Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Page 16
16
DV. ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS1986.
• Adrian Heath.
Heath til
Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta-
manni DV á Englandi.
Allt bendir nú til þess að Adrian Heath,
leikmaðurinn kunni hjá Everton, leiki með
Chelsea næsta keppnistímabil. Heath, sem
Everton keypti frá Stoke fyrir 750 þúsund
sterlingspund fyrir nokkrum árum, hefur
ekki verið fastamaður í liði Englands-
meistaranna og er ekki ánægður með það.
Var ekki einu sinni varamaður í leiknum
í Luton á laugardag. Everton og Chelsea
hafa komist að samkomulagi um kaup-
verð á Heath, 350 þúsund sterlingspund.
Eftir keppnistímabilið mun hann gangast
undir læknisskoðun áður en hann skrifar
undirhjá Chelsea.
hsim
• Jón Örn Sig-
urðsson. bjartsson.
Ásgeir og
JónÖm
meistarar
- í tvíliðaleik í biljarði
Þeir Ásgeir Guðbjartsson og Jón Örn
Sigurðsson urðu um helgina íslandsmcist-
arar í tviliöaleik í biljarði en keppnin fór
fram á biljarðstofunni Klapparstíg.
Þeir Ásgeir og Jón sigruðu þá Amar
Ríkharðsson og Brynjar Valdimarsson í
úrslitaviðureign. Ásgeir varð einnig ís-
landsmeistari i tviliðaleik í fyrra en lék þá
með Amari Ríkharðssyni. I þriðja sæti í
tviliðaleiknum um helgina urðu þeir Jónas
P. Erlingsson og Guðni Magnússon. Mótið
fór mjög vel fram og ajdrei hafa fleiri
kcppendur tekið þátt i íslandsmótinu í
tvíliðaleik. -SK
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttii
Saabí sex
iiða úrslit
- um sæti í Allsvenskan.
Þorbergur skrífaði undir
tveggja ára samning
• Höskuldur Stefánsson og Ebba Ólafsdóttir taka hér við 26 tommu litsjc
myndinni er Gunnar Gunnarsson, verslunarstjóri hjá Japis, en hann afhenti vini
„Égtrúiþc
- sagði Höskuldur Stefánsson er honum var ti
fráJapisíHM
Frá Gunnlaugi Jónssyni, fréttaritara
DVíSvíþjóð:
Saab, liðið sem Þorbergur Aðal-
steinsson þjálfar og leikur með,
tryggði sér réttinn til að leika í sex
liða keppni um þrjú laus sæti í All-
svensken fyrir næsta vetur. Liðið
vann um helgina Skovde í hörku-
spennandi leik, 15-14, á heimavelli
sínum en fyrri leik liðanna á heima-
velli Skovde lyktaði með sigri Skov-
de, 25-24. Saab komst því í úrslitin á
fleiri mörkum skoruðum á útivelli.
Þorbergur hefur átt við meiðsli að
stríða í baki að undanförnu og því
ekkert getað æft með liði sínu. Hann
var hins vegar í aðalhlutverki í
Knattspyma í
3 sólarhringa
„Þetta er mjög kærkomið tækifæri
fyrir knattspyrnuunnendur. Þeir
sem ferðast með Samvinnuferðum-
Landsýn í sumarhúsin í Hollandi í
sumar geta fylgst vel með heims-
meistarakeppninni í knattspyrnu í
beinum útsendingum sem samtals
verða í 66 klukkustundir eða tæpa
þrjá sólarhringa samfleytt,“ sagði
Kjartan L. Pálsson, blaðafulltrúi
Samvinnuferða, þegar við slógum á
þráðinn til hans í gær.
„Við erum auðvitað mjög ánægðir
með að geta boðið viðskiptavinum
okkar upp á þessa þjónustu og lækk-
að verðið stórlega um leið. Við höfum
náð mjög góðum samningum við
Hollendinga og getum þess vegna
lækkað verðið um 7 þúsund krónur
á hús ef dvalið er í tvær vikur en 11
þúsund á hús ef dvalið er í þrjár
vikur,“ sagði Kjartan ennfremur.
Þetta eru góðar fréttir fyrir knatt-
spymuunnendur. Alls verða 44 leikir
á HM í Mexíkó og ekki dónalegt að
geta séð alla keppnina í beinum
útsendingum í sumarleyfi í Hollandi.
Þess skal getið að þeir sem þegar
hafa pantað sér ferðir með Sam-
vinnuferðum í sumarhúsin í Kemper-
vennen og Meerdal njóta þessa af-
sláttar. Þessi kynningarafsláttur
gildir frá 23. maí til 31. júní.
-SK
leiknum um helgina, skoraði fimm
marka Saab eða þriðjung iiðsins.
„Við erum álitnir hafa minnstu
möguleikana í þessari keppni en
vonandi erum við vanmetnir. Sjálfur
er ég ekki bjartsýnn á sæti i All-
svensken, varnarieikur okkar og
hraðaupphlaup eru okkar sterkustu
vopn en ég efa að það dugi,“ sagði
Þorbergur sem skrifaði um helgina
undir tveggja ára samning við Saab.
Þorbergur hefur náð mjög góðum
árangri með lið sitt síðan hann tók
við því í haust. Auk þess sem liðið
vann sér þátttökuréttinn í sex liða
keppnina þá er liðið komið í undan-
úrslit bikarsins. Liðið mun leika
gegn Drott um sæti í úrslitaleiknum.
