Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 13
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 13 Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur LIFLEG PAPRIKA í síðustu viku kom einn lesandi DV með græna papriku sem hann hafði keypt í Víði, Mjóddinni. Mann- inum þótti hún heldur lífleg fyrir sinn smekk. Hann hafði keypt pa- prikuna á laugardag og skorið af henni bita og stungið svo inn í ísskáp án þess að taka eftir nokkru óvenju- legu. Með sunnudagsmáltíðinni. átti svo að nota afganginn og sér heimil- isfólkið sá til nokkurrar hrellingar að eitthvað var á hreyfmgu í botnin- um. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd reyndist þetta vera lirfa í góðum holdum, skærgræn og bústin. Erling Ólafsson, skordýrafræðing- ur hjá Náttúrufræðistofnun, sagði að þetta væri erlend fiðrildalirfa en Góð þjónusta í Vatnsvirkjanum Sigþór hringdi: „Mig langar til að koma á framfæri þökkum fyrir góða þjónustu en oft vill það vera svo að fólk er fljótt til að kvarta yfir ófullnægjandi við- skiptum, en getur þess ekki sem gott er,“ sagði þessi lesandi DV. Sigþór var nýbúinn að kaupa sér uppþvottavél en vantaði á hana krana til að geta tengt hana. Hann fór í Vatnsvirkjann í Ármúlanum og fékk þar það sem hann vantaði auk greinargóðra leiðbeininga um hvern- ig haga skyldi ásetningunni. „En Soyabuff — hollt og ódýrt Soyabuff er holl og ódýr fæða sem er tiltölulega nýkomin á markað hérlendis. Buffið er selt í 80 gramma sneiðum og kostar sneiðin aðeins 15,- til 16,- krónur út úr búð. Sneið- arnar eru raspaðar, en egg og hveiti notað sem bindiefni. Soyabuff má teljást tilvalin fæða fyrir þá sem eru í megrun, því 100 grömmin innihalda aðeins 160 hita- einingar. Að öðru leyti er það ríkt af næringarefnum, s.s. eggjahvítu, trefjaefni, járni, fosfór, kalíum og B-vítamíni. Engin rotvarnarefni eða litarefni eru notuð í buffið og megnið af fituinnihaldi þess samanstendur af íjölómettuðum fitusýrum. Það er matvælafyrirtækið Islensk gæði sem framleiðir soyabuffið en það hefur nú verið selt í verslunum i nokkra mánuði. Hrisgrjón, soðnar kartöflur, grænmeti, kotasæla og ýmsar sósur fara vel með soyabuffinu sem eflaust verður skemmtileg til- breyting á heimilismatseðlinum. -S.Konn. Rétt utaná- skrift Allir þeir sem senda póst, hvort sem eru pakkar eða bréf, vilja vera örugg- ir um að sendingin komist til skila og helst á sem stystum tíma. En ef utanáskrift er ógreinileg, póstfang ófullkomið eða rangt, torveldar það alla flokkun og meðferð sendingar á pósthúsum og tefur eða jafnvel verð- ur til þess að sendingin kemst aldrei til skila. Það er því áríðandi að póstfang sé nákvæmt og að númer pósthólf sé tilgreint ef um það er að ræða. Ef sending er ætluð í dreifbýli er nauð- synlegt að geta hlutaðeigandi hrepps en sýsluheiti er með öllu óþarft. Póstnúmer er annar þáttur sem huga verður að en þau hafa verið tekin upp í mörgum löndum og til að koma í veg fyrir missendingar vegna áþekkra póstnúmera. Því hafa lönd Evrópusambands pósts og síma komið sér saman um að bæta ein- kennisstöfum bifreiða hlutaðeigandi