Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Síða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Síða 35
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986 35 Dægradvöl Dægradvöl Dægradvöl Dægradvöl bil að sögn óþekkt. Þangað sækja ungir menn sem eru að klöngrast ýfir fyrstu og erfiðustu hjallana í íþróttinni. Þar eru gamlir jaxlar sem hafa verið að brölta þetta árum og áratugum saman. Og þar er enginn stéttarmunur. I félaginu eru bæði verkamenn og skurðlæknar þótt íjöl- mennastir séu þar menn sem hafa atvinnu af að halda bílafiota lands- manna gangandi. Löglegt Meðal þjóðþrifaverka, sem félagið hefur staðið að, er samning reglu- gerðar um útbúnað sérbúinna bif- reiða. Verkið var unnið í samvinnu við Bifreiðaeftirlitið og gjörbreytir stöðu þeirra sem ekki geta án trylli- tækjanna verið. „Áður vorum við alltaf að stelast þetta á bílum sem við vissum að voru ólöglegir,“ segir Birgir. „Núna vitum við hvar við stöndum." Á síðari árum hefur stórum farið í vöxt að jeppaeigendur leggi fyrir sig vetrarferðir um hálendið. Að sögn Birgis er það tvennt sem veldur þess- ari breytingu. Útbúnaður bílanna hefur batnað mikið. Munar þar mest um svokölluð blöðrudekk. Á þeim dekkjum fljóta jepparnir betur á snjó en gangandi maður. Síðan hafa menn lært að ferðast um fjöll og firnindi að vetri til án vandræða, jafnvel á staði þar sem engum kom til hugar að vélknúin tæki ættu eftir að kom- ast. Endalaus mokstur „Áður mokuðu menn sér leið inn á hálendið," segir Birgir, „og enn eru til þeir menn sem ekki leggja í há- lendisferðir að vetri af ótta við þenn- an óskaplega mokstur. Við höfum auðvitað skóflur með okkur en það þarf sjaldan að nota þær. Þá fylgdu bílarnir jörðinni í gegnum þunnt og þykkt en nú fljóta þeir ofan á.“ Síðan kemur það til að um vetur er jafnan vandræðalaust að fá inni í skálunum á hálendinu. „Að sumri til eru útlendingarnir úti um allt,“ segir Birgir. „Það er hver einasti skáli þéttsetinn fram á haust. Þess er sjálf- sagt skammt að bíða að það sama verði uppi á teningnum að vetri til líka.“ Öryggiðfyrir öllu -Það hvetur líka til vetrarferða að jepparnir eru öruggari en þeir voru. Vinnubrögðin við endurbæturnar Hér eru gripirnir í réttu umhverfi. Eigendurnir eru þó svo hallir undir náttúruvernd að þeir þverneituðu að láta fósturjörðina finna fyrir aflinu í vélarhúsunum. ....... Þannig er útlitið í hesthúsinu í Rússanum hjá Ólafi Ólafssyni. Þarhefuröllu verið breytt á vestræna vísu. reyndu einfaldlega að allt sem er illa gert bilar og það getur verið óþægi- legt að sitja í vonskuveðri á fjöllum í biluðum bíl. Núna er slysatíðni hjá okkur í algeru lágmarki. Aftur á móti eimir enn eftir af því í almenn- ingsálitinu að annaðhvort séu bíl- arnir fastir eða brotnir." Töluverður keppnisandi Þeir félagar sögðu að nú væru einkum tvö afbrigði af ferðum í mestri tísku. Annars vegar eru það rólegar fjölskylduferðir. Hins vegar eru það ævintýralegri ferðir þar sem képpni milli manna er meiri. „Eins og í öllum öðrum íþróttum, því íþrótt er þetta, er keppnisandi töluverður," segir Birgir. „Menn keppa um besta búnaðinn og láta reyna á hæfnina. Samt er samvinna góð milli manna og hjálpsemi mikil. Þess eru jafnvel dæmi að safnað sé fyrir kostnaði við viðgerðir ef illa fer.“ Ómissandi þáttur í fjallaferðunum er matreiðslan. Bæði er það sport út af fyrir sig að matreiða á fjöllum og eins hitt að menn eru oft matarþurfi eftir átök langra daga. Þá þarf á öllu þrekinu að halda og dugar ekki alltaf til. ir á taugarnar. Þetta er eins konar jeppasálfræði." Það er líka til að menn kjósi helst að ferðast einir. Það er auðvitað mun hættulegra en að vera í samfloti með öðrum. Birgir segist hafa gert mikið að því áður fyrr að vera einn á ferð. Nú eru bílarnir búnir öflugum fjar- skiptatækjum og oft einnig miðunar- tækjum á borð við,,Loran C“ þannig að áhættan er minni. Það ræðst nokkuð af manngerðum hvernig menn kjósa að ferðast. Sumir njóta sín ekki nema einir en aðrir telja félagsskapinn ómissandi og sjá enga ástæðu til að fara á fjöll nema í hópi góðra manna. Hættir að týnast Saman eru menn líka öruggir þótt eitthvað komi upp á. „Það fara engar björgunarsveitir það sem við förum,“ segir Birgir hróðugur. „Þess vegna er það viðburður ef það þarf að kalla út björgunarsveit til að leita að okkur. Hins vegar hjálpum við til við leitir eftir þörfum." - En af hverju leggja menn þessa kostnaðarsömu íþrótt fyrir sig? „Það blundar í öllum mönnum að takast á við eitthvað.“ Það er Birgir Þegar búið er að hækka jeppann eins og þarf er orðið vandamál að komast inn. Það er mörgu að sinna ef halda á jeppanum í sæmilegu horfi. Hér er Fjalla-Eyvindur við tiltekt í hesthúsinu. hafa, að sögn sérfræðinganna, batn- að til muna. „í ferðalögunum eiga menn líf sitt undir því að allt sé í góðu lagi,“ segir Ólafur. „Áður var meira um fúsk en kröfurnar hafa aukist. Þetta er eðlileg þróun. Menn Jeppasálfræði „í dag hef ég mest gaman af að stúdera félagana,“ heldur Birgir áfram. „Það er hellingsgaman að skoða viðbrögð manna við hinar ýmsu aðstæður þegar verulega reyn- sem svarar. „í þessari grein blandast saman áhugamennska um bíla og ferðatnennska, að viðbættum áhuga á að kanna ókunnar slóðir. Þetta er eins og áhugi íjallgöngumanna á að komast á toppinn." -GK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.