Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Síða 21
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
• í gær afhenti Þórður Þorkelsson hjá Afreksmannasjóði ISÍ landsliðsmönnunum átta sem leika hér heima og í Sviss 35 þúsund krónur hverjum. Á
myndinni tekur Guðmundur Guðmundsson við sínum hlut en hinirfylgjast með. DV-mynd GVA.
Átta landsliðsmenn fengu 35 þúsund krónur
í gœr úthlutaði Afreksmannasjóð-
ur ISÍ 280 þúsundum króna til þeirra
átta landsliðsmanna sem leika hér á
landi og fara sem leikmenn með ís-
lenska landsliðinu á HM í Sviss. Hver
leikmaður fékk 35 þúsund krónur og
er þetta vilji til að styrkja þá leik-
menn íslenska liðsins sem lagt hafa
á sig ómælda vinnu við undirbúning
íslenska landsliðsins fyrir HM.
Réttmæti þessarar úthlutunar vefst
íyrir mönnum og ýmsir aðilar sem
blaðið ræddi við í gær vildu meina
að þeir leikmenn sem leika hér heima
en komust ekki í lokahópinn hefðu
einnig átt að fá úthlutun. Einnig
voru þeir sem héldu því fram að þeir
leikmenn sem leika erlendis hefðu
átt að fá peninga fyrir þann tima sem
þeir hafa verið viðloðandi undir-
búning íslenska liðsins.
-SK
Ellert hættir eftir
—Ellert Vigf ússon ætlar að snúa sér að veiðum á grásleppu, sel og þorski og flytjast
til Stykkishólms. „ Auðvitað verður erfitt að hætta/’ segir Ellert
„Það er rétt að ég hef ákveðið að
hætta alveg í handknattleiknum eftir
heimsmeistarakeppnina í Sviss. Ég
flyt þá búferlum til Stykkishólms og
ætla að hella mér út í útgerð," sagði
landsliðsmarkvörðurinn Ellert Vig-
fússon í samtali við DV í gærkvöldi.
„Ég spila í byrjun mai með lög-
regluliðinu á Norðurlandamóti lög-
reglumanna og það verða mínir síð-
ustu leikir. Auðvitað verður erfitt
að hætta en það er ekki um annað
FÁ100 ÞÓS. FYR
IR SIGUR Á HM
Ef íslenska liðið verður heims-
meistari í handknattleik í Sviss fær
hver leikmaður liðsins 100 þúsund
krónur frá Handknattleikssamband-
Sjónvarpskóngurinn
borgar Portsmouth
Hinn nýi eigandi ítalska stórliðsins
AC Milano, sjónvarpskóngurinn Sil-
vio Berlusconi, skýrði forráðamönn-
um Portsmouth frá því í gær að hann
mundi senda enska félaginu nú í
vikunni fjórar milljónir króna (150
milljónir líra) upp í skuldina vegna
kaupa á Mark Hateley, miðherja
enska landsliðsins. Þessi upphæð féll
í gjalddaga í desember. Þá fullvissaði
nýi eigandinn Portsmouth mennina
um að næstu greiðslur yrðu greiddar
á gjalddaga. AC Milano keypti Hate-
UMFNsigraði
Þau leiðu mistök áttu sér stað á
íþróttasíðunni í gær að sagt var að
ÍBK hefði unnið UMFN í leik liðanna
í 1. deild í kvennakörfu um síðustu
helgi en hið rétta er að það var Njarð-
vík sem sigraði, 42-37.
ley á uni 60 milljónir króna sumarið
1984. Silvio Berlusconi tók við
stjórninni hjá AC Milano í gær rétt
eftir að borgararéttur í Milano hafði
lagt blessum sína á tilboð Berlusconi
í félagið. Hann tryggði sér 51%
hlutabréfa í félaginu og greiddi fyrir
þau sex milljarða líra -135 milljónir
íslenskar. Fyrir kaupin hafði félagið
ítalska rambað á barmi gjaldþrots
en nýi eigandinn, sem rekur stærstu
sjónvarpsstöð Ítalíu, mun nú greiða
úr fjórmálaflækjum þess.
Af Hateley er það að frétta að
hálskirtlarnir verða teknir úr honum
nú á föstudag og er reiknað með að
hann geti ekki leikið næstu vikurn-
ar. Missir meðal annars af landsleik
Englands í ísrael í næstu viku af
þeim ástæðum. hsím
inu. Leikmenn íslenska liðsins fá
einnig 100 þúsund krónur hver ef ís-
lenska liðið hreppir annað eða þriðja
sætið.
Auðvitað er það hámark bjartsýn-
innar að ætla íslenska liðinu verð-
launasæti í heimsmeistarakeppninni
í Sviss og því engar líkur á að til
þess komi að HSÍ þurfi að punga út
tæpum tveimur milljónum í „verð-
launafé“ landsliðsmönnum okkar til
handa að keppninni lokinní. En þar
með er ekki öll sagan sögð. Leik-
■nnenn íslenska liðsins fá nefnilega 50
þúsund krónur hver ef íslenska liðið
hafnar í 4., 5., 6. eða 7. sæti. Vissulega
einnig litlir möguleikar en þó smá-
von. Svo gæti farið að 7. sætið á HM
í Sviss gæfi sæti ú næstu ólympíu-
leikum sem þýðir að ef svo ólíklega
skyldi fara að íslenska liðið hafnaði
í 7. sæti og Júgóslavar, núverandi
ólympíumeistarar, í einu af sex efstu
sætunum hefði íslenska liðið tryggt
sér sæti á næstu ólympíuleikum í
Kóreu. Ólympíumeistararnir fara
sjálfkrafa á næstu ólympíuleika.
