Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Síða 18
18
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Menning
Menning
Menning
Afturhvarf
til náttúrunnar
Talsverðar breytingar virðast
hafa orðið á kínverskri myndlist
frá því 1977 er sýning á kínverskri
nútímalist var fyrst haldin að
Kjarvalsstöðum. Þá virtust kín-
verskir myndlistarmenn leggja allt
kapp á að lofa og prísa verkafólk
og vinnuvélar, sem til lengdar var
fremur þreytandi fyrir.vestrænan
áhorfanda.
Nú er öldin önnur, ef marka má
fjölbreytta sýningu frá Shanxi-fylki
í Xian, sem opnuð var að Kjarvals-
stöðum um síðustu helgi. Ekki
örlar á traktorum og ef einhvers
staðar sést í jarðýtu eða vörubíl
þá er það eins og fyrir tilviljun.
Gott dæmi er verk eftir Miao
Zhougan af stíflugerð upp til fjalla.
Skógurinn, skýin og hrikaleg fjöll-
in eru meginatriði myndarinnar,
yfirgnæfa byggingar og vélar í
forgrunni vinstra megin. Áður
hefði náttúrufegurðin fallið í
skuggann af brosmildum vélstjór-
um við jarðrask.
Aherslubreytingar gera einnig
vart við sig í mannamyndum Kín-
verja. Fyrrum drógu þjóðhollir
listamenn þeirra upp myndir af
hinum kínverska alþýðumanni sem
félagsveru, í hópvinnu, á sellufund-
um, í bardögum við auðvaldsbullur
o.s.frv. Nú leyfist mönnum að
skyggnast inn í einkalíf alþýðunn-
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Mynd eftir Luo Ming.
ar, við sjáum undurfallegar svip-
myndir af börnum að leik, móður
með komabarn á brjósti, matseld,
o.fl.
Hin síkvika lína
En þótt nýjum herrum fylgi ný
yiðfangsefni eru kínverskir lista-
menn samir við sig þegar til kast-
anna kemur. Dráttlistin bregst
þeim hvergi, hvort sem viðfangsef-
nið er úr ríki manna eða náttú-
runnar. Hin þjála, síkvika lína er
alls staðar, afslöppuð og frjálsleg
eða hárfín og spennt. Eftir línunum
dansa litatónar, aldrei hvellir,
ævinlegasamstilltir.
Eins og segir í sýningarskrá, er
nákvæm eftirlíking sjaldnast loka-
takmark kínverskra listamanna af
gamla skólanum. Og þrátt fyrir
ýmis nútímaleg viðfangsefni, eru
allir listamennirnir á þessari sýn-
ingu bundnir hefðinni, þeir nota
ævagamla tækni og virða fom
lögmál kínverskrar myndlistar.
Það sem augað segir
Þeir mála til dæmis alltaf á langa
renninga, sem bryddaðir eru með
silki, en þeir voru upprunalega
notaðir til tímabundinna skreyt-
inga, á tyllidögum og við gesta-
komur.
Eftir notkun voru þeir svo vafðir
saman og settir í geymslu. Þetta
er eiginlega betra fyrirkomulag en
hið vestræna, þar sem listaverk eru
látin hanga uppi árum saman á
sama stað.
Um þessa sýningu að Kjarvals-
stÖðum get ég ekki sagt meira en
margur annar þar sem margt í
kínverskri myndlistarhefð er mér
framandi. En mitt vestræna auga
naut þess sérstaklega að sjá fínleg-
ar smámyndir eftir Fang Jizhong,
skáldskap Luo Ming um ljós og
skugga upp til kínverskra fjalla og
raunsæjar mannamyndir Wang
Yozheng.
Steinþór Sigurðsson hefur komið
sýningunni mjög snyrtilega fyrir í
vestursalnum að Kjarvalsstöðum.
Óhætt er að mæla með þessari
kínversku myndlist við alla þá sem
taka mark á því sem augað segir.
En þeir verða að hafa hraðan á,
því henni’ lýkur þann 23. febrúar
nk. -ai
Mynd eftir Wang Yozheng.
