Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 10
10 DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 Utlönd Utlönd Utlönd Útlönd : SÖGULEGT FLOKKSÞING Á meðan Sovétmenn bíða flokks- þingsins horfa þeir um öxl yfir síðasta ár, sem hefur verið með meiri mannaskiptum í fylkingar- brjósti Kremlverja en nokkurt eitt ár síðan Stalín leið. Brottvikning Viktors Grishin úr stjómmálaráðinu, sem menn höfðu raunar strax í desember séð fyrir, þegar hann var látinn víkja úr formennsku Moskvu-deildar kommúnistaflokksins, undirstrik- ar að Gorbatsjov virðist ekki eira íyrr en hann hefur komið öruggum fylgismönnum sínum sem víðast fyrir og ýtt hinum burt, sem áður voru helstu þröskuldar þess að hann tæki sæti Tsémenkos. Þrír ráðamenn farnir Tveir aðrir úr fremstu röð ráða- manna í Kreml voru áður farnir. Annar var Nikolai Tikhonov, fyrr- um forsætisráðherra, sem tilheyrði Gorbatsjov og félagar hafa lofað landslýðnum umbótum, en enn sem komið er hefur herferð þeirra gegn spillingu, sóun og dugleysi ekki skilað markverðum árangri og efndir ýmissa loforða Iáta á sér standa. öldungahópnum. Hinn var úr hópi yngri mannanna í valdaklíkunni, eins og Gorbatsjov sjálfur. Nefni- lega Grigory Romanov, sem hafði veitt Gorbatsjov óþægilega keppni um leiðtogasætið. - Minni athygli hafa vakið önnur mannaskipti, eins og t. d. að núna hverfur um leið og Grishin úr ritaraembætti miðstjómar Konstantín V. Rusa- kov, sem var 76 ára orðinn. Þar sem menn hafa verið settir í staðinn hafa ávallt komið fylginautar Gor- batsjovs. Greinilegar breytingar Enda ber diplómötufn, flokks- mönnum og venjulegum borgurum saman um að það hafi orðið stór- breytingar á tíðaranda og forystu- liði síðan Mikhail Gorbatsjov tók við aðalritaraembættinu af Kon- stantín Tsérnenko í mars í fyrra, fyrir tæpu ári. Um hitt eru menn ekki jafn sammála hversu ágengt Gorbatsjov hefur orðið við að blása meiri framtakssemi í efnahagslífið, draga úr sóun, bæta lífskjör og vekja upp nýjan eldmóð fyrir kommúnistahugsj ónunum. „Þetta er ekki bara í nösunum á mönnum," sagði einn af embættis- möhnum flokksins við fréttamann Reuters á dögunum. „Fólki þykir orðið nóg um, og þessir ungu valda- menn vita hvar skórinn kreppir." En andófsmaðurinn Roy Medvedev sagnfræðingur er ekki sömu trúar: „Að vísu streyma umbótafyrirmælin ofan frá æðstu þrepum í Kreml sem fyrr niður allan stigann. En það er úr þeim allur þróttur þegar komið er neðst niður. Fólki stendur hjartanlega á sama.“ Sögulegtflokksþing Síðan Gorbatsjov og hans sveinar komust til áhrifa hafa þeir keppst við klukkuna til þess að búa sig undir 27. flokksþingið, sem hefst næsta -þriðjudag. Þau eru haldin fimmta hvert ár, en þetta flokks- þing þykir líklegt til þess að verða eitt það sögulegasta síðan á Krúsjov-tímanum fyrir 25 árum, þegar skurðgoðinu Stalín var velt af átrúnaðarstallinum. Á flokksþinginu mun Gorbatsjov auðvitað gera grein fyrir stöðu þjóðmálanna og setja ný framtíðar- mörk að stefna að. En afar líklega mun hann gera úttekt á Sovétríkj- unum undir stjórn Leonids Umsjón: Guðmundur Pétursson Bresnevs, sem andaðist 1982, og sú umsögn gæti orðið sá dómurinn á Bresnevstímanum sem sovéskir sagnritarar mundu festa á sovésk spjöld sögunnar. - En tónninn að undanförnu hefur verið sá að Bresnev og félögum hefur verið í æ ríkari mæli kennt um spillingu, sóun og annað sem miður hefur þótt fara. Hreinsunin mælist vel fyrir Einn meginnþráðurinn stjórn- sýslu Gorbatsjovs og félaga hefur legið í hreinsunum á eldri embætt- ismönnum, mútuþægum eða dug- litlum og vanhæfum. Þúsundir slíkra hafa verið látnir víkja úr opinberum embættum eða trúnað- arstörfum fyrir flokksdeildir byggðarlaga sinna. Þessi hreinsun virðist hafa mælst vel fyrir meðal þorra alþýðunnar. Óánægðir við- skiptamenn heyrast nú hafa orð á að kalla yfir óþjálan afgreiðslu- mann eða hrokafullan kerfiskurf slíka hreinsunarherferð, ef þeir fái ekki betri afgreiðslu. Þessu hefur jafnframt fylgt um- ræða og gagnrýni, birt i flokksmál- gögnunum, en fyrir slíku hafa ekki verið nein fordæmi. Hefur sú íjöl- miðlaumfjöllun orðið til þess að hrekja úr embætti gallagripi. Raunar hefur umfjöllunin tekið til málefna sem áður voru bannhelg. Af því tagi var lesendabréfið, sem birtist fyrir skemmstu í Pravda, þar sem gagnrýnd voru sérgæði hinna útvöldu, eins og sérveitingastaðir, sérverslanir, sérsjúkrahús og fleira, þar sem annaðhvort var boðið upp á betra vöruúrval, betri þjónustu, hagkvæmara