Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Blaðsíða 36
36
DV. FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR1986
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Rock með besta vininum og sambýlismanninum, Tom Clark.
Hudson:
Vinimir reyndust tryggir
til síöasta dags
Frægasti AIDS-sjúklingur verald-
arinnar er án efa Rock Hudson og
við andlát hans tóku umræðurnar
um sjúkdóminn nýja stefnu. Eftir
hörð viðbrögð náðu menn áttum,
urðu málefnalegri og blaðaskrif
vörpuðu nýju ljósi á ógnvaldinn -
einkum hættuna á ómanneskjulegri
einangrun sjúklinganna síðustu
ævidagana.
Þegar öllum var orðið ljóst hvað
amaði að Hudson þyrptust að gamlir
vinir til að sýna honum að hann
stæði ekki einn í lífmu. Fyrrum
sambýlismaðurinn, Tom Clark, átt-
aði sig á því hvað olli samvistarslit-
unum tveimur árum áður, flutti til
baka og hélt í höndina á elskhugan-
um allt til loka. Doris Day bað hann
að muna að allt sem hún gæti gert
til þess að létta síðustu stundimar
yrði henni gleði að inna af hendi -
hann væri einn besti vinur sem
nokkur maður á jarðríki gæti eign-
ast. Liz Taylor var annar tryggur
samstarfsmaður og vinur, hann trúði
henni fyrir því hvað amaði að fyrir
tveimur árum og hún sagði ekki
nokkrum manni frá því en hug-
hreysti hann sem best hún gat. Þegar
ffegnin um andlátið barst var hún
stödd í Evrópu og sagan segir að hún
hafi hreinlega fallið saman. Doris tók
fráfall hans einnig mjög nærri sér
og sama má segja um fjölmargar
aðrar stjörnur frá gullnu dögunum í
Hollívúdd. Rock Hudson var vinsæll
maður og segja vinirnir nú að ef til
vill hafi það besta sem fyrir komandi
AIDS-sjúklinga gat komið verið ein-
mitt sú staðreynd að Hudson lést úr
sjúkdómnum. Það hafi flýtt fyrir því
að opna augu manna fyrir hræðileg-
um afleiðingum veirunnar og ýtt
undir frekari rannsóknir á henni -
dýrkeypt reynsla sem svo margt
annað í lífsins táradal.
Myndirnar með Doris Day færðu
þeim báðum heimsfrægð og vináttan
sem þá hófst hélst til endalokanna.
Kona verður skólastjóri
lagaháskólans í Kólumbíu
Barbara Aronstein Black er fyrsta
konan í sögu Bandaríkjanna sem
hlýtur tilnefningu til skólastjóra-
stöðu við þarlendan háskóla. Hún
er fimmtíu og tveggja ára gömul,
þriggja barna móðir og tiltölulega
nýlega komin út á vinnumarkaðinn
eftir margra ára hlé þaðan. Húsmóð-
urstörf og bamauppeldið hafa tekið
mestallan tíma hennar síðustu ára-
tugi.
Tesopi og íslenska í morgunverð
Eiginmaður Barböru er Charles
H. Black, prófessor í stjómskipunar-
rétti við Yaleháskóla. Hann er nú
að láta af störfum vegna aldurs og
mun taka við hlutakennslu við Col-
umbia Law School - undir stjórn
eiginkonunnar. Endaskipti hafa þá
verið höfð á hlutverkaskiptum þeirra
hjóna. Þegar þau kynntust á fimmta
áratugnum var Charles lagaprófess-
or við þennan sama skóla og Barbara
nemandi í deildinni. Eftir giftingu
þeirra fylgdi Barbara eiginmannin-
um til Yale þar sem hann fékk pró-
fessorsstöðu en hún sinnti húsmóð-
urstörfum og bamauppeldi. Núna
li'ggur leiðin til gamla skólans aftur
þar sem hann mun starfa undir
hennar stjóm í framtíðinni.
Charles H. Black er íslendingum
ekki með öllu ókunnur. Hann hefur
árum saman haft mikinn Islands-
áhuga, kom hingað til lands fyrst
árið 1978 og fékk þá óbilandi áhuga
á landi og þjóð sem leitt hefur til
árlegra heimsókna, íslenskunáms og
fyrirlestra hérna á vegum Háskól-
ans. Islenskuna nemur hann af
íinguaphone hljómplötum sem sett-
ar eru af stað á morgnana samtímis
tesopanum. I viðtali við Morgun-
blaðið fyrir tveimur ámm segist
hann muni verða farinn að tala og
skilja íslensku í kringum hundrað
ára aldurinn. Eiginkonan, Barbara,
hefur ekki þennan áhuga á klakan-
um kalda, segir hérna ekki það loft-
slag sem henni hentar og því skipta
þau liði þegar ísland er á dagskránni,
hann fer til Islands og hún til kunn-
ingjaí Englandi.
Barbara fæddist árið 1933, hóf
laganám í Columbia Law School
1950, giftist prófessomum í deildinni,
Charles H. Black, árið 1954, lauk
laganámi ári síðar og fluttist með
eiginmanninum að Yale, eins og áður
sagði. Þar var hún húsmóðir og
Barbara Aronstein Black er fyrsta
konan í Bandaríkjunum til að fá
stöðuveitingu af þessu tagi.
móðir næstu árin en gaf sér þó tíma
.til að lesa sögu við Yale og ljúka
þaðan prófum. Eftir að börnin voru
uppkomin lagði hún fyrir sig nám í
réttarsögu og tekur nú fyrst kvenna
við skólastjórn í lagadeild. Barbara
Aronstein Black þykir einstakt dæmi
um konu sem náð hefur að sameina
hin mismunandi hlutverk sem nú-
tímakonur þurfa að gegna - og náð
langt í sinni sérgrein þrátt fyrir
áralanga íjarveru við gæslu bús og
barna.
'dH. ™"i£''"h
Íyi»Goth
íl>»^,7v '"v'ilJn
•«S*» C, mts?‘-«,S»’V;»»,<"?'»'
" ö' ;; ,, »0 -y
..
'ÍSXnac'wájgýWiiia jjg/jft1
statf as Dean of Law Schoo.
icolumbiáto^ameWoAanu_ __
ESÍ'SSli'S'&r;
Úrklippur sem sýna frásagnir af stöðuveitingur
til handa Barböru í The NewYorkTimes
og Newsweek.