Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Side 12
12 ' DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 o EIGIÐ I I FYRIRTÆKI? Iðntæknistofnun Islands gengst fyrir grunnnámskeiði um stofnun og rekstur minni fyrirtækja dagana 25. til 26. febrúar 1986. Ef þú hefur áhuga á að hefja eigin atvinnurekstur eða þarft að bæta núverandi rekstur fáðu frekari upplýsing- ar og láttu skrá þig í síma 687000. Athugið, takmarkaður þátttakendafjöldi. Staða forstjóra Iðntæknistofnunar íslands er hér með auglýst laus til umsóknar. Starfið verður veitt frá og með 1. júní nk. til næstu fjögurra ára, sbr. lög nr. 41 /1978 um Iðntæknistofnun íslands. Umsóknir sendist í iðnaðarráðuneytið fyrir 10. mars nk. 17. febrúar 1986. Iðnaðarráðuneytið. Auglýsing um styrki og lán til þýðinga á erlendum bókmenntum Samkvæmt lögum nr. 35/1981 og reglugerð nr. 638/1982 um þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku máli. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýðingarlauna. Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi: 1. Verkið sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur. 2. Upplag sé að jafnaði eigi minna en 1000 eintök. 3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum. 4. Eðlileg dreifing sé tryggð. 5. Útgáfudagur sé ákveðinn. Fjárveiting til þýðingarsjóðs í fjárlögum 1986 nemur 2.664.000 krónum. Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, og skulu umsóknir hafa borist ráðuneytinu fyrir 15. mars nk. Reykjavík, 14. febrúar 1986. Stjórn þýðingarsjóðs. KOSNING UM ÁFENGISÚT- SÖLU í HAFNARFIRÐI laugardaginn 22. febrúar 1986 Kosning hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 20.00. Kosið verður í Lækjarskóla og Víðistaðaskóla. Kjósendur skiptast á kjörstaði og í kjördeildir eftir heimilis- fangi miðað við 1. desember 1985 sem hér greinir: Lækjarskóli: (íbúar sunnan Reykjavíkurvegar). 1. kjördeild: Álfaskeið-Brattakinn og óstaðsettir íbúar. 2. kjördeild: Brekkugata-Hringbraut. 3. kjördeild: Hvaleyrarbraut-Mjósund. 4. kjördeild: Móabarð-Suðurbraut. 5. kjördeild: Suðurgata-Öldutún og óstaðsett hús. Víðistaðaskóli: (íbúar við Reykjavíkurveg og norð- an hans og vestan). 6. kjördeil: Blómvangur-Hjallabraut 1-17. 7. kjördeild: Hjallabraut 19-96- Miðvangur. 8. kjördeild: Norðurvangur-Þrúðvangur og óstað- sett hús. Kjörstjórn hefuraðsetur í kennarastofu Lækjarskóla. Utankjörstaðakosning verður virka daga nema laugar- daga frá kl. 9.30 til 16.00 á bæjarskrifstofunum, Strandgötu 6,2. hæð. Kjörstjórn Hafnarfjarðar: Sveinn Þórðarson (oddviti), Gísli Jónsson, Jón Ó. Bjarnason. Neytendur Neytendur Neytendu Gæðaeftir- lit með gos- drykkja- framleiðslu Á myndinni sjást flöskur sem teknar hafa verið úr umfcrð vegna ýmiss konar galla og rusls sem fast er í þeim. Gæðaprófanir og eftirlit með matvælaframleiðslu hefur sífellt aukist nú undanfarin ár. Af þessu tilefni fór DV í heimsókn til þeirra aðila sem framleiða gosdrykki hér á landi til að kanna það eftirlit sem er með framleiðslunni. Ýmiss konar ákvæði eru til um það aðhald sem verður að vera á gosdrykkjaframleiðslunni, annars vegar frá stjómvöldum og hins vegar er um að ræða alþjóðlega staðla sem Coca Cola, Pepsi og Seven Up setja. Hjá Vifilfelli, sem framleiðir Coke, er megináherslan lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir og eftirlit til að finna hugsanlega galla í drykkjunum áður en þeir fara út til neytendanna. Davíð Guð- mundsson verksmiðjustjóri sagði að hægt væri að skipta eftirlitinu upp í nokkra þætti. „í fyrsta lagi er um daglegt eftirlit að ræða sem felur í sér styrkleikamælingar í blöndun, mælingu á sykurinni- haldi, kolsým og þvottalegi í flöskuþvottavél. Vikulega fram- kvæmum við gerlamælingar á hrá- efninu og fullunninni vöm, lage- reftirlit og úttekt á hreingerningu í vélasal. Mánaðarlega tökum við sýnishom og sendum til höfuð- stöðvanna í Belgíu þar sem þau em rannsökuð og okkur veittar einkunnir og umsagnir fyrir fram- leiðsluna. Að lokum má nefna að reglulega framkvæmum við víð- tækari gerlamælingar og efnamæl- ingará Hi-C.