Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Side 19
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
19
íslenskir fjallamenn hugsa til framtíðar:
LEIÐANGURISLENDINGA
TIL KÍNA OG
HIMALAYAFJALLA
Félagar í íslenska alpaklúbbnum
hugsa hátt, eins og vera ber, þar
sem áhugamál þeirra er fjallaklif-
ur. En ekki er nóg með það að þeir
hugsi hátt, heldur hugsa þeir til
framtíðarinnar. Hópur félaga í
klúbbnum hefur fengið leyfi Kín-
verska íjallamannasambandsins til
að klífa tvö fjöll í Sínkíang í Vest-
ur-Kína og í Tíbet. Ráðgert er að
sex manna leiðangur haldi til Kína
snemma sumars á næsta ári. Þar á
að glíma við rúmlega 7500 metra
háan fjallgarð skammt frá Pamír-
fjöllum. Síðari leiðangur fjalla-
mannanna leggur síðan af stað
vorið 1990. Takmark hans er eitt
hæsta fjall jarðar, Sisapangma.
Tæpur mánuður er ætlaður til
fjallgöngunnar á fjallgarðinn við
Pamírfjöll á næsta ári. Megin-
markmið Islendinganna verður að
klífa tindinn Kongur Tiupe sem er
7595 metra hár. Vitað er um þrjá
leiðangra sem klifið hafa þennan
tind. Hinn fyrsti var kfnversk-
rússneskur, árið 1959. Samhliða
fjallgöngunni munu leiðangurs-
menn safna myndefni og upplýs-
ingum um þessar fáséðu slóðir í
augum V esturlandabúa.
Fjallið Sisapangma, sem síðari
leiðangurinn ætlar að reyna við
árið 1990, er fjórtánda hæsta fjall
jarðar. Það er rétt norðvestan við
Everest-fjall, hæsta fjall jarðar.
Fjallið er 8046 metra hátt. Það var
fyrst klifið árið 1961. Leiðangurs-
mennirnir íslensku hafa einnig
leyfi til að gera kvikmynd um land
og þjóð í Tíbet.
Kostnaðurinn við fyrri leiðang-
urinn er rúm ein milljón króna.
íslensku fjallageiturnar hafa þegar
greitt skráningargjöldin sem eru
um sextíu þúsund krónur. I ráði
er að safna fé til fararinnar með
fulltingi einstaklinga, fyrirtækja
og stofnana. Fjórir einstaklingar
eru í forsvari fyrir fjallamennina,
þeir Ari Trausti Guðmundsson,
Árni Árnason, Hermann Valsson
og Höskuldur Gylfason. Þeir skír-
skota til þess í söfnun sinni að í
þessum ferðum séu einstök tæki-
færi til að efla almenningsíþróttina
fjallgöngu og fræða íslendinga- um
leið um framandi siði, þjóðir og
lönd.
Þess má geta að íslenskir fjalla-
menn hafa þegar klifið háfjöll í
Alaska, Argentínu, Perú og nú
síðast Diran í Pakistan, en það fjall
er 7280 metrar að hæð.
-JH
Forsvarsmenn fjallamannanna, Hermann Valsson, Árni Árnason,
Hö skuldur Gylfason og Ari Trausti Guðmundsson.
DV-mynd GVA
Á þessu korti má sjá hvar fjöllin tvö eru sem íslendingarnir ætla að reyna
við á næstu árum. Kongur Tiupe í vesturhluta Kína, í grennd við Sovétrík-
in og Sisapangma, í Tíbet, rétt við fjallið Everest, hið hæsta á jörðinni.
Tindurinn Kongur Tiupe sem ætlunin er að klífa á næsta ári. Hann er 7595 metra hár.
Félagsmálastjóri
Laustertil umsóknarstarf félagsmálastjóra hjá Hafnar-
fjarðarbæ. Um er að ræða tímabundna ráðningu.'Laun
skv. samningi við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir bæjarritari og
félagsmálastjóri.
Umsóknir um starfið, er greini aldur, menntun og fyrri
störf, skal senda skrifstofu minni að Strandgötu 6,
Hafnarfirði, fyrir 4. mars nk.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
símar 681722 og 38125
j Nýjar myndir í hverri viku!
IMftNSKUft n
nmHcxtmx.
Myndbandaleiga J.B.
Nóatúni 17, sími 23670.
Opið alla daga kl. 14.00-23.00.
THE DOUBLE
TROUBLE
Allar vinsælustu myndirnar á markaðnum í
dag fást hjá okkur. Erum með Falcon Crest.
Nýr þáttur vikulega. Tilboðsverð á þáttum
1-96.