kg 16,62 Frádráttur fyrir hvern fisk fram yfir 0,0831 Ýsaslægðmeðhaus 17,04 Fjöldi fiska í 100 kg 50 fiskar eða færri. Frádráttur fyrir hvern fisk fram yfir 50 kr. 0,0954 Ufsi, 80 cm og stærri, til 28. febrúar kr. 8,84 Ufsi að 80 cm, 1. fl kr. 6,03 Langa og blálanga, 1.11., slægð með haus kr. 10,05 Steinbítur slægður með haus, 1. fl kr. 10,88 Karfi, 1000 g og stærri, hæfur til frystingar kr. 7,60 Lúða, 1. fl., l/2til3kg Lúða, 1. fl„ lOkgogyfir kr. 40,09 Grálúða, 1. fi., 1 kgogstærri kr. 9,00 Skötuselur, halar hæfir til frystingar kr. 27,08 Hrogn, 1. fl kr. 26,23 Viðskipti Viðskipti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.