Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Síða 17
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRUAR1986
17
Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
.HvalQörð talar um sérstœðan húmor íslendinga vegna vopnaburðar lögreglupilta, þar sem gert var viðeigandi
Hinn ameríski
ránhvalur
Stórir strákar í vesturbæ skrifa:
Já, ég skrifa fyrir hönd stórra
stráka úr vesturbænum vegna at-
hugasemda Jóhanns Ö. Hvalf]örð
við bréfi strákanna fyrr í mánuð-
inum, vegna uppákomu varnar-
máladeildar á Keflavíkurflugvelli,
vegna einhverra hryðjuverka úti í
heimi. Jóhann Ó. Hvalfjörð talar
um sérstæðan húmor Islendinga
vegna vopnaburðar lögreglupilta,
þar sem gert var viðeigandi grín
að vopnaskakinu. Það er greinilegt
að sá sem kallar sig Jóhann Ö.
Hvalfjörð fyllir þann flokk sem
látið hefur hinn ameriska ránhval
kokgleypa sig með hálfgerðum
heilaþvotti í formi frétta ríkisfjöl-
miðlanna, þar sem allar fréttir
koma frá amerískum og enskum
fréttastofum (sem þar að auki eru
að mestu í eigu gyðinga), auk
minnimáttarkenndar gagnvart
amerískri múgsefjun og gervi-
mennsku. Hann kvartar yfir gálga-
húmor íslenskrar alþýðu gegn
valdahroka og andlegum farsótt-
um. En sem betur fer gera flestir
íslendingar sér grein fyrir múgsefj-
un af þessu tagi. Og hæðast að
slíkum uppákomum sem á Kefla-
víkurflugvelli. Vegna Jóhanns ein-
staklega vonum við að hið amer-
íska náhveli spýti honum út úr sér
hið fyrsta, svo að hann geti tekið
sinnaskiptum og vonandi fundið
sitt rétta íslendingseðli aftur.
í eigin
barm!
Ungur framsóknarmaður skrifar:
Ég hripa niður þessar línur í ergelsi
yfir allri þeirri gagnrýni sem Stein-
grímur Hermannsson fær yfir sig í
sambandi við Þróunarfélagið, þar á
meðal frá varaformanni Sjálfstæðis-
flokksins, á meðan sjálfstæðismenn
koma sínum manni annars staðar að.
Þar á ég við stöðuveitingu nýs vall-
arstjóra.
Þetta finnst mér vera hræsni hjá
sjálfstæðismönnum, að þeim detti
ekki í hug að líta í eigin barm áður
en þeir gagnrýna aðra. Það er ekki
mikið mál fyrir „litla barnið hans
Davíðs“ að koma manni.að, á meðan
maður, sem er búinn að vinna þarna
í mörg ár sem verkstjóri, og er í raun
hæfasti maðurinn í starfið, er settur
til hliðar því að hann passaði ekki
inn í kramið hjá íhaldinu. Hugsið
málið, dæmið ykkur áður en þið
dæmið aðra.
Takk fyrir lesturinn.
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.... 91-31815/686915
AKUREYRI:........96-21715/23515
BORGARNES:..............93-7618
BLÖNDUÓS:..........95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:......95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:..........96-71489
HÚSAVÍK:.........96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:............97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:......97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: .......97-8303