Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Blaðsíða 4
4 Fréttir DV. ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS1986. Fréttir Fréttir Tveir af leikendum i Vigsluvottunum. Blönduós: Vígsluvottar frumsýndir Frá Rannveigu Sigurðardóttur, fréttaritara DV á Blönduósi: Þrátt fyrir háan aldur lætur Leik- félag Blönduóss ekki deigan síga. Síðastliðinn laugardag, 22. mars, voru Vígsluvottamir eftir Ephraen Kishon frumsýndir í Félagsheimili Blöndu- óss. Ámi Bergmann þýddi verkið en leikstjóri er Carmen Bonitch. Leik- ritið er gamanleikur með alvarlegu ívafí, að sögn ieikstjóra. Leikarar í uppsetningu Leikfélags Blönduóss eru Sturla Þórðarson, Guðrún Pálsdóttir, Jenny Gunn- bjömsdóttir, Jón Pétur Líndal, Þor- leifur H. Óskarsson og Rósa M. Sigur- steinsdóttir. Aðrar sýningar em 25. mars, 29. mars og 1. apríl. Allar sýningar heíjast klukkan 21. Vigsluvottarnir eru ann- að verkefni Leikfélags Blönduóss í vetur. Fyrir jól var sýndur gaman- leikurinn Táp og íjör eftir Jónas Árnason. Enn brotist inn í Burstafell Það er greinilegt að Burstafell í Reykjavík er orðið vinsæll innbrots- staður. Brotist var inn í verslunina aðfaranótt mánudagsins og stolið skiptimynt. Þetta er níunda innbrotið í Burstafell og söluturninn við hlið- ina á versluninni. Einnig var brotist inn í sölutuminn um helgina. Það hefur alltaf verið notuð sama inn- brotsaðferðin. Rúða brotin. Engin önnur skemmdarverk hafa verið unnin. -SOS Bílalest tíu tíma yfir Fjarðarheiði Það gekk á ýmsu hjá skíðamönn- FjarðarheiðiogtilSeyðisíjarðar. Bílalestin lagði af stað frá Egils- um frá Seyðisfírði þegar haldið var Mikill snjór og skafrenningur var stöðum kl. 20 á sunnudagskvöldið heim á leið frá Skíðamóti Austur- á heiðinni. Ástæðan fyrir því hvað og komið var til Seyðisfjarðar kl. lands sem fór fram í Oddsdal um ferðin gekk illa var að snjóblásari 6.30 í gæmiorgun. helgina. Það tók áttatíu manna hóp frá Vegagerðinni bilaði þegar bíla- Ferðin var þreytandi og þá sérs- frá Seyðisfirði nær fimmtán tíma lestin var komin á Fjarðarheiðina taklega fyrir ökumenn bifreiðanna. að komast heim. Hópurinn, sem var og varð að kalla á snjóplóg til að Yngsta fólkið svaf og það fór ekki á einum langferðabíl og níu einka- ryðja bílalestinni leið. Ferðin gekk illa um ferðalangana sem voru vel bílum, var tíu og hálfa klukkustund hægt þar sem jafnóðum skóf í slóð- útbúnir og höföu nægan rnat og að komast frá Egilsstöðum, yfir inasemmddvar. drykk. -SOS Ráðning stjórnanda dregin til baka? Veikur maður fluttur sjóleið- inafrá Þórshöfn Læknir á Þórshöfn haföi samband við Slysavamafélag Islands á sunnudagskvöldið og það um hjálp við að koma veikum manni á sjúkrahús. Vegna veðurs var ekki hægt að sækja manninn í flugvél. SVFÍ hafði samband við sína menn á Húsavík og Þórshöfn. Bað þá að vera í viðbragðsstöðu í sambandi við flutning á manninum í snjóbíl. Upp úr miðnætti á sunnudag var ákveðið að togarinn Stakfell færi inn til Þórshafnar til 'að sækja manninn og lækni. Haldið var af stað norður fyrir og í átt til Húsa- víkur. Þar sem veður var slæmt og lítið skyggni á Húsavík, þannig að flugvél gat ekki lent þar á flugvell- inum, var ákveðið að sigla til Akur- eyrar. Stakfell kom til Akureyrar