Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Qupperneq 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS1986. Utlönd Utlönd Utlönd Utlönd Hlera samtal hjóna Afhending óskarsverðlauna ígærkvöldi: •• JORÐI AFRÍKU FÉKK SJÖ Yelena Bonner, eiginkona sovéska andófsmannsins Andrei Sakharov, sem varð að heita þvi að tjá sig ekki opinberlega um neitt er varðaði þau hjónin eða líf þeirra í Sovétríkjunum til að fá að fara til Vesturlanda að leita sér lækninga, hefur brotið gegn þeirri þagnarskyldu. Myndband, sem sýndi Sakharov við góða heilsu og sagt var að KGB hefði látið gera, varð til þess að Bonner gat ekki orða bundist. Sagði hún að myndin, sem sýndi meðal annars Sakharov að tala við hana sjálfa í síma, sýndi að Sovétmenn legðust jafnvel svo lágt að hlera samtal hjóna. Sagðist Bonner óttast um heilsu bónda síns því sú staðreynd að Sovét- menn hefðu komið myndbandinu á framfæri benti einmitt til þess að hann hefði það ekki nógu gott. Halldór Valdimarsson, fréttaritari DV í Bandaríkjunum: Eins og búist hafði verið við bar kvikmynd Sidney Pollacks „Out of Africa“,eða Jörð í Afríku, höfuð og herðar yfir aðrar myndir, hlaut sjö óskarsverðlaun, þar á meðal sem besta kvikmynd ársins 1985 og Pollack sjálfur fékk óskarinn fyrir besta leikstjóm. Óskarsverðlaun fyrir bestan leik í aðalhlutverkum fengu þau Will- iam Hurt fyrir leik sinn í „The kiss of the spider Woman“, Koss kóngu- lóarkonunnar, og Geraldine Page fyrir „A trip to bountiful". Gerald- ine Page hefur átta sinnum áður verið tilnefnd til óskarsverðlauna en aldrei hlotið hnossið fyrr en nú. Óskarsverðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki hlutu Angelique Huston fyrir leik sinn í „Prizzies Honor“ (Heiður Prizzies) og Don Amendze fyrir hlutverk sitt í „Co- coon“. Besta erlenda myndin var valin argentínska myndin „The official story“. APREL heftið er komið Á blaðsölustöðum NXJNA Tímarit f yrir alla sindalegstaðreynd: munur tynianm.. ^ ninerurnisnumaxi* orrituð" fráfæðmgu ..!L.-....% BlS.3 lðkaðu jóga heima hja . ^ Hugsun i orðum.. [.oksmsaðgengLteg ......... Eræðsla fynr alla þa ð að hryðjuvcrkam<mnum.■■■ * ^ sem ekkert vita um t'rvaisijóö.■•;-F;;t'h";ða'riCgt. tölvur Otrukgt en satt. - .... 51 n-pvk á ......... o BlS. 20 rald allir hnuslausir .. Saga Guðlaugs pTg^JMAÐURINN SmUFKÖIDíMÖBINN •oig 30 Hcistu trúarbrcigð heims: _ 6o DiS* Búddisminn........... Madame Tussaud s: 7, MADMETUSSAUD'S: VAKAÐYFIRHVER]U Borgar-Mánn........ 88 SMÁATRIÐI Ney tendaleiðsögn: Bls 73 Tannkrcm úr náttúrucfnum. 93 Bandaríska leikkonan Geraldine Page hlaut loks óskarsverðlaun í gær- kvöldi eftir að hafa verið tilnefnd átta sinnum áður. Page var kjörin besta leikkonan í kvikmyndinni „A trip to bountiful“. „Ég held að ég hefði átt að fá einn óskar fyrir allar hinar tilnefningarnar líka,“ sagði Page í gærkvöldi. „Ég er minn mesti aðdáandi.“ Sandinistar ráðast inn í Honduras Halldór Valdimarsson, fréttaritari DV í Bandaríkjunum: í gærkvöld bárust óstaðfestar fréttir af því að sandinistar í Nicaragua hefðu sent um fimmtán hundruð manna herlið inn í Honduras og ráðist þar á stöðvar Contra-skæru- liða. Bárust fregnir af hörðum bardögum í landamærahéruðum. Honduras- stjóm fór þess óopinberlega á leit við Bandaríkjamenn í gær að fá aðstoð til að flytja herlið á svæðið þar sem átökin standa yfir, til að hrekja herlið sandinista þaðan í burt. Fregnir frá átakasvæðinu herma að hluti sandinistanna sé afkróaður í Honduras og var óttast að aukið herlið yrði sent frá Nicaragua. Þessar fregnir eru óstaðfestar enn sem komið er, að því er talið er að einhveiju leyti vegna þess að Hond- urasstjóm hefur ekki viljað viður- kenna að herlið frá Nicaragua væri komið inn í landið og Bandaríkja- menn geta ekki orðið við beiðni þeirra um aðstoð fyrr en þeir gera það opin- bert. Birtu nýja mynd í rannsókninni á morðinu á Palme Gunnlaugur Jónsson, fréttaritari DV í Svíþjóð: Holmer, lögreglustjóri í Stokk- hólmi, sem stjómar rannsókninni á morðinu á Olof Palme, birti frétta- mönnum nýja mynd í gær. Myndin er af mani.i sem sagður er hafa sést veita Palme eftirför dagana fyrir morðið. Holmer lagði áherslu á að þessi maður væri ekki morðinginn en væri hins vegar grunaður um að geta tengst morðinu á einhvem hátt. Þegar hafa komið fram viðbrögð frá einu hóteli í miðborg Stokkhólms. Að sögn starfsmanna í gestamóttöku hótelsins líkist myndin mjög útlend- um manni er dvaldi á hótelinu dagana fyrir morðið á Palme. Talaði maður- inn bæði þýsku og ensku en hvarf skyndilega af hótelinu án þess að borga um líkt leyti og morðið var framið, að því er starfsmennimir segja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.