Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Side 8
8
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Utlönd
Utlönd
Utlönd
Útlönd
Yfir200í
stofufangelsi
Lögregla Suður-Kóreu setti
yfir 200 forystumenn stjómar-
andstöðunnar I stofufangelsi til
þess að hindra þá í að sœkja
mikilvægan fund hins nýja kór-
anska lýðræðisflokks. Til fund-
arins var boðað til þess að fylgja
eftir kröfum um endurbætur á
kosningalögunum.
Meðal þeirra, sem verða að
halda kjrrru fyrir heima hjá sér,
er formaður flokksins, Yi Min-U,
sem hafiiað hefur tilboði stjóm-
arflokksins að ræða leiðir til
úrbóta í kosningatilhögun innan
sala þingsins. Hann segist ekki
fella sig við að það eigi að dragast
þar til 1989.
SkæruráSriLanka
Vitað er um að minnsta kosti
45 sem látið hafa lífið í skærum
á Sri Lanka síðasta sólahringinn,
en allt öryggiseftirlit hefur verið
hert í Colombo þar sem lögreglan
telur sig hafa hindrað áætlun
aðskilnaðarsinna tamíla um
uppsetningu bílasprengja hingað
og þangað í borginni.
Meðal hinna föllnu eru þrjú
böm en alls 32 borgarar og 4
hermenn.
Junius Jayewardene forseti
mun ávarpa þingið þegar það
kemur saman að nýju síðar í dag
og mun þar gera grein fyrir
áætlun stjómarinnar til þess að
draga úr lcynþáttavandamálum á
eyjimni.
Fyrstir med fréttirnar
Þverholti 11
Fréttciskotiö,
símiimsemaldrei sefur
68-78-58
Stórbruni ígamla
bæjarhluta Osló
Björg Eva Erlendsdóttir, fréttarit-
ari DV í Osló:
Stórbruni varð í miðborg Osló í
gær, aðeins hundrað metra frá
norska Stórþingshúsinu.
Eldurinn varð laus um fimmleytið
í gærmorgun í húsi númer átta við
Stórþingsgötu.
Slökkvilið kom strax á vettvang
en þrátt fyrir mikinn mannafla tókst
ekki að halda eldinum í skefjum.
Tvær stórar byggingar gereyðilögð-
ust og fleiri skemmdust töluvert.
I öðru húsinu er eyðilagðist í eldin-
um voru til húsa 15 fyrirtæki af öllum
stærðum og gerðum.
Enginn var í byggingunum er eld-
urinn kom upp en einn slökkviliðs-
maður slasaðist nokkuð vegna stein-
hruns.
Ekkert er enn vitað um orsök
brunans en tjónið nemur líklega
milli 50 og 80 miljónum norskra
króna.
Aðstæður voru erfiðar fyrir
slökkviliðið á vettvangi. Frostið var
mikið, yfir 20 stig og brunaslöngurn-
ar gaddfreðnar í bílunum.
Síðar um daginn er sprautað var á
rústirnar mynduðust stórar ísblokkir
og svell á svæðinu og auðvitað voru
slökkviliðsmenn alhrímaðir af úðan-
Brunabíll undir steinvegg
Stærsta vandamálið var að húsin
hrundu smám saman og því var erfitt
að komast nógu nálægt til að
slökkva eldinn.
Einn af útveggjum byggingarinnar
við Stórþingsgötu númer átta hrundi
ofan á nýjasta brunabílinn í flota
Oslóarslökkviliðsins og jafnaði hann
við jörðu.
Uppúr hádeginu var slökkviliðið
öiuggt um að eldurinn myndi ekki
breiðast meira út.
Svæðið í kringum brunan var afgirt
og þúsundir manna komu of seint til
vinnu, en Stórþingsgatan er ein af
aðalumferðaræðum miðbæjarins.
Byggingarnar er brunnu voru
gömul og virðuleg hús og nú verða
byggð ný í staðinn.
Þeir sem geta glaðst yfir því eru
þingmennirnir, þá hefur sárlega
vantað bílastæði í mörg ár og nú
rætist trúlega úr þeim vandamálum
þegar nýju húsin rísa.