seinnipartinnígær. -SOS „60% starfsmanna Sinfóníuhljóm- sveitarinnar voru á móti gríska stjórnandanum Trikolidis í skoðana- könnun fyrir ári og því var það þá þegar tvírætt að ráða hann. Reynsla okkar af honum síðan hefur aukið andstöðuna gegn honum,“ sagði Rósa Hrund Guðmundsdóttir, formaður starfsmannafélags Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, í samtali við DV. Starfsmannafélagið hefur farið þess á leit við stjórn Sinfóníunnar að hún endurskoði þá ákvörðun að ráða Grikkjann Trikolidis til að stjóma hljómsveitinni í 2 mánuði á næsta starfsári. Samkvæmt heimildum DV telja að minnsta kosti sumir stjómar- menn að ekki þýði að standa gegn vilja yfirgnæfandi meirihluta starfs- manna og verði Grikkinn látinn fara og honum greiddar skaðabætur. „Stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur þungar áhyggjur af málinu en við höfum ekki hist til að ræða það til hlítar á fundi og því vil ég ekki láta neitt hafa eftir mér um málið,“ sagði Hákon Sigurgrímsson, formað- ur stjómar Sinfóníuhljómsveitarinn- ar, í samtali við DV. „Við erum á móti ráðningu hans. Hann hefur komið hingað 4 sinnum til að stjóma tónleikum og það er ljóst að hann kann ekki þau vinnubrögð sem stjórnendur þurfa að kunna til að ná þeim árangri sem við ætlumst til á æfingum," sagði Rósa Hrund Guðmundsdóttir um Trikolidis og bætti við: „ Það hefur komið í ljós að hann er ekki sá sem menn vonuð- ust til. Honum gengur ekki vel að stjórna æfingum hljómsveitarinnar, sérstaklega varðandi skipulagningu og vinnubrögð. Hann hefur verið fremur vinsæll af áheyrendum en vinnan með okkur við æfingar er 90% starfsins og þvi höfum við farið fram á að ráðning hans verði endurskoð- I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Týndu sauðunum fagnað framvegis muní útlendingar borga Enn einu sinni hafa hjálparsveitir verið kallaðar út til að leita að týnd- um mönnum. Þeir fundust sem betur fer heilir á húfi. Það þurfti reyndar ekki að leita langt því við- komandi menn voru að þvælast um í Mosfellssveit en ekki óbyggðum. Samt var þetta nóg til þess að fjöl- mennar sveitir björgunarmanna voru kallaðar út. Nú er það orðið í tísku að leggjast út og týnast. Hetj- urnar, sem grófu sig í skafla, fá af sér forsíðumynd í blöðum og þeim er fagnað við heimkomuna sem ís- lands hrafnistumönnum. Björgun- armenn koma sveittir og ánægðir til byggða eftir að hafa grafið upp týndu sauðina og allir eiga að fagna með. Auðvitað dettur engum heil- vita manni í hug annað en varpa öndinni léttara þegar svona undan- villingar finnast. En er ekki komið nóg af svo góðu? Helgi eftir helgi eru tugir eða hundruð manna kölluð út til leitar að týndum mönnum sem ana upp á fjöll án þess að hlusta á veðurfregnir eða taka nótis af því að það er vetur á íslandi. Okkur finnst þetta alveg dásamlega fyndið og sniðugt að týnast og finnast aftur eftir leit sem kostar vinnutap tvö hundruð manna, það er að segja ef íslendingar týnast. En það kemur annað hljóð í strokkinn ef um útlendinga er að ræða. Hingað koma árlega um 100 þúsund erlendir túristar. Þar af má bóka að tveir til þrír týnast uppi á öræfum og annar eins hópur lendir í einhvers konar veseni út af því að þeir höfðu ekki með sér varadekk. Um leið og