Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Qupperneq 25
DV. ÞRIÐ JUDAGUR 25. MARS1986.
25
Sandkorn Sandkorn
Húskarla-
vandræði KR
KR-ingar leita nú logandi
ljósi að því félagi sem arg-
entínski landsliðsmaðurinn
þeirra, Marcelo Houseman,
lék síðast með. Marcelo
kvaðst síðast hafa leikið
með svissnesku félagi og
sett margan boltann inn.
Nú er hins vegar komið á
daginn að enginn kannast
við að Marcelo hafi leikið í
Sviss. KR-ingar bíða nú
milli vonar og ótta eftir
skeyti frá Finnlandi og
biðja til guðs að rétt sé að
Marcelo hafi leikið þar. Því
miður bendir margt til þess
að Argentínumaðurinn
hafi leikið síðast i Suður-
Afriku. Það gæti skapað
mikil vandræði því FIFA,
alþjóðaknattspyrnusam-
bandið, bannar félagaskipti
frá félögum í Suður—
Afríku...
Fjaðrafok
Morgunblaðsmenn héldu
árshátíð fyrir nokkru. Eitt
af skemmtiatriðum árs-
hátíðarinnar var happ-
drætti. Afhenti Ómar
VaMimarsson veislustjóri
heppnum gestum
stórglæsilega vinninga.
Siðasti vinningurinn var
sýnu glæsilegastur. Var
það stór og myndarleg
hæna. Það óhapp varð hins
vegar er vinningshafinn,
Karl Blöndal, tók við gjöf-
inni að hún gerði heiðar-
lega tilraun til að bíta af
honum nefið. Karl slapp
með skrekkinn en hænan
var handtekin og visað á
dyr. Til athugunar er að
kæra málið til dýravernd-
unarsamtakanna.
Mundi Flower-Power
Karl Blóm-
kvist
Sá óvenjulegi atburður
gerðist á dögunum að
verkalýðsforingjar, sem
eiga að heita í stjórnarand-
stöðu, færðu viðskiptaráð-
herra, Matthíasi Bjarna-
syni, blóm að gjöf fyrir
vasklega frammistöðu í
baráttu við bankakerfið.
Einn þeirra var Karl
Steinar Guðnason. Hann
gengur eftir þetta undir
nafninu Karl Blómkvist í
þinginu. Ásmundur Stef-
ánsson er hins vegar kall-
aður Mundi Flower-Power,
og Guðmundur J. Fjólu-
Jakinn...
Lýðuryfir
landsbyggðina
Hörðustu byggðastefnu-
menn landsins með Ólaf
Þórðarson þingmann í
broddi fylkingar stefna nú
að því að skipta landinu i
fylki og dreifa þar með valdi
út í hinar dreifðu byggðir
landsins. Er helst á þeim
að skilja að ef „sveitavarg-
urinn“ fengi að ráða sínum
málum heima í héraði
myndi rísa upp hið mesta
sæluriki á íslandi.
Það kom mörgum á óvart
á dögunum er dreifbýlis-
sinni nokkur snerist önd-
verður gegn þessari tiUögu
er málið barst í tal. Ástæð-
an: „Heldurðu að maður
vilji fá bláfátækan Reykja-
víkurlýðinn rænandi og
betlandi yfir landsbyggð-
ina?“
Svo mörg voru þau orð.
Föst yf irvinna?
Þessi er úr Félagsblaði
Bandalags kennara: „Það
hefur flogið fyrir að þeir
skólastjórar sem taki störf
sín alvarlega séu almennt
að sligast undan vinnuálagi
þessa dagana. Hafi þeir sést
á harðahlaupum á sið-
kvöldum í humátt á eftir
skólariturum til að gæta
þess að ritararnir uppfylli
þær velsæmiskröfur sem
sumir telja að gera þurfi til
fólks í slíkum ábyrgðar-
stöðum. Enn er ósamið um
hvernig launadeildin mun
greiða þessa yfirvinnu
skólastjóranna en líklega
verður annaðhvort um
fasta yfirvinnu að ræða eða
greiðslu samkvæmt reikn-
ingi.“
Var þjófurinn
bindindismað-
ur?
Það vakti athygli á dög-
unum að brotist var inn í
herbúðir Vöku, félags lýð-
ræðissinnaðra stúdenta.
Morgunblaðið greindi frá
innbrotinu samviskusam-
lega sama dag og kosið var
Ólafur Þórðarson: æðir
Reykjavíkurlýðurinn út á
land?
til stúdenta- og háskóla-
ráðs. Engu var líkara en að
í fréttinni væri ýjað að því
að andstæðingar Vöku-
manna hefðu verið þarna
að verki því tekið var fram
að aðallega hefði verið
stolið plöggum og pésum
tengdum kosningunum.
Ymsir sem til þekkja á
Vökuheimilinu ráku upp
stór augu er ekki var getið
um neitt áfengi meðal þess
sem þjófurinn hefði haft
upp úr krafsinu. Vöku-
menn búa nefnilega svo vel
að hafa alltaf vísi að bar í
félagsheimili sínu.
Vinstri menn telja Vöku-
menn hafa sett innbrotið á
svið en gætnari menn
benda á að innbrotsþjófur-
inn hafi líklega verið bind-
indismaður. Vinstri menn
telja þetta sönnun þess að
þeir séu saklausir!
Umsjón:
Árni Snævarr
Menning___________Menning___________Menning
A la polacca!