Gífurleg flóð i
nord-vestur USA
Mikið úrfelli hefur gengið yfir
hluta Norður-Kalifomíu og hluta
Nevadafylkið í Bandaríkjunum
síðustu daga.
Yfirvöld hafa orðið að flytja
þúsundir íbúa á brott í vissum
héruðum vegna flóða í ám og vötn-
um.
Rússa- og Napaámar norðan við
San Fransisco hafa verið í miklum
vexti og víða flætt yfir bakka sína.
Hundruð húsa og fyrirtækja á
bökkum Napafljóts eru enn undir
vatni en í morgun virtist sem flóðið
færi rénandi.
Yfirvöld telja að níu manns að
minnsta kosti hafi látið lífið í flóð-
unum og eignatjón er gífurlegt.
Yfir 2000 heimili hafa mikið
skemmst og 14 hús hafa hrunið
vegna flóðanna.
Veðurfræðingar hafa spáð áfram-
haldandi rigningum á flóðasvæð-
inu fram yfir helgi.
NORDMENN ALA
FROSKA TIL ÁTU
Björg Eva Erlendsdóttir, fréttarit-
ari DV í Osló:
Froskaeldi er atvinnugrein sem lítt
hefur verið stunduð fram til þessa.
Ekki væri vanþörf að bæta þar úr
því eftirsóttustu froskategundunum
fer mjög fækkandi vegna ofveiða.
Froskar eru étnir víða um heim.
Ekki. þó heilu froskaskrokkarnir
heldur einungis froskalærin sjálf er
þykja kóngamatur.
Ofveiðar á froski í löndum eins og
Bangla Desh, Indónesíu og Indlandi
hafa það í för með sér að ýmsum
tegundum skordýra hefur fiölgað
óhóflega. Froskamir höfðu áður
haldið þeim í skefjum.
Þrátt fyrir þetta er aragrúa froska
slátrað til að anna eftirspuminni.
Norski prófessorinn Harald Skjer-
vold telur eðlilegustu lausnina á
þessu máli þá að hefja froskaeldi.
Frosakeldi ekkert nýtt
Reiknar prófessorinn með því að
hægt sé að rækta frosk i Noregi í þar
til gerðum froskaeldisstöðvum.
Kjörhitastig frosksins er 21 gráða
á celsíus og við það hitastig er hann
orðinn kynþroska eftir eitt ár.
Norskur froskur er ekki kynþroska
fyrr en við fimm ára aldur, enda býr
hann við erfiðari aðstæður.
Froskaeldi er engin ný hugmynd.
í Brasilíu hafa verið ræktaðir
froskar alveg frá árinu 1935.
Það hefur gengið vel og er helsta
ástæða velgengninnar sú að auðvelt
hefur verið að finna hentuga fæðu
handa froskunum.
Froskurinn er ekki matvandur og
étur nánast allt er hann kemst yfir.
Matseðillinn inniheldur allt frá
minnstu mýflugum upp í mýs, slöngu-
og fuglsunga.
ÁFRAM ÍSLAND
HAPPDRÆTTI HSl
Heildarverðmæti vinninga 7,4 milljónir BÍLAR I
DREGNIR UT
ANNAÐ KVÖLD
15 BÍLAR
HAPPDRÆTTI HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ISLANDS
MIÐI Nr.
MIÐAVERD KR 150.00
Útgefnir miðar: 290 000
Upplysingar um vmmnga i sima 11750
ÁFRAM ÍSLAND
15 BÍLAR
SKATTFRJALSIR VINNINGAR:
15BÍLAR
5 SUZUKI FOX413 High Roof Kr. 490 þut. hver'
1 0 FORD ESCORT LASER Kr 375 þu». hver
B ■ar-.-r cregi'ir ut 21 FEBRUAR
40 FERÐAVINNINGAR sí
Kr. 30 þus. hver -Samvinnuferðir-Landsýn
2: Te-i • c-íqra- -1 10. JANÚAH 20 Ferð.r ö-efinar 0i 7.
PESSI MIDI GILDIR i HVERT SINN SEM DREGID ER EFTIR AD HANN ER GREIDDUR
r HEILDARVERÐMÆTI
FEBRÚar VINNINGA KR. 7,4milljóni