vandræði útlendinganna verða ljós fer fjölmiðlamafían af stað. Sjónvarpið hefur viðtal við framkvæmdastjóra Ferðamálaráðs þar sem hann lýsir þungum áhyggj- um yfir hættuspili því sem útlend- ingar eru að leika með því að ferðast upp um fjöll og firnindi. Auðvitað er það vítavert athæfi af hálfu út- lendinga að yfirgefa malbikið í Reykjavík en þó tekur fyrst steininn úr þegar þetta pakk fer að ferðast upp á öræfi líka. Slikt flan gæti haft það í för með sér að einhver týndist og það þyrfti að kalla út leitar- fiokka. Og ef svo fer þá spyr áfjáður spyrill fjölmiðils alltaf: Hver kostar þessa leit? Og framkvæmdastjóri ferðamála svarar, ábúðarfullur á svip: Það verður einhver að borga. Við getum ekki látið þessa útlend- inga vandra upp um fjöll og heiðar án þess að einhver borgi. Þar með er viðtalinu lokið og allir snúa sér á hitt eyrað með þeirri fullvissu að fyrir að láta sig týnast, enda er þeim það ekki of gott, þessum skröttum, fyrir að hafa verið að þvælast hingað yfirleitt. En það kemur annað hljóð í strokkinn þegar um íslendinga er að ræða. Það þykir alveg sjálfsagt að ijúpnaskyttur byiji að týnast í fjölluin með fyrstu hausthretum. Fjölmennt lið björgunarmanna heldur sér í æfingu með því að leita að skyttunum týndu og síðan er sungið lof og pris yfir því hvað hinir týndu stóðu sig vel að drepast ekki á fjöllum og svo hvað björgunar- menn voru afspyrnuduglegir að ramba á hina týndu og koma þeim til byggða. Stundum hafa svona leikir einhveija eftirmála og menn fara að skrifast á í blöðum. Nægir þar að minna á ábúðarfull greinar- skrif i Morgunblaðinu á dögunum þar sem björgunarmenn voru fullir heiftar út í mann sem hafði týnst á fjöllum en var hinn fúlasti yfir því að gerð var að honum leit. Sá hinn týndi hafði látið svo ummælt að hann hefði aldrei verið týndur og það hefði verið hreinn óþarfi að kalla út fjölmennt lið björgunar- manna. Eins og gefur að skilja brugðust björgunarmenn við hinir reiðustu og rituðu langhunda þar sem þeir sýndu fram á að alltaf þegar maður týndist bæri að leita að honum og gáfu jafnframt í skyn að viðkomandi maður hefði týnst gang ofan í gang og því væri honum nær að þegja og þiggja leit með þökkum hvenær sem væri. Þetta var allt hið skemmtilegasta sjónar- spil og það léttir veturinn að hafa svcma bráðalvarleg deilumál. Á sama tíma berast fréttir ofan af öræfum þess efnis að þar komi menn á vélsleðum af og til og fari mikinn. Til þess að létta af sér öræfaþögninni taka vélsleðamenn gjarnan með sér rótsterk vín og skjögra síðan dauðadrukknir inn í híbýli veðurathugunarhjóna hingað og þangað um óbyggðir. Eftir að hafa sofið úr sér vímuna birgja þeir sig siðan upp af Svala frá Dabba Scheving og drekka úr sér þynnk- una á leið til byggða, skiljandi eftir sig slóð af umbúðum. Sjaldnast þarf þó að gera út leit að þessum mönn- um, hvort sem fyrir er að þakka vodka eða Svala, en af fréttum að dæma þá drekka vélsleðamenn þetta yfirleitt hvort í sínu lagi en blanda vökvunum ekki saman eins ogtiðkastíbyggð. Hvað útlendingar, sem týnast hér, hafa látið ofan í sig kemur engum við, cnda er það einkaréttur íslend- inga að týnast ókeypis í eigin landi ogfinnastaftur. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.