Tónleikar Sinfóniuhijómsveitar íslands í
Háskólabíói 20. mars.
Stjórnandi: Thomas Sanderling.
Einleikari: Szymon Kuran.
Efnisskrá: Richard Wagner: Forleikur að
Meistarasöngvurunum; Karol Szymanov-
ski: Fiöiukonsert nr. 1 op. 35; Ludwig van
Beethoven: Sinfónia nr. 8 i F-dúr op. 93.
Á tónleikunum næst á undan
umræddum tórileikum var rússnesk
tónlist á dagskrá. Enn var dvalið
við tónlist frá Austur-Evrópu, að
þessu sinni pólska. Og einleikarinn
var pólskur, okkar ágæti annar
konsertmeistari, Szymon Kuran.
En fyrst fengu menn smávott af
Wagner. Það æxlaðist svo til að
sakir umferðartafa varð ég heldur
seinn fyrir vestur í Háskólabíó og
heyrði byrjunina á Meistarasöngv-
araforleik Wagners í bílútvarpinu
úti á bílastæði bíósins. Þótti mér
sem þeir tæknikarlar útvarpsins
væru heldur betur famir að fegra
hlutina í græjunum hjá sér svo að
meira að segja mátti heyra í bjag-
andi bílútvarpi. Þarna í tækinu
hljómaði Wagner svo gjörsamlega
laus við allar þær ambögur í leik
sem músíköntum norðursins (og
reyndar ýmissa annarra menning-
arsvæða líka) er svo gjamt áð klína
á tónlist hans. Þama var hvorki
fretað í lúðra né rifið í strengi og
til allra heyrðist þótt gefið væri í.
En viti menn, þeir í tæknideildinni
höfðu ekkert af sér gert. Hljómsveit-
in spilaði virkilega svona vel sem
staðfestist þegar inn í salinn var
komið.
Sannfæringarkraftur blandinn
fölskvalausri aðdáun
Var nú komið að Fiðlukonsert
Szymanovskis. Hann er undurfag-
urt verk. Sumum kann eflaust að
Szymon Kuran.
Tónlist
EYJÓLFUR MELSTED
þykja að Szymanovski sé ekki
umhugað um að spinna upp stóran
efnivið og láti sér nægja heldur
fábreytileg stef. En það er líka stór-
kostlegt hvernig hann fær það sem
frá sjónarhóli tónsmíðakúnstar-
innar verkar einfalt og jafnvel ein-
hæft til að hljóma af óskaplegri
hljómauðgi. Kemur þar ekki síst til
hve snjall hann er að beita hljóð-
færunum og hve vel hann þekkir
seið og kynngikraft þrástefsins.
Szymon Kuran lék einleikinn af
ástríðuþunga, lireint og örugglega
og af leik hans fannst mér að greina
mætti sannfæringarkraft, blandinn
fölskvalausri aðdáun á verkinu.
Áheyrendur kunnu vissulega að
meta hans frábæra leik og eftir að
hafa kallað hann margoft fram
fengu þeir að launum magnaða
Vorstemmningu Szymanovskis sem
Szymon lék með úrvalsgóðri aðstoð
Guðríðar St. Sigurðardóttur. Hér
fengu menn sýnishorn af pólskri
snilld og mætti gjarnan vera oftar
leikið „a la polacca" af þessu tagi.
Góða gesti eða púka á fjós-
bitann?
„Sú litla“, Áttunda Beethovens
var lokaverkið. Viðurnefni sitt
hlaut hún af samanburðinum við
þá sjöundu en ekki af því að hún
væri svo tiltakanlega lítil í sniðum.
Thomas Sanderling, sem stýrt hafði
hljómsveitinni til gæðaleiks frá
byrjun tónleikanna, valdi dálítið
yfirkeyrt tempó, einkum í byrjun.
En víst var leikurinn góður og hér
rak þessi ágæti hljómsveitarstjóri
endahnút á góða tónleika. Hljóm-
sveitin hefur nú á tveimur vikum
leikið þrisvar sinnum undir stjórn
jafnmargra hljómsveitarstjóra.
Einn þeirra á að verða fastagestur
á næstu vertíð. Ég get ekki á mér
setið, þegar fastagesturinn tilvon-
andi hlýtur svo ójafrian samanburð
við þá tvo sem næstir á undan
honum og eftir stjórnuðu, að beiria
því til ráðandi manna í sinfóníubæ
hvort þeir geti ekki endurskoðað
ákvörðun sína og leitað frekar eftir
góðum lausgangandi gestum í stað
þess að setja púka á fjósbitann hjá
sér.
Fiskréttirfrá kr. 160,-
Kjötréttirfrá kr. 200,-
OPIÐ KL. 9-21
ALLA DAGA.
Smurbrauðstofon
BJORNINN
SMURT BRAUÐ OG SNITTUR - Njálsgötu 49 - Sími 15105.
M
Samstarf um laxeldi
Eigandi norskrar laxeldisstöðvar óskar eftir samstarfi
við íslenska aðilja um byggingu og rekstur eldisstöðv-
ar fyrir lax og silung. Aðgangur að heitu uppsprettu-
vatni nauðsynlegur.
Upplýsingar gefur dir. Garseth hjá a/s Hjörungfisk,
6063 Hjörungvaag, Norge.
Sími 70-93437 eða 70-93533.
SUÐUS'
Bolholti 4 símar: 31050 - 31
BlACKúDECKER
hagla- og heftibyssunni