Næsti leikur Saab verður á páska-
dag gegn Viking frá Helsingborg.
Þess má geta að Þorbergur mun fara
til Lundar á morgun til að njósna
um andstæðinga í sex liða keppninni,
það er lið H 43. -fros
• Þorbergur Aðalsteinsson.
Skrifaði undir nýjan samning við
Saab.
„Ég trúi þessu nú varla. Er þetta
virkilega rétt hjá þér?“ sagði Hösk-
uldur Stefánsson þegar honum var
tilkynnt að hann hefði unnið forláta
Panasonic sjónvarpstæki í HM-get-
raun DV og Japis sem í gangi var
fyrir HM í handknattleik í Sviss.
Fjölmargir lesendur DV voru með
réttar lausnir en þegar dregið var
úr réttum lausnum kom í ljós að
Höskuldur var sá heppni.„Þetta
kemur sér mjög vel fyrir okkur. Við
áttum lítið sjónvarpstæki fyrir og við
erum alveg í sjöunda himni. Við
Víkingur hættir með
„Áhugaleysi
sjálfra er
- segir Qlafur Friðriksson, form
Atli nefbrotnaði
í úrsHtaglímunni
- í opnum flokki í kumite á íslandsmeistaramótinu í karate
ogvardæmdursigur
Atli Erlendsson vann sigur í opnum
flokki karla í kumite á íslandsmeist-
aramótinu í karate sem fram fór á
sunnudagskvöld í Laugardalshöll.
Harðasta keppnin á mótinu var tví-
mælalaust i þessum flokki. Atli
komst áfram ásamt Ævari Þorsteins-
sjni í úrslit, Ævar eftir að hafa sigrað
Arna Einarsson og Atli eftir að hafa
lagt Sigurjón Gunnsteinsson.
I úrslitaglímunni var síðan hart
barist. Atli byrjaði á að skora með
höggi að andliti en síðan fengu þeir
báðir refsistig fyrir ógrundaða tækni.
Atli fékk stig fyrir annað högg að
andliti og Ævar svaraði í sömu mynt
og fékk stuttu síðar ippon fyrir högg
að andliti. Staðan þá orðin 4-3 Ævari
í hag. Ævari mistókst síðan spark
með þeim afleiðingum að Atli nef-
brotnaði. Ævar fékk refsistig og
glíman var dæmd honum töpuð.
Það voru 2- 300 áhorfendur sem
fylgdust með mótinu sem fór að
mestu leyti vel fram. Augljóst er að
vaxandi breidd er í íþróttinni en leið-
inlega mikið var um meiðsli á mót-
inu. Þannig var mörgum keppendum
dæmdur sigur á refsistigum mót-
herja. Annars urðu sigurvegarar
þessir í flokkunum:
Kata karla
Ámi Einarsson, KFR........23,9
Kumite karla -65 kg
Ámi Einarsson, KFR
Kumite karla -73 kg
Finnbogi Karisson, K.sk.
HIUIUJUIHMHI'——
Kumite karla -80 kg
Konráð Stefánsson, KFR
Kumite karla + 80 kg
Ævar Þorsteinsson, UBK
Kumite karla, opinn fl.
Atli Erlendsson, KFR
Kata kvenna
Jónína Olesen, KFR.........22,7 st.
Kumite kvenna
Kristín Einarsdóttir, Gerplu
Kata unglinga
Halldór N. Stefánsson,
Þórshamri.................21,4 st.
Það voru keppendur frá Karatefé-
lagi Reykjavíkur sem hirtu langílest
verðlaunin á mótinu eða fimm gull,
fimm silfur og tvö brons. Alls voru
keppendur43frááttafélögum. -fros
„Það er fyrst og fremst áhugaleysi
stúlknanna sjálfra sem er orsök þess
að sú leiða ákvörðun var tekin að
leggja niður knattspyrnu kvenna
innan knattspyrnudeildar Víkings,“
sagði Ólafur Friðriksson, formaður
deildarinnar, þegar DV spurði hann
um ástæðu þessarar ákvörðunar
stjórnar knattspyrnudeildarinnar.
Þessi mál Víkingsstúlknanna hafa
verið talsvert til umræðu að undan-
förnu. Þær unnu sig upp í 1. deild
Islandsmótsins og ætla má að það
hafi orðið þeim hvatning, eða hvað?
„Hópurinn stækkaði ekkert við
það. I vetur hafa þær verið með
innitíma í Réttarholtsskóla sem
vægast sagt hafa verið mjög illa
nýttir. Við boðuðum stúlkurnar til
fundar fyrir tveimur mánuðum til að
ræða málefni þeirra. Það kostar um
400 þúsund krónur á ári að halda
úti knattspyrnudeild kvenna og þar
sem um aigjört áhugaleysi þeirra var
að ræða ákváðum við að draga stúlk-
urnar ekki lengur á þessu. -1979 var
mikii gróska hjá kvennadeiidinni,
sem því miður hefur fjarað smátt og
smátt út,“ sagði Óiafur.
Myndi knattspyrnudeild Víkings
standa opin fyrir þessum stúlkum ef
þær vildu koma aftur?
- „Vissulega. Ég yrði fyrstur
manna til að bjóða þær velkomnar.
Við gætum alls ekki staðið á móti