Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1986, Síða 28
28
DV. ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS1986.
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Paul
McCartney
sem orðinn er fjörutíu og þriggja
ára réði til sin þjálfara til j>ess
að halda líkamanum i formi fyrir
hljómleikaferðina í sumar. Hann
hefur ekki verið á slíku ferðalagi
í fjögur ár og núna er stíft æft í
tvo tima daglega í þeirri von að
puðið hjálpi þegar horfast þarf i
augu við aðdáendurna af hljóm-
leikapallinum.
Diana
prinsessa