Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1986, Síða 40
FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1986
Ungfrú heimur,
Hólmf ríður Karlsdóttir:
f rá reynslu
sinni í síma
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni,
fréttaritara DV í London:
íbúum Bretlandseyja gefst þessa
dagana kostur á að heyra fegurðar-
drottningu heims, Hólmfríði Karls-
dóttur, segja frá reynslu sinni í
„Miss-World“-keppninni.
Allt sem Bretar þurfa að gera er
að taka upp símtólið og hringja í
ákveðið númer, sem auglýst er í
blöðunum. Á hinum endanum fer í
gang símsvari og af honum spilast
rödd karlmanns, sem fyrir hönd
Communications and Media LTD.
kynnir ungfrú heim. Tekur síðan
við rödd Hólmfríðar, sem staðfestir
að þetta sé hún og segir jafnframt
að hún sé að hvíla sig á sundlaug-
arbarminum eftir góðan sund-
sprett. Hún segir síðan frá aðdrag-
anda þess að hún tók þátt i keppn-
inni um Ungfrú ísland og rekur
söguna i tæpar þrjár mínútur. Þá
segir hún að ef viðkomandi hringi
á morgun þá muni hún segja frá
„Miss World-“ keppninni sjálfri.
Símaþjónusta af þessu tagi er
nokkuð algeng hér í Bretlandi. Til
að mynda er hægt að hringja í tvær
vinsælustu fyrirsætur Bretlands.
Kostnaðurinn við símtalið til
Hólmfríðar er rúmlega ellefu sinn-
um meiri en kostnaður á venjulegu
innanbæjarsímtali.
RAUSTIR
f MENN
25050
| senDiBiiasTöom
LOKI
Síminn er greinilega
orðinn þarfasti þjónninn.
Engsn niðurstaða
eftir 17 tíma fund
—f ramlag líf eyrissjóða og niðurfærsluleiðir meðal ágreiningsef na
Ekkert samkomulag náðist á samn-
ingafundi ASÍ og vinnuveitenda í
nótt. Fundinum var slitið laust
fyrir klukka 7 í morgun. Þá hafði
hann staðið í 17 klukkutíma. Við-
ræður hafa þó ekki enn runnið út
í sandinn því boðaður hefur verið
nýr samningafundur klukkan 17 í
dag. Undirnefndir koma saman
klukkan 14 í dag.
„Það miðaði ekkert í nótt en samt
er ekki hægt að segja að það hafi
dregið í sundur milli aðila,“ sagði
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, í morgun.
í nótt var aðallega rætt um hús-
næðismál, endursköðun launt,-
flokka, veikinda- og slysagreiðslui
og síðan svokallaða niðurfærslu-
leið. Aðilar eru sammála um að til
aukinna niðurfærslna þurfí að
koma af hálfu ríkisvaldsins. Hins
vegar er ekki samkomulag um
hvaða leiðir á að velja í þeim efn-
um. Þá eru húsnæðismálin erfiður
ljár í þúfu. Óánægja er með hversu
lítið sumir lífeyrissjóðir greiða til
húsnæðiskerfisins. Lífey rissj óður
verlsunarmanna greiðir aðeins
10% af ráðstöfunarfé sínu og lífeyr-
issjóður Sambandsins aðeins 5%.
Sumir sjóðir greiða ekki krónu eins
og t.d. lífeyrissjóður KEA og
lækna. Meðal þessara sjóða er lítill
vilji fyrir því að auka framlag sitt
til húsnæðiskerfisins. Sumir sjóðir
greiða mjög mikið eins og t.d. líf-
eyrissjóður sjómanna, sem greiðir
allt að 80% af sínu ráðstöfunarfé
til húsnæðiskerfisins.
Þá hefur enn ekkert samkomulag
náðst um kauptryggingu. Ekki
heldur um beinar kauphækkanir
sem eru háðar því hvaða leiðir og
hversu langt verður gengið í aukn-
um niðurfærslum af hálfu ríkis-
valdsins.