Fyrirliggjandi í birgðastöð
PLOTUR
(ALM93)
Sæ- og seltuþolnar.
Hálfhart efni í þykktum frá 0.8 mm -10 mm.
Plötustærðir 1250 mm x 2500 mm.
SINDRA
STALHR
Borgartúni 31 sími 27222
Ekki getur hjá því farið að þeir sem
fylgjast með þróun í alþjóðafjármál-
um hafi fylgst gjörla með Ronald
Reagan, forseta Bandaríkjanna, og
stefhu hans sem kölluð hefur verið
„reaganismi".
Þeim sem eitthvað vita um „sögu-
lega hagþróun" hefir litist heldur
illa á þá stefhu og hefur hún verið
harðlega gagnrýnd af einstökum
mönnum innan Bandaríkjanna og
utan, en án árangurs hingað til, því
að þessi „hirðstjóri bandarískrar
ómenningar" hefur óvanalega mikla
„persónutöfra" og gott lag á að
blekkja eigin þjóð og jaihvel aðrar
líka.
Greinarritari hefir aldrei látið
blekkjast af þeirri pólitísku „nagla-
súpu“ sem Reagan og aðrir reagan-
istar hafa haldið fram í hinni al-
þjóðlegu fjölmiðlun og ætla ég að
taka fyrir helstu þætti fjármálaþró-
unar í USA.
Kjallarinn
BJARNI
HANNESSON
FRÁ UNDIRFELLI
Setið
í súpunni
Hagræn naglasúpa
1. Hagstjóm Reagans hefur auk-
ið ríkisskuldir USA um tæpa
1000 milljarða dollara.
2. Fjárlagahalli hefur verið ævin-
týralega hár, um 200 milljarðar
$ á ári hin síðustu ár.
3. Hemaðarútgjöld USA hafa
verið samanlagt síðustu 5 ár
um 1050 milljarðar $ og hafa
verið fjármögnuð að 9/10 hlut-
um með lánum.
4. Þrátt fyrir Gramm og Rud-
man neyðarlögin er líklegt að
um sífellt aukna skuldamynd-
un verði að ræða, að óbreyttri
stefnu, og mun þá hinu efna-
hagslega Ikarusar-flugi reag-
anista fljótt Ijúka.
5. Hagvöxtur er hörmulega lítUl
miðað við allt það lánsfjár-
magn sem „dælt“ er út í efna-
hagslífið í gegnum hergagna-
iðnaðinn.
6. Margfeldisáhrif þessa gífur-
lega fjármagns í þjóðlifinu em
hörmulega lítil sbr. atriði 6 í
meðfylgjandi línuriti.
7. Ofinetinn gjaldmiðill hefur
„einangrað“ iðnað USA þann-
ig að raunverulegir vaxtar-
möguleikar til frambúðar eru
mjög takmarkaðir.
8. Hin svokallaða endurreisn
efnahagslifs í USA er í raun
algerlega fjármögnuð með
lánum og árangur hörmulegur
miðað við „kostnað".
Endalok stórveldis?
Miklar líkur eru á að hagstjóm
Reagans valdi endalokum þess valds
er USA hafði frá 1945-80 víðast um
heim. Þessi fullyrðing byggist á
þeirri staðreynd að hagstjóm o.fl. í
USA hefur valdið alvarlegri röskun
á heimsmarkaði og á fjármálamörk-
uðum að því marki að þetta ríki mun
aldrei ná aftur fyrri stöðu og að
líkum mun það einangrast bæði hag-
og stjómmálalega og verða annars
flokks ríki nema gjörbreytt verði um
stefnu.
Atriði 6 í línuriti skýrir þróun
iðnframleiðslu í USA. 7 sýnir vægi
dollarans miðað við helstu gjald-
miðla. 8 sýnir árlega hækkun ríkis-
skulda USA. Að öðm leyti er vísað
í tölusettar málsgreinar og samsvar-
andi tölur á línuriti til nánari at-
hugunar. Bjami Hannesson.
n gtfL.
ríkisskulc!a og herút-
(-•;) <:< 1 duir; I 980/1985 .
m
!|L
Hækkun
v
1980