Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 31
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 31 Sandkorn Sandkorn - /V '■■■. WmN Markúsartorg Feneyingar hafa löngum verið stoltir af sínu Mark- úsartorgi. Þar er enda mikið mannlíf og ennþá meira fuglalíf. Á torginu því arna er nefnilega allt vaðandi í dúfum sem mann- fólkið hefur gaman af að gleðja með brauðmolum og öðru ætilegu sem til fellur. En það geta fleiri verið góðir með sig en Feneying- ar. í innigarðinum í nýja útvarpshúsinu í Reykjavík er hugguleg tjörn. I fram- tíðinni er fyrirhugað að í hana streymi sitrandi vatn. I kringum tjörnina er rúmgott torg. Það hefur þegar verið skírt Markús- artorg eftir okkar ágæta útvarpsstjóra. Engum sög- um fer hins vegar af fugla- lífi á Markúsartorginu ís- lenska. Viðbygging Vitið þið hvað nýja við- byggingin við Hótel Sögu er kölluð? Auðvitað framhaldssaga. Innheimta lendinga- gjalda Eftirfarandi símtal átti sér stað á Borgarspítalan- umnýlega: „Þetta er hjá flugmála- stjóra, við erum að inn- heimta lendingagjöld af þyrluflugvellinum. Þau hafa ekki verið greidd." „Hva, ég kannast ekkert við það,“ svaraði Jóhannes Pálmason, framkvæmda- stjóri Borgarspítalans. „Eg hef aldrei heyrt neitt um þetta.“ „Jú, þið skuldið 800 þús- und krónur í lendinga- gjöld,“ sagði röddin í sím- anum ákveðin. „Það kemur ekki til mála að við greiðum það!“ sagði framkvæmdastjórinn og var nú orðinn æstur. „Jú, þið verðið að greiða þetta, - og svo eru komnir dráttarvextir á þessi gjöld...“ „Dráttarvextir!" æpti framkvæmdastjórinn. „Ég hef nú bara aldrei heyrt annað eins.“ Það skal tekið fram að ofangreint samtal átti sér stað á eins konar „candid camera“, sem var liður í skemmtiatriðum á árshá- tíð Borgarspítalans. Það voru starfsmenn röntgen- deildarinnar sem sáu um grinið. Tekin voru upp símtöl við ýmsa á spítalan- um og þeim síðan varpað út yfir árshátíðargestina. Á meðan var ásjóna viðkom- andi sýnd á stórum skermi. Vakti þetta sérstaka kátínu meðal árshátíðargesta, - og fórnarlömbin tóku þessu sérstaklega vel. Högni hrekk- vísí? Það er með ólíkindum hvað fólki getur dottið í hug, þegar það ætlar að skrá ný fyrirtæki í firma- skrá. í Lögbirtingi rákumst við á tilkynningu um einka- fyrirtæki undir nafninu „Kaldur köttur.“ Viðfangsefni þessa nýja firma verður ekki innflutn- ingur á kattamat eins og einhver gæti haldið, heldur verslun og rekstur hús- eigna ásamt lánastarfsemi. Vafalaust eiga einhveijir eftir að eiga viðskipti við köttinn kalda. Deilt um inn- flutning Eins og DV greindi ræki- lega frá í vikunni varð mikið uppistand á Eskifirði á mánudaginn vegna þriggja breskra stúlkna sem komu til landsins með Óskari Halldórssyni RE- 157. Höfðu einhveijir illan bifur á stúlkunum og töldu þær stunda einkarekstur sér til framfæris. Aðrir kváðust vera meðmæltir innflutningi sem þessum. Gerðu einhveijir bæjarbúa það að tillögu sinni að lúðrasveit yrði á hafnar- bakkanum þegar skipið legðist að. Það hefði líka verið nær að veita stúlkun- um slíkar móttökur því þær hafa verið meðhöndlaðar eins og erlendir þjóðhöfð- ingjar frá því þær komu til landsins. Og svo var það hass- hundurinn. Hann hafði verið keyrður úr Reykjavík til að þefa í skipinu. Þegar hann kom um borð fór hann sem logi um akur í nokkrar mínútur. En þá vildi ekki betur til en svo að hann velti um dollu með rauðri málningu. Þar með var frekari leit úr sögunni því þefskyn hundsins var í núlli og hann þar að auki útsniffaður eftir málning- una. Svo mun seppi hafa verið orðinn ruglaður að hann sveif á gamlan teppis- bút sem hafði legið um árabil á Eskifjarðarbryggj- unni, beit hann og klóraði eins og hann hefði að geyma tíu tonn af hassi. Þar með þótti öruggara að færa hvutta af vettvangi. Umsjón: Jóhanna S. Sig- þórsdóttir. Menning Menning Menning Freyvangur: Kviksandur Eg er dópisti Kviksandur (A Hateful of Rain). Sýningarstaöur: Freyvangur (um 16 km frá Akureyri). Leikstjóri: Þráinn Karlsson. Höfundur: Michael V. Gazzo. Þýðandi: Ásgeir Hjartarson. Lýsing: Halldór Sigurgeirsson. Hönnun leikmyndar: Þr'áinn Karlsson. Aðalhlutverk: Leifur Guðmundsson, Stef- án Guölaugsson, Anna Ringsted og Jóhann Jóhannsson. Frumsýnt 14. febrúar. Leikritið Kviksandur er að mínu mati góð skemmtun þótt á stundum sé það svolítið langdregið. Leikur er ágætur. Sá sem leikur best er Jóhann Jóhannsson. Þetta er ákaflega dramatískt leikrit, alvarlegs eðlis, en kímnin er aldrei langt undan. Það á tvímælalaust erindi til allra. Það er um eiturlyf og hvernig þau eyði- leggja einstaklinga, fjölskyldubönd og - sjálft lífið. Kviksandur var fyrst sýndur i Lyceum leikhúsinu í New York 9. nóvember 1955. Það er því búið að vera í 30 ár á fjölunum og þolir árin vel; boðskapurinn stenst tímans tönn og rúmlega það. Dópið er miklu meira vandamál nú en fyrir þrjátíu árum. Leikurinn gerist í gamalli íbúð í suðausturhluta New York. Leik- myndin er sú sama allan tímann - íbúðin - ekki farið út fyrir hússins dyr. í íbúðinni búa ungu hjónin, Jonni Pope (Stefán Guðlaugsson) og Celia Pope (Anna Ringsted). Bróðir- inn, Pole Pope (Jóhann Jóhannsson), er þriðja hjólið, leigir hjá þeim. Leikritið hefst á því að pabbi þeirra Pope-bræðra, Jón gamli Pope, er kominn til stórborgarinnar. Hann hefur ekki séð synina í áraraðir og er í heimsókn hjá Jonna og Celiu. Erindið til New York er að fá 2500 dollara hjá syni sínum, Pole Pope. Þrátt fyrir að Jón gamli Pope (Leif- ur Guðmundsson) leiti til Polo um peninga er það Jonni sem er í uppá- haldi. Gamli maðurinn gerir mikið upp á milli bræðranna og hefur alltaf gert. En hann grípur í tómt hjá Polo, engir 2500 dollarar. Hvar eru þeir? Það er Jonni sem er dópistinn - hættur í skóla, rekinn úr vinnu, eiginkonan ófrísk og hjónabandið í rúst. Hann þarf tvær tuttugu dollara spýtingar i handlegginn á dag, hon- um er fjár vant og dópsalinn „Mamma“ er engin góðgerðarstofn- un. Leikararnir, sem allir eru áhuga- leikarar í Leikfélagi Öngulsstaða- hrepps, komast ágætlega frá hlut- verkum sínu, þó misjafnlega, eins og gengur. Jóhann Jóhannsson fannst mér bestur. Þar réð mestu augnaráð, handahreyfingar og raddbeiting. Mikið mæddi á þeim Stefáni og Önnu, ungu hjónunum. Þau skila sínu; helst að mér þætti raddbeiting- in í slakara lagi, ef nefna á eitthvað sem betur mætti fara. Þau virtust eiga í vandræðum með tóninn þegar þau rifust. „Heyrðu, farðu nú ekki að æpa,“ segir Jonni Pope við Celiu. En er það ekki einmitt það sem þarf að gera þegar fólk rífst hressilega. Lýsing er í höndum Halldórs Sigur- geirssonar. Eitthvert óöryggi var á ljósunum í upphafi frumsýningar- innar. Náðist ekki rétta ljósið til að lýsa á sviðið. Þess í stað var salurinn lýstur upp. Það gerðist þrisvar og það fór um salinn. Svona tilheyrir bara frumsýningum, er það ekki? Leikstjóri Kviksands er Þráinn Karlsson, margreyndur leikari hjá Leikfélagi Akureyrar. Honum hefur tekist vel upp með leikhópinn og fékk hann verðskuldað lófaklapp í lokin. „Ég er dópisti." „Hver spýtti í þig í gærkvöldi?" „Greyið mitt, þegiðu! Þetta er bara að verða kækur hjá þér.“ „Engill í dulargervi." „Mamma er engin góðgerðarstofnun." - Allt eru þetta setningar sem þið heyrið í Freyvangsleikhúsinu þetta árið. Jón G. Hauksson. „Elskan, það er engin önnur kona, það er morfín. Anna Ringsted og Stefán Guðlaugsson í hlutverkum ungu hjónanna í Kviksandi. DV-mynd: JGH DANSKA SMURBRAUÐIÐ Auðbrekku 32, Löngubrekku megin. Hjá okkur fáið þið ekta danskt smurbrauð, einnig kaffisnittur og kokkteilsnittur. Uppl. og pantanir i sima 45633. Opið frá kl. 10-20 alla daga. ATH. Sendum heim ef -óskað er. Brunamálastofnun ríkisins auglýsir starf eftirlitsmanns eldvarna hjá stofnuninni. Nauðsynlegt erað umsækjandi hafi reynslu og þekk- ingu í byggingarfræði og eldvörnum. Umsóknir skulu berast brunamálastjóra ríkisins, Laugavegi 59,101 Reykjavík, eigi síðar en 5. mars nk. BRUNAMÁLASTJÓRI Þeir sem vildu fá aðstoð við hönnun á Árfellssinnréttingum og handriðum Hönnuðurá Árfellsskilrúmum verður á næstunni á Egilsstöðum og nágrenni vinsamlegast hafi sam- band í sima 84630 eða 28600. IIBVGGINGAVÖRPRI MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR1986 - Sól fýrirtælön I Deildin leitaði rtengdra atvinnu- r«g tilnefndu þeir að þau fyrirtœki, sem frábær. 11 fyxir- fengu flestar tilnefningar ' verður fjöldi fyrirtækja F nef ndur i þessu sambandi.^ 11, sem bezt komu útJ Iru: Smjörlíki — Sól hf., Hampiðjan fhf., Eimskipafélag íslands hf., I Hilda hf., Hagkaup hf., Hekla hf., IBM á tslandi, B.M. Vallá hf, Mjólk- i ursamsalan, Plastprent hf. og Iðn-^ ^aðarbankinn hf. Samkvæmt upplý: um viðskiptadeildar Háskóla í víða fram hjá mönnum £ b^ti! nein frábærtad0Hci á ÍslanM^Hft^n^J^jKÍRnerkingu. frekar mættnanuimgóð fyrirtæki. Meðal þeirra raka, sem þátttakend- Rétt er að benda á, að 13 bílstjórar frá okkur eru í fullu starfi hjá þessum fyrirmyndar fyrirtækjum. Auk þess sem önnur nota bíla frá okkur, hluta úr degi. Þeir annast „skutl" í banka og toll, sölu á vöru úr bílum, útkeyrslu í verslanir og heim- keyrslu úr vöruafgreiðslum. ssnDiBiLHSTOÐin ir/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.