“ Davíð sagði að kröfur Coca Cola væm mjög strangar og mikilvægt væri að tryggja að viðskiptavinur- inn gæti verið öruggur um að fá alltaf sams konar vöm sem strangt eftirlit væri haft með. „Við höfum komið mjög vel út með þau sýnis- horn sem við höfum sent út og höfum fengið einkunnina 96 af 100 mögulegum." Blöndun gosdrykkjarins fer fram í lokuðum tönkum og blandan er mæld á klukkutíma fresti. „Það má segja að við séum með eftirlit með eftirlitinu og ýmsar breytingar eru á döfinni til að bæta aðstöðuna enn frekar. Þetta gerir það að verkum að möguleikarnir á að út úr verksmiðjunni fari gölluð flaska, eru 1 á móti 3.500.000,“ sagði Pétur Helgason, matvæla- fræðingur Coke. Hjá Sanitas er aðstaðan nokkuð svipuð og sagði matvælafræðingur verksmiðjunnar, Dóróthera Jó- hannsdóttir, að útkoman úr gæða- prófum hefði reynst mjög góð en eftirlitið hjá Pepsi og Seven Up krefst þess að sýnishorn séu send mánaðarlega auk þess sem eftirlits- menn koma hingað til lands á hverju ári. „Við fylgjumst með kolsýrunni, Brixi eða sykurmagni og litnum. Á sykurlausum drykkjum eru tekin sýrupróf. Ég fer sjálf og athuga allt á klukkutíma fresti og teknar eru prufur úr áfyllingavélinni á hájftíma fresti. Bakteríupróf eru tekin vikulega auk þess sem náið er fylgst með hreinlæti á gólfum og vélum í verksmiðjunni." En hvernig stendur á því að þrátt fyrir hið fullkomna eftirlit sem virðist vera á gosdrykkjafram- leiðslu hérlendis, skuli alltaf koma upp tilvik þar sem innihald er gall- að eða jafnvel ótrúlegustu auka- hlutir finnast i flöskunum? Dóróthea svaraði því til að það væri séríslenskt vandamál hve mikið væri af ýmiss konar rusli í þeim flöskum sem skilað væri inn. „íslendingar virðast nota gosflösk- ur sem öskubakka og sjálfsagðan stað til að troða ýmiss konar rusli ofan í. Hjá okkur sitja nokkrir starfsmenn við svokallaða kíkju og skoða allar flöskur sem koma úr þvottavélinni. Ef eitthvað fer út þá er um að ræða mannleg mistök sem illt er að ráða við. Miðað við eftir- litið hjá okkur þyrfti röð af slíkum mistökum að eiga sér stað og því mjögsjaldgæft." Það eru margir þættir sem þarf að huga að við gosdrykkjafram- leiðslu, s.s. bragðefnamælingar, kolsýrumælingar, liturinn verður að vera réttur og gerlamælingar verða að vera nákvæmar og tíðar. Krafa viðskiptavinarins hlýtur eðlilega að vera sú að geta verið öruggur um að varan sem hann er að kaupa sé prófuð og eftirlit sé haft með því að ekkert sé í inni- haldinu sem geti skaðað hann eða skemmt innihaldið. Svo virðist sem eftirlitið hérlendis fullnægi þessum kröfum og framleiðendur séu vak- andi fyrir því að tryggja öryggi neytenda eins vel og kostur er. Því miður getum við ekki upplýst um eftirlitið hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni því þeir sáu sér ekki fært að taka þátt í könnun- inni. -S.Konn. Pétur Helgason, matvælafræðingur Vífilfells, í rannsóknarstofu verk- smiðjunnar. „í matvælaframleiðslu verður alltaf að hafa gæðamálin í brennidepli. Dóróthea Jóhannsdóttir, matvælafræðingur Sanitas, gerir daglegar kann- anir á framleiðslunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.