Það skal tekið fram að ef íslenska
liðið hafnar aftar en í 7. sæti fá leik-
mennirnir engan bónus fyrir frammi-
stöðuna. -SK.
herjólfur
• Tómas Pálsson, Eyjamaður, leikur
með Selfyssingum i sumar.
að ræða. Laun mín hjá lögreglunni
voru mjög léleg og ég hef sagt upp.
Ég ætla út í trilluútgerð með félögum
mínum og munum við stunda veið-
arnar á 5 tonna trillu við Breiða-
fjarðareyjar en þar var ég í sveit í
tíu sumur. Ég reikna með að við
munum aðallega veiða grásleppu og
lunda en einnig sel og þorsk. Það er
alveg ólýsanleg tiifinning að stunda
þessar veiðar og ég hlakka mikið til
að byrja í þessu,“ sagði Ellert Vig-
fússon í gærkvöldi.
Byrjaði 24 ára og hættir þrí-
tugur
Ellert hefur leikið 8 landsleiki
fyrir ísland en hann er 30 ára
gamall. Hann var 24 ára þegar
hann byrjaði að æfa mark-
vörslu hjá Víkingi undir stjórn
Bogdans. í vetur lék hann í
marki Vals og því er þetta mikil
blóðtaka fyrir Valsmenn en' Ell-
ert átti stóran þátt í góðu gengi
V alsmanna á íslandsmótinu.
Séeftir handboltanum
„Ég á örugglega eftir að sjá mikið
eftir handboltanum og félögum mín-
um þar. En laun mín hjá lögreglunni
voru einfaldlega það léleg að mér var
fyrirmunað að lifa af þeim. Það er
aðalástæðan fyrir því að ég hætti
eftir HM í Sviss,“ sagði Ellert enn-
fremur og verður mikil eftirsjá að
þessum skemmtilega markverði.
-SK
l:4taphjá
körlunum
íslenska karlalandsliðið i badmin-
ton tapaði i gær fyrir því austurriska
með einum vinningi gegn Qórum.
Landsleikurinn var liður i heims-
meistaramótinu i liðakeppni, Thom-
as Cup.
Tómastil
Selfoss
Frá Sveini Ármanni Sigurðssyni,
fréttaritara DV á Selfossi:
Tómas Pálsson, hinn snjalli framl-
ínumaður Vestmannaeyinga, á und-
anförnum árum hefiir tilkynnt fé-
lagaskipti yfir í lið Selfoss er leikur
í 2. deildinni næsta sumar.
Ekki er að efa að koma Tómasar
verður liðinu mikill stvrkur en liðið
hefur einnig orðið sér úti um nýjan
þjálfara. Það er Sigurður Halldórs-
son en hann hefur væntanlega störf
hjá félaginu í næstu viku. -fros
ÍBK vann
Selfoss
— í gærkvöldi
Frá Sveini Ármanni Sigurðssyni,
fréttaritara DV á Selfossi:
ÍBK vann Selfoss í leik liðanna í
3. deild handboltans á Selfossi í
gærkvöldi, 14-13, eftir að staðan
hafði verið 7-7 í hálfleik.
Leikurinn einkenndist af mjög
sterkum varnarleik og hálfbitlausum
sóknarleik eins og markatalan sýnir.
Steindór Gunnarsson varð marka-
hæstur hjá Selfossi með fimm mörk
og Sigurjón Bjarnason skoraði þrjú
mörk.
Hjá ÍBK skoruðu Freyr Sverrisson
og Theodór Sigurðsson báðir fjögur
mörk. -fros
Sovétríkjunum
— íkvennafíokknum
íbadminton
íslensku stúlkurnar töpuðu illa í
fyrstu viöureign sinni í heimsmeist-
arakeppni liða ibadminton sem hófst
i Mulheim í Vestur-Þýskalandi í gær.
Það var gegn Sovétríkjunum. Tap í
öllum leikjunum fimm.
ísland er í C-riðli í kvennakeppn-
inni, Uber cup, og þar eru einnig
Holland, Frakkland og Noregur, auk
íslands og Sovétríkjanna. í gær sigr-
aði Noregur Frakkland, 4-1.
I karlakeppninni - Thomas cup -
er ísland í B-riðli ásamt Svíþjóð,
Austurríki, Frakklandi og Zambíu. I
gær vann Danmörk Mauritius, 6-0,
í A-riðli og Wales vann Finnland,
4-1, í D-riðli. Keppendur íslands í
Mulheim eru Þórdís Edwald, Elísa-
bet Þórðardóttir, Inga Kjartansdótt-
ir og Kristín Kristjánsdóttir, allar
TBR, Ása Pálsdóttir, Akranesi,
Guðmundur Adolfsson, Árni Hall-
grímsson, Þorsteinn Hængsson, Jó-
hann Kjartansson, Broddi Kristjáns-
son og Sigfús Ægir Árnason, allir
TBR. Sá síðastnefndi er einnig farar-
stjóri en landsliðsþjálfari er Helgi
Magnússon. _hsím
•• ■ ~ «- r, i sMSrawKÍ