Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 16
16 DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 Spurningin Gefur þú blóm á konu- daginn? Stefán Magnússon nemi: Nei, það hef ég aldrei gert. En ég held að það sé slatti sem gerir það. Magnús Hinriksson vélskólanemi: Sennilega mun ég gera það, já. Ég hugsa að það geri mjög margir. Hjalti Vésteinsson nemi: Já, sjálfsagt geri ég það. Ég hef vanist því að gefin séu blóm. Það verður að halda konunum góðum, það verður eitt- hvað að gera. Friðrik Pétursson fulltrúi: Oft geri ég það, já. Hvort ég muni alltaf eftir konudeginum? Já, yfirleitt er það nú og eins og ég segi: gef oftast blóm. Gunnlaugur Helgason dagskrárgerð- armaður: Nei, ég mundi ekki einu sinni eftir að það væri konudagur á næstunni. Ég á líka enga konu og mamma mín er úti svo ég hef enga til að gefa. Hjalti Sigurðsson lyfjafræðingur: Já, ætli ég geri það ekki úr því þú minnir mig á það. Annars mundi ég ekkert eftir því að þessi dagur væri að koma. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur Hvað er til ráða? Hafsteinn Guðmundsson skrifar: Ég skrifa þetta vegna greinar í Morgunblaðinu 11. 2. 1986, Drög af húsnæðislánum. Ég fagna auknum lánveitingum fyrir byggjendur, þær eru allt of lágar. Það er fyrir flesta ekki málið hver á eignina, heldur fær fólk að búa í því húsnæði sem það hefur með dugnaði og elju komið sér upp, það eru einnig ómæld verðmæti fyrir þjóðarbúið. Eða hvað er þjóðfélag? Er það að rífa niður þjóðfélagsþegn- ana þangað til ekkert þrífst hér? Er nema von að fólk spyrji. Fjöldinn af heimilum hefur rústast og íjöldi fólks fyrirfer sér, allt vegna íjárhagsörð- ugleika og framtíðin lendir á villi- götum (börnin). Vextir eru stjarn- háir, óraunhæfir við alla fjármynd- un, í einu orði okur. I gamla daga var notuð svipa á þrælana en nú skuldir. Ef þjóðfélag sér ekki þjóðfélags- þegnum fyrir nauðþurftum stendur það ekki undir nafni. Nauðþurftir eru húsnæði í köldu landi. Þó má ekki neita því að þetta hefur þó lagast síðan heimatilbúin verðbólga fór lækkandi en betur má ef duga skal. Vextir og verðbólga gengur að hverju fyrirtæki, og ég tala ekki um, húsbyggjendum dauðum. Hverjum ætla þeir þá að lána? 12% vextir og 9% verðbólga eru spor í rétta átt. En það er furðulegt að jafnþýðingarmikil stofnun og Húsnæðisstofnun ríkisins hefur eng- an tekjustofn, þetta er til skammar. Hún þarf að greiða lífeyrissjóðunum skuldabréfakaupin aftur, nú 40% af ráðstöfunarfé þeirra, mætti vera .Nauðþurftir eru húsnæði í köldu landi, 50%, það verður að leyfa þeim að hafa eitthvað. Tekjustofn Húsnæðis- stofnunar ætti að vera þannig: 1. 10% af öllu byggingarefni, sama hvaða nafni nefnist, til að gera íbúð tilbúna. 2. 2% af öllum íbúðum, sem byggð- ar eru til endursölu, eða seldar innan árs frá lánshæfu húsnæði. 3. Útborgun lána ætti alls ekki að dragast lengur en í 6 mánuði frá lánshæfu húsnæði, þannig að vextir éti það ekki upp. 4. Endurgreiðsla ætti að fara fram með opinberum gjöldum. Lántak- andi ætti með skattseðlinum að fá tilkynningu um jafnar mánað- argreiðslur, sem fólk gæti greitt ásamt sköttum. Þetta mundi stórminnka vanskil og fækka nauðungarsölum. Þetta ætti ekki að vera vandamál í tölvuvæddu þjóðfélagi. rétt Bjarki Elíasson yfirlögregluþjónn skrifar: Hinn 13. febrúar 1986 birtist les- endabréf í DV sem Jón Ólafsson skrifar og ber yfirskriftina „Fyrstur á slysstað“. Jón óskar eftir svörum við nokkrum spurningum varðandi slys er varð á gatnamótum Suður- landsbrautar og Kringlumýrarbraut- ar aðfaranótt 2. febrúar þar sem lögreglubifreið var aðili að: Skal nú atburðarás rakin samkvæmt segul- bandsupptöku af fjarskiptum er fram fóru þetta varðandi: Kl. 05.15 var tilkynnt frá Bæjarleiðum um um- ferðarslys á gatnamótum Miklu- brautar og Grensásvegar og talið að sjúkrabifreið þyrfti. Lögreglubifreið- ir, sem voru á Laugavegi og Skúla- götu, fóru þegar á vettvang og sjú- krabifreið var send á staðinn: Kl. 05.18 tilkynnti lögreglumaður sem var á leið á slysstað að hann hefði Bjarki svarar Jóni Ólafssyni hvort það sé traustvekjandi að eiga líf sitt undir „svona mönnum“. lent í árekstri á gatnamótum Suður- landsbrautar og Kringlumýrarbraut- ar og óskaði eftir lögreglu og sjúkra- liði á vettvang. A sama tíma var til- kynnt um slysið frá tveimur leigubif- reiðastöðvum. Lögreglubifreið fór þegar á vettvang en sjúkrabifreiðin var þá farin í slysið á Miklubraut. Samkvæmt upplýsingum Slökkvi- liðsins senda þeir- sjúkrabifreið kl. 05.20 á slysstað á Suðurlandsbraut - Kringlumýrarbraut og aðra kl. 05.26 á sama stað og flutti hvor bíll einn mann á slysadeild. Ástæða þess að Jón Ólafsson telur að lögreglumenn í lögreglubifreið- inni sem lenti í slysinu hafi farið af vettvangi er sú að aðeins einn lög- reglumaður var í bifreiðinni óein- kennisklæddur og var á leið að sækja lögreglumann sem koma átti á vakt kl. 06.00 en þá eru vaktaskipti. Sjúkrabifreiðar var óskað af lög- reglu kl. 05.18 en slökkviliðið sendir fyrri bifreiðina kl. 05.20 en hina síð- ari kl. 05.26 eins og áður greinir. Varðandi síðustu spurningu bréfrit- ara um hvort traustvekjandi sé að eiga líf sitt undir „svona mönnum“ vona ég að svarið felist í þeim stað- reyndum sem hafa verið raktar hér. Að lokum vil ég þakka bréfritara áhuga hans á að bæta það sem hann telur miður fara og vona að hann hafi fengið fullnægjandi svör við spurningum sínum. Hámark svívirðunnar Hver er ákærður í mjólkurþjófnaðinum? spyr BJG í Garðabæ. BJG, Garðabæ, skrifar: Enn eitt fjármálahneykslið, og ekki af betra taginu, hefir skotið upp kolli hjá þessari fjármála-villi- þjóð. Nokkur hópur kaupmanna lét sig hafa það að kaupa stolnar mjólkurvörur til þess að græða svolítið meira. Mórallinn, sem fram kemur í þessu, er svo forkastanleg- ur að gera verður kröfu til þess að nöfn þessara verslana verði um- svifalaust hirt, svo fólk geti séð hvar það á ekki að versla. Þessi nafnleynd, sem hér tíðkast, er svo hrikaleg og skaðleg að jafnvel glæpamenn blómstra í skjóli henn- ar. Tökum fíkniefnaglæpamennina sem dæmi. Ung og saklaus stúlka komst í kunningsskap við ungan mann sem hana grunaði alls ekki að væri viðriðinn þennan glæpa- flokk. Hún gat illa snúið við þegar henni varð ljóst hver þarna var á ferð. Hefði makleg nafnbirting verið leyfð á sínum tima hefði þessi unga stúlka aldrei lent í þessu ævintýri. Þetta er dæmalaust logn- molluréttarfar, linkind og aum- ingjaskapur hins opinbera sem heldur hlífðarhendi yfir glæpam- önum. Fjármálamisferli er orðið svo hrikalegt hér á íslandi að nú verður að gera átak í því að koma í veg fyrir þessa óhugnanlegu glæpi. Það- verður að birta nöfn manna og fyrirtækja umsvifalaust sem ákærð hafa verið fyrir svínarí í viðskiptum. Að bíða eftir dómi er hrlægilegt, sá dómur kemur venju- lega þegar önnur kynslóð er tekin við og viðkomandi orðinn elliær eða dauður. Hver er ákærður í mjólkurþjófnaðinum? Þetta verð- um við að fá ópinbert á stundinni, takk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.