Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Side 34
34
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Dægradvöl Dægradvöl Dægradvöl Dægradvöl
Þetta eru tröllsleg farartæki sem á þessum búnaði eru vart boðleg í mannabyggðum. Þennan jeppa á Birgir Brynjólfsson, öðru nafni Fjalla-Eyvindur.
DV-myndir PK
Við erum ekki spólkarlar
- DV í klónum á Fjalla-Eyvindi og félögum hans
„Aldrei hefði mér dottið í hug að
jöklaferðir voru svona,“ sagði félagi
minn. „Við vorum að mala þetta á
fimm kílómetra hraða í áttina að
Bárðarbungu, hlustuðum á Dolly
Parton, átum kjúklinga og leið eins
og við værum í Texas.“
Það er Fjalla-Eyvindur sem er að
segja frá. Hann er mikilúðlegur að
sjá, hárprúður og gengur jafnan í
gæruskinni. í þjóðskrá er hann
nefndur Birgir Brynjólfsson en eftir
aldarfjórðungs feril í fjallaferðum
hefur skírnarnafnið vikið fyrir öðru
og betra.
„Það er langt síðan ég hætti að
leiðrétta þetta með nafnið,“ segir
Birgir. „Að vísu er svo komið að
margir halda að ég heiti í raun og
veru Eyvindur en það er ekki svo
alvarlegt."
Viðurnefni
DV átti fund með nokkrum jeppa-
mönnum fyrir skömmu. Þar voru,
auk Fjalla-Eyvindar, Óli trukkur og
hjónin Þorgrímur St. Árnason og
Ásdís Óskarsdóttir. Það er mjög
algengt í hópi jeppamanna að félag-
amir fái viðurnefni sem þeir losna
ekki við það sem eftir er ævinnar.
„Þetta er eins og i litlum sjávarpláss-
um úti á landi. Þar þekkist ekki
nokkur maður með réttu nafni,“
segir Óli tmkkur sem reyndar heitir
Ólafur Ólafsson. Auknefnið fékk
hann eftir að hafa gert við vörubíla
árum saman.
Svipaða sögu er að segja af málfari
þessa hóps manna. Þeir sem ekki eru
lærðir í jeppafræðum skilja oft fátt
eitt í samræðum þeirra þótt hægt sé
að geta sér þess til að um íslensku
muni vera að ræða. „Þetta sérkenni-
lega málfar stafar af því hvað þessi
grein er sérhæfð," segir Birgir.
Trúarbrögð
Fjallamennska Birgis stafar þó
ekki af flótta undan yfirvöldunum
og illa fengin hross koma ekki við
sögu á ferli hans. Farartækið er
sérútbúinn jeppi. „Jeppamennskan
er mér trúarbrögð," segir Birgir.
Þannig hefur það verið allt frá því
hann eignaðist fyrsta jeppann um
1960. Það var Willys árgerð 1942.
Það er viðkvæði jeppamanna að
hafi bakterían einu sinni heltekið
mann þá losni hann aldrei við hana
aftur. Þess eru mörg dæmi að þeir
hafi selt gripinn, svarið þess dýra
eiða að byrja aldrei aftur og verið
svo farnir að spá í nýjan jeppa eftir
nokkra mánuði.
Þau Þorgrímur og Ásdís eiga t.d.
ekki jeppa þessa stundina vegna þess
að þau eru að byggja. Þau eru þó
ákveðin í að eignast nýjan um leið
og grynnka fer á byggingarskuldun-
um. Jeppaeignin er ákafleg kostnað-
arsöm og tímafrek. Raunar verður
vel búinn jeppi seint metinn til rétts
vérðs því að baki býr jafnan ómæld
vinna sem oft er betra að meta í árum
en vinnustundum.
Engir landböðlar
Framganga jeppaeigenda í íþrótt
sinni hefur verið mörgum þyrnir í
augum. Einkum eru það náttúru-
verndarmenn sem hefur þótt nóg um .
að sjá sundurtættar brekkur og út-
spólað graslendi. „Við eigum okkar
bernskubrek," segir Ólafur Ólafsson.
Hann er eigandi eins frægasta jepp-
ans hér á landi. Bíllinn, sem er
Rússajeppi, gengur undir nafninu
ívan Kassavisky.
„Núorðið eru ferðalögin aðalatrið-
ið í stað þess að búa til eitthvert
tæki til að spóla á. Spólkarlarnir eru
á allt öðru sviði en við,“ segir Ólafur.
Birgir hefur líka sitt til málanna
að leggja: „Við lítum á okkur sem
náttúruverndarmenn en ekki land-
böðla eins og oft er sagt. Við höfum
gaman af að ferðast um landið og
viljum njóta náttúrunnar án þess að
vera alltaf á flótta undan einhverjum
náttúruköllum."
4X4
Jeppaeigendur hafa með sér sam-
tök sem þeir kalla 4X4. Nafnið þarf
ekki að skýra fyrir áhugamönnum í
greininni. Félagið er jöfnum höndum
eins konar ferðaklúbbur og hags-
munasamtök. Félagarnir eru vel á
þriðja hundrað. Fundir eru haldnir
reglulega þar sem um hundrað
manns mæta að öllum jafnaði. Þar
eru málin rædd. Einnig er efnt til
sýninga á Ijósmyndum og mynd-
böndum. Þar eru jeppamir auðvitað
í aðalhlutverki.
Myndataka er ein af hliðargreinum
jeppadellunnar. í ferðunum gefst oft
gott tækifæri til að ná góðum lands-
lagsmyndum við fjölbreytilegar að-
stæður. Jepparnir eru þá oftast ekki
langt undan og þykja fara vel við
vetrarstemmningar á hálendinu.
í félagi jeppaeigenda er kynslóða-
ívan Kassavisky er með frægari jeppum hér á landi. Ólafur Ólafsson, öðru nafni Óli trukkur, var tvö ár að breyta
freðmýratröllinu i þetta horf. Að nafninu til er þetta árgerð 1967 en nú er fátt eitt eftir úr upphaflega bilnum.