-APH
Ekið var á dreng á reiðhjóli á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar síðdegis í gær. Drengurinn
var fluttur á slysadeild. Hann brákaðist á fæti en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. DV-mynd S.
Siðanefnd vítir
fréttastjóra sjónvarps
Siðanefnd Blaðamannafélags Is-
lands hefur, að beiðni útvarps-
stjóra, veitt umsögn sina í ágrein-
ingsmáli fréttastjóra sjónvarps og
meirihluta útvarpsráðs um frétta-
flutning sjónvarpsins af málefnum
Amarflugs í kvöldfréttatíma sjón-
varpsins 22. nóvembersíðastliðinn.
í ályktun siðanefndar Blaða-
mannafélagsins segir orðrétt:
„Siðanefnd Blaðamannafélagsins
telur að fréttastjóri sjónvarps sé
sekur um ámælisverð brot á siða-
reglum félagsins, bæði þeirri að
blaðamaður skuli gæta virðingar
blaðs síns eða fréttastofu og hinni
að hann skuli vanda upplýsingaöfl-
un sina eftir mætti og sýna fyllstu
tillitssemi í vandasömum málum.
Það er á hinn bóginn ekki á
verksviði nefndarinnar að kveða á
um'hvenær blaðamenn skuli biðj-
ast afsökunar og hvenær ekki.
Edda Andrésdóttir fréttamaður
og Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri
komu á fund nefndarinnar 4. jan-
úar og svöruðu spurningum nefnd-
armanna."
Allt óráðið
hjá Framsókn
Ekkert liggur fyrir í framboðsmál-
um Framsóknarflokksins í Reykja-
vík vegna borgarstjórnarkosning-
anna í vor. Svör í skoðanakönnun
eru að berast. Þar tilnefnir flokks-
fólk líklega frambjóðendur. Ótal
nöfn hafa borist, að sögn Alfreðs
Þorsteinssonar, formanns Fram-
sóknarfélagsins. Unnið verður úr
svörunum um næstu helgi.
Núverandi borgarfulltrúi, Kristj-
án Benediktsson, gefur ekki kost á
sér í framboð. Ýmsir hafa verið
nefndir í sæti hans en eftir athugun
DV er sá orðrómur almennt spjall
sem ekkert er á byggjandi. Alfreð
Þorsteinsson hefur iðulega verið
nefndur til sögunnar. Hann er fyrr-
verandi borgarfulltnii. „Nei, ég hef
margsagt að ég kem ekki nálægt
þessu aftur. Eg gegni auk þess
trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á
öðrum vígstöðvum og læt það
nægja,“ segir Alfreð. HERB
Allirbit
áSverri
„Það eru allir bit á Sverri. Hann
er algjörlega búinn að eyðileggja
fyrir kapalkerfunum," sagði Skúli
Pálsson á Ólafsfirðí en þar rekur
hann kapalsjónvarpsstöð.
Skúli á við nýsettar reglur Sverr-
is Hermannssonar menntamála-
ráðherra um að efni á erlendu máli,
sem sýnt er í sjónvarpi, skuli jafnan
fylgja íslenskt tal eða neðanmáls-
texti á íslensku.
Skúli Pálsson hefur sett upp disk
til að taka við sjónvarpssendingum
gervihnattarins Eutelsat. Skúli
varð að setja diskinn upp að Kleif-
um fyrir norðan ólafsfjarðarkaup-
stað þar sem fjallið sunnan við
fjörðinn er í sjónlínu milli bæjarins
og Eutelsat.
Skúli nær skýrri mynd frá um tug
sjónvarpsstöðva. Til að koma
henni i kaupstaðinn þarf hann að
leggja dýran kapal.
Krafa menntamálaráðherra um
íslenskan texta kemur í veg fyrir
að Skúli geti tengt erlendu sjón-
varpsstöðvarnar við kapalkerfi
bæjarbúa. -KMU