lands fyrir framan póstnúmerið. Mjög mikilvægt er að geta sendanda, nafns og heimilisfangs, því á hverju ári lendir íjöldi póstsend- inga í vanskilum vegna þess að ut- anáskrift er ófullkomin og láðst hef- ur að tilgreina nafn og póstfang sendanda. Réttur staður er annað hvort efst á bakhlið eða í efra horn vinstra megin á framhlið sendingar. Með þessu eru starfsmönnum póst- þjónustunnar auðvelduð erfið flokk- unarstörf og sendendur og viðtak- endur öruggari með hraða og örugga þjónustu. -S.Konn. vegna þess að ég er hálfgerður klaufi í þessum málum braut ég kranann og fór því aftur í verslunina til að kaupa nýjan. Ég talaði aftur við verslunarstjórann og sagði honum mínar farir ekki sléttar. Mér til mikillar undrunar bauðst hann til að láta mig hafa nýjan krana, auk þess sem hann lánaði mér verkfæri og endurtók ráðleggingar sínar og leiðbeiningar. Þetta gerði hann allt mér að kostnaðarlausu en kraninn hafði kostað um 600 krónur. Ég vil meina að svona þjónustu fái maður ekki nema einu sinni á ævinni,“ sagði Sigþór að lokum. -S.Konn. sagðist ekki geta sagt nánar til um tegundina. „Ég hef aldrei séð svona í papriku áður en ég get ekki ímyn- dað mér að þetta sé hættulegt þótt það sé vissulega ekki geðslegt í matvælum. Ég ætla að reyna að halda í henni lífinu og sjá hvort ég fæ ekki fallegt fiðrildi út eftir nokkr- ar vikur." Hörður Jónasson hjá Víði í Mjódd- inni sagði að þetta væri hlutur sem þeir gætu ekki gert neitt við. „Við seljum þetta ekki viljandi, enda getur enginn séð að nokkuð sé athugavert við útlit paprikunnar. Við getum einungis endurgreitt manninum og er það ekki nema sjálfsagt,“ sagði Hörður að lokum. Það er nokkuð algengt að Náttúru- fræðistofnun fái svipuð mál til grein- ingar þótt algengara sé að skordýr eða önnur óæskileg aðskotadýr finn- ist í mjölvöru en grænmeti. -S.Konn. Á myndinni sést paprikan og fiðrilda- lirfan sem við bestu heilsu hafði nærstáfræjunum Mynd: PK KAPALSTÖÐVAR. FJÖLMIÐLAFYRIRTÆKI. MYNDBANDA- OG KVIKMYNDAVER. ATHUGIÐ. MYNDAVELAR BV-110.600 PR0FESSI0NAL VIDE0 bbl Æ * jftSt 3x' c lampar/Prisma. Minnsta 3"íámpa vél i héimi. Fyrir kapiilsjónvarp 09 smærri stúdió. KY-320,3x!/j'' PLUMBICON lamp- ar.Fyrir myndbandaver og auglýs- ingastofur. KY-950.3xVj" LOC PLUMBICON lampar. Fyrir myndbandaver og sjónvarpsstarfsemi. ENG/EFP. PR 4800. Feröa HI-BAND tæki. PR-8800. Stúdíó HI-BAND tæki. Klippitötva. RM-86 fyrir HI-BAND og VHS (BR-8600) Myndblandarar. KIVI 2000/1200 Fyrir HI - B AN D og VH S. Hljóðblandarnr, Mi 2000/1200. ; Fyiir HI-BANDog VHS. BR-8600 VHS atvinnuklippitæjo. FM DUB afritun og innklipp. BR-7000. Hi-Fi fjölfjöldunartæki. BP-5000. Afspilari. 3 endurtekn- ingarrtioguleikar. Tímastillir. 8R-1600. Feróaupptökutæki. Passar við BY-110 með sleða. 2,4 kg. Faco hf. er umboðsaðili JVC atvinnumyndbandstækja á ísiandi. innnutningur er milliliðataus og koma beint frá verksmiðjum JVC i Japan. Bjóðum mjög hagstætt veró og Gerum tilboð í einstök tæki og myndbandskerfi. JVC Húsinu, Laugavegi 89 SÍMAR 27840 & 13008.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.