verð eða eitthvað, sem réttum og sléttum borgurum stóð ekki jafnt til boða. Efndirnar dragast Þó segja ófáir diplómatar og Moskvubúar að þessar háværu yfirlýsingar um meiri vinnusemi og heiðarleika í starfi risti ekki dýpra en svo að enn marki ekki mjög á daglegu lífi Sovétborgara tilkoma Gorbatsjovs og félaga. Og sú herförin, sem mest hefur borið á, nefnilega gegn áfengisneyslunni, virðist fremur hafa mælst illa fyrir. - Allir eru að vísu sammála um að taka hart á ölvun á almannafæri og hinum sem svíkjast um vinnu til þess að drekka. En lokun á öldurhúsum og áfengisútsölum hefur gert mönnum erfitt um vik að verða sér úti um tilfallandi vodkafiösku eða borðvín. Ennþá bólar lítið á efndum lof- orða um að bæta vörugæði og vöruúrval neysluvarnings, sem stenst engan samjöfnuð við Vest- urlönd. Raunar hafði Bresnev gefið sams konar fyrirheit á miðjum síðasta áratug, en efndirnar létu einnig á sér standa hjá honum. „EKKERT LÍF ÁN BJÓRSINS” segja þyrstir Japanir Mikil umskipti eiga sér nú stað á drykkjuvenjum Japana. Svo virð- ist sem „hvítu byltingunni" svo- nefndu sé nú um það bil að ljúka, en með henni er átt við vinsældir vodkadrykkja ýmiss konar á Jap- ansmarkaðí. Virðist sem japanskir áfengisneytendur hafi í bili fengið sig fullsadda af heimabrugguðu vodka að nafni Shochu, sem löng- um hefur átt vinsældum að fagna, sérstaklega á meðal alþýðustétta. Bjórframleiðendur líta björtum augum til breyttra neysluvenja auk framleiðenda og innflytjenda á viskíi sem vonast til að fá sinn hlut af væntanlegum ágóða. Japanskir viskíframleiðendur töpuðu þriðjungi af markaði sínum fyrir nokkrum árum er Shochu sló í gegn og náði tíu prósent af öllum japanska áfengismarkaðnum. Skoskt viski framleitt í Japan Forráðamenn brugghúss í nánd við Tokýo, sem hefur til þessa lagað Shochu, eru um þessar mundir að breyta um hráefni og vélakost og ætla að hefja framleiðslu á viskíi. Reyndar á viskíið að vera skoskt, hráefni öll innflutt frá Skotlandi, en bruggunin verður í Japan. Shochu hefur löngum þótt val- kostur hinna efiiaminni í Japan á meðan hinir betur stæðari hafaJ getað leyft sér að dreypa á Sake, hrísgrjónavíni eða jafnvel innflutt- um eðalvínum frá Evrópu. Shochu er glært og lyktarlítið, að mestu búið til úr kartöflum og byggi. Áður en drykkurinn varð vinsæll í Japan þótti hann hálfgert glundur, ódýrt sull sem varla væri öðrum bjóðandi en námsmönnum og útigangsfólki. Verðið var lágt vegna þess að Shochu var talið lágstéttardrykkur og ekki lagður á það hár fram- leiðsluskattur. Á sama tíma og neytandinn borgaði tæpar 500 krónur íslenskar í skatt fyrir Umsjón: Hames Heimisson lítraflösku af úrvals viskíi og um 50 krónur í skatt fyrir lítra af góðum innlendum bjór, þurfti neyt- andinn aðeins að borga tæpar 20 krónur í skatt fyrir sama magn af bestu tegundinni af Shochu. Slóígegn1984 Shochuframleiðendur hófu mikla söluherferð á sjöunda áratugnum en slógu ekki í gegn fyrr en 1984 er vodkakokkteilar urðu vinsælir að nýju. Kokkteilabyltingin kom Shochu efst á vinsældalistann. „Almenningur komst að því að hann fann mun meira á sér af Shochu fyrir helmingi minni pen- ing,“ segir einn gamall námsmaður er aldrei segist hafa kunnað að drekka annað en Shochu. „Shochu breytti samkvæmislífi mínu, á því er enginn vafi,“ segir ung kona af erlendum uppruna í Tokýo, „þegar fólk fer út að skemmta sér drekka allir bjór, mér finnst bjór vondur og drakk því Shochu í staðinn, nú loksins gat ég farið að skemmta mér.“ Lífið er ekkert án bjórs En nú virðist Shochu-byltingin vera að líða undir lok, salan minnkar jafnt og þétt og bjórinn eykur hlutdeild sína. Bjórframleiðendur geta kannski þakkað löngu og heitu japönsku sumri fyrir aukna hlutdeild sína á markaðnum á ný. Síðasta sumar drukku Japamr yfir 1,7 milljarða lítra af bjór, er jafngildir 32 stórum flöskum af bjór fyrir hvem hinna 63 milljóna íbúa Japan á lögaldri. „Bjórinn er hluti af sumrinu hér í Japan, það er ekkert sumar án bjórþambs. Okkur líður bara ekki vel ef við erum ekki einhvers staðar á bak við könnu af bjór,“ segir Tókýobúi einn og kýldi bjórvömb- ina. Japanska verslunarráðið spáir því að bjór nái aftur undirtökunum á japanska áfengismarkaðnum á þessu ári. Shochu-vodkabyltingin virðist úti um sinn. Nú virðist sem vodkaæðið sé úti í Japan og þarlendir farnir að svolgra bjórinn aftur eftir nokkurt hlé. „Ekkert líf án bjórsins," segja svo inn- fæddir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.