Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Page 32
32 DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 Guumundur Halldórsson, fv. útsölu- stjóri, lést 13. febrúar sl. Hann fæd- dist í Reykjavík 9. ágúst árið 1900. Foreldrar hans voru Andrea Katrín Guðmundsdóttir og Halldór Högna- son. Guðmundur réðst ungur til starfa við Áfengisverslun rikisins og var þar mjög lengi útsölustjóri eða allt til ársins 1969. Hann kvæntist Agústu Jóhannesdóttur, en hún lést árið 1981. Þau hjónin ættleiddu tvö börn. Útför Guðmundar verður gerð frá Háteigskirkju í dag kl. 15. Útför Gunnlaugs Halldórssonar arki- tekts verður gerð frá Bessastaða- kirkju föstudaginn 21. febrúar nk. kl. 13.30. Óskar S. Jónsson, Njálsgötu 49, verður jarðsunginn frá Nýju kapell- unni 'í Fossvogi föstudaginn 21. fe- brúarkl. 15. Steinunn Lára Jónsdóttir, fædd 12.7 1900 í Vatnsfjarðarseli, Reykjafjarð- arhreppi, N-lsafjarðarsýslu, lést 20.2 1986. Hún verður jarðsungin frá Kálfholtskirkju föstudaginn 21.2 kl. 14. Ingibjörg Kjartansdóttir, Grenimel 15, lést í Borgarspítalanum 18. febrú- ar. Eggert Eggertsson frá Hellissandi, Maríubakka 6, Reykjavík, lést 18. febrúar í Borgarspítalanum. Jóhann Ólason, Hjarðarholti, andað- ist í sjúkrahúsi Húsavíkur miðviku- daginn 19. febrúar. Minningarathöfn um Guðlaugu Pét- ursdóttur frá Ingjaldshóli, Vestur- vallagötu 1, Reykjavík, verður í Dómkirkjunni föstudaginn 21. febrú- ar kl. 10.30. Útförin fer fram frá Hellnakirkju, Snæfellsnesi, laugar- daginn 22. febrúar kl. 14. Bílferð verður frá BSÍ kl. 8.00. Ingunn Ólafsdóttir, Álfaskeiði 14, verður jarðsungin frá Fossvogskap- ellu föstudaginn 21. febrúar kl. 10.30. Gústaf Línberg Kristjánsson múrara- meistari, Kópavogsbraut 73, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 21. febrúarkl. 15. Aki Gíslason bókasafnsfræðingur verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni föstudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Ýmislegt Kirkjufélag Digranesprestakalls heldur aðalfund sinn í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30 í safnaðarheim- ilinu. Að loknum aðalfundarstörfum mun Salbjörg Óskarsdóttir sýna lit- skyggnur frá ferðum sínum erlendis. Kaffiveitingar. Aðalfundur Kattavinafélags ís- lands verður haldinn að Hallveigarstöðum sunnudaginn 2. mars og hefst kl. 14. Félagsvist Húnvetningaféiags- ins verður spiluð laugardaginn 22. fe- brúar kl. 14 í félagsheimilinu Skeif- unni 17. Allt spilafólk velkomið meðan húsrúm leyfir. Kaffiveitingar. Frjalst ohaö dagblaö PANTANIR SÍMI13010 V/SA HARGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. HVERFI AFGREKJSLA Þverhohi 11 - Sími 27022 Bræðraborgarstíg - Holtsgötu Skipasund Hæðargarð Hólmgarð Álfhelma 26-74 Nauðungaruppboð á bifreiðunum L-798 Scout 1972 og L-1790, Opel Kadett árg. 1977, Pött- inger sláttujDeytara, Zerowatt þvottavél og Pioneer hljómflutningstækjum fer fram að kröfu lögmannanna Tómasar Þorvaldssonar, Gísla B. Garðarssonar og Sigríðar Thorlacius við lögreglustöðina á Hvolsvelli fimmtudaginn 27. febrúar 1986 og hefst kl. 14.00. _____________Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu. I gærkvöldi___________I gærkvöldi Kristín Anna Sverrisdóttir sjúkraliði: Vil ekki giápa mikið á sjónvarp Ég reyni yfirleitt að horfa á fréttir en það tekst alls ekki alltaf að ná þeim öllum. Mér líkar nýja fyrir- komulagið mjög vel, þetta er skemmtifega upp byggt. Eftir frétt- ir í gær var dagskrárliður um Elvis, sem ég sat ekki föst yfir, enda hvorki Elvis-aðdáandi né svona átrúnaðargoðsdýrkandi yfir höfuð. Það fór um mig að sjá hvað hægt er að trúa á einn mann. Þátturinn Á líðandi stund stend- ur alltaf fyrir sínu og verður sífellt betri og betri eftir því sem fólkið verður öruggara. Nú, Hótel er ágætis afþreying sem ágætt er að horfa á en maður getur líka alveg sleppt þeim þætti án söknuðar. Þetta er ekkert síðri þáttur en Dallas sem ég horfði reyndar sjaldan á. Ég heyrði ekki svo mikið sem bofs i útvarpinu í gær og hlusta yfirleitt lítið á það. Þó finnst mér voða notalegt á fimmtudagskvöld- mjög að hlusta á leikritíð eða rás tvö sem er með mjög góða daskrá á þeim kvöldum. Sjónvarpið fer batnandi, sérstaklega hvað ýmsa skemmtidagskrá varðar og það er eiginlega miður því maður vill hafa meiri tíma fyrir sjálfan sig. Að því leyti var kannski ekki svo slæmt að hafa sjónvarpið lélegt. Annars hefur sjónvarpsáhugi minnkað á mínu heimili, það er bara slökkt ef ekki er eitthvað sem vekur áhuga. Ég er á móti því að öll kvöldstundin sem fjölskyldan hefur saman fari í sjónvarpsgláp. En við horfum alltaf á fréttir, allavega maðurinn minn. Fimmtudagstónleikar Sinfóníu- hljómsveitar íslands Fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20.30 í Háskólabíói stjórnar Klauspeter Seibel flut.ningi á sinfóníu nr. 1 eftir Beethoven og Carmina Burana eftir Carl Orff. Klauspeter Seibel hefur Afmæli verið tíður gestur Sinfóníuhljóm- sveitarinnar. Einsöngvarar í Carm- ina Burana eru Sigríður Gröndal, sópran, en hún var fulltrúi íslands á Singer of the world samkeppninni í Cardiff 1983 og stundar nú fram- haldsnám í Hollandi, Júlíus Vífill Ingvarsson, tenór, og Kristinn Sig- mundsson, bariton, sem báðir eru landskunnir fyrir söng sinn, bæði á óperusviði og sjálfstæðum tónleik- um. Kórhlutverkið er flutt af kór íslensku óperunnar, sem vakti mikla hrifningu í flutningi á Requiem eftir Verdi fyrr í vetur. Kórstjóri er sá sami og þá, Peter Locke frá Bret- landi. Einnig tekur þátt í flutningn- um barnakór íslensku óperunnar. Þetta er í þriðja skiptið sem verk Carl Orffs, Carmina Burana, er flutt hér á landi. Það var dr. Robert A. Ottósson sem frumflutti verkið með söngsveitinni Fílharmóníu í Þjóð- leikhúsinu árið 1960 og síðan var það flutt undir stjórn Karsten Andersen árið 1975. Musica Antica í Naustinu i kvöld Dúó Naustsins, þau Hrönn Geir- laugsdóttir og Jónas Þórir, leika ljúf lög fyrir matargesti í kvöld síðan leikur Musica Ántica nokkur mið- aldalög í tilefni tónleika Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Miðaldasnarl eft- ir hljómleika S.í. 95 ára verður á morgun, föstudaginn 21. febrúar, Kristín Sigurðardóttir frá Snæbjarnarstöðum í Fnjóskadal, Furugerði 1 hér í bænum. Hún ætlar að taka á móti gestum á heimili sínu á afmæhsdaginn eftir kl. 19.30. 90 ára afmæli á í dag, 20. febrúar, Skemmtikvöld á Hótel Hvols- velli Skemmtanalíf á Suðurlandi hefur ekki verið mjög fjölbreytt fram til þessa ef undan eru skilin hin lands- frægu sveitaböll. Nú er hins vegar von á aukinni fjölbreytni því eigend- ur Hótel Hvolsvallar hafa ákveðið að efna til sérstakra skemmtikvölda fyrir íbúa á staðnum og nærsveita- menn. Fyrsta skemmtikvöldið af þessu tagi verður nk. föstudagskvöld en þá skemmta hinn þjóðkunni söngvari og hestamaður, Sigurður Ólafsson og tónskáldið Skúli Hall- dórsson. Skemmtikvöldið hefst með borðhaldi kl. 20 en boðið verður upp á þríréttaðan veislumat. Dúettinn úr Reykjavík leikur rólega tónlist á meðan á borðhaldi stendur og að loknum skemmtiatriðum verður dansað til kl. 02. Á Hótel Hvolsvelli eru 34 eins og tveggja manna her- bergi. Mjög góð íiðstaða er fyrir gesti, m.a. gufubað, sóllampar' og nuddpottur. Vistlegur blómaskáli er á staðnum. Hótel Hvolsvöllur er upplagður staður fyrir minni hópa til að halda árshátíðir á. Valkostur fyrir þá sem vilja breyta til og reyna eitthvað nýtt. Starfsmenn Sjallans í yf irheyrslum 90 ára afmæli á í dag, 20. febrúar, Guðlaugur Pálsson kaupmaður á Eyrarbakka. Hann hóf verslunar- störf árið 1915 en tveim árum síðar stofnaði hann verslun sína á Eyrar- bakka, sem hann rekur enn og star- far sjáifur í daglega. Jósef Jónasson á Sólbergi, Tálkna- firði. Hann er fæddur á Hruna í Hrunamannahreppi. Lengst af var hann bóndi á Granda í Bakkadal í Arnarfirði. Hann er nú á heimili dóttur sinnar og tengdasonar á Sól- bergi. Kona hans, Guðrún Magnús- dóttir, lést fyrir nokkrum árum. Sigurbjörn Friðbjörnsson varð 80 ára þann 19. febrúar sl. Hann dvelur nú á sjúkrahúsinu á Húsavík. Hann mun taka á móti gestum á Hótel Húsavík laugardaginn 22. febrúarfrá kl. 15-18. Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni DV á Akureyri: Fast að 10 starfsmenn veitinga- hússins Sjallans hafa verið í miklum yfirheyrslun hjá rannsóknarlögregl- unni á Akureyri. Þeirra á meðal eru nokkrir þjónar, dyraverðir og fram- kvæmdastjórinn. Yfirheyrslurnar eru meðal annars vegna gruns um sölu á smygluðu kjöti og víni í hús- inu. Enginn hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald. „Við erum og höfum verið að rannsaka ákveðna þætti í starfsemi Sjallans, meira vil ég ekki segja,“ sagði Daníel Snorrason, rannsóknar- lögreglumaður á Akureyri, í gær en hann stjórnar rannsókninni. - Út á hvað gengur rannsóknir.? „Ég vil ekki tjá mig um það, rann- sókn stendur yfir,“ sagði Daníel. Það mun hafa verið undir kvöld- mat í fyrradag sem lögreglan lét til skarar skríða og færði nokkra af starfsmönnunum til yfirheyrslu. Framkvæmdastjórinn var til dæmis yfirheyrður allt kvöldið og nóttina. Fleiri voru yfirheyrðir i gær. „Ég vissi ekki fyrr en bankað v^r upp á heima hjá mér og spurt hvort ég gæti komið upp á stöð. Það var engin ástæða gefin upp,“ sagði einn hinna yfirheyrðu við DV í gærkvöldi. Astæðan fyrir því að dyraverðir hafa verið yfirheyrðir er sú að lög- regluna grunar að rétt tala aðgöngu- miða hafi ekki alltaf verið gefin upp og lög um söluskatt því brotin. Elías Elíasson, bæjarfótgeti á Akureyri, sagði í gærkvöldi að eng- inn hefði verið hnepptur í gæsluvarðhald og engin krafa komið um slíkt. - Kærði einhver í þessu máli? „Nei, það hefur enginn kært,“ sagði Elías. Samkvæmt heimildum DV hafði lögreglan undirbúið yfirheyrslurnar í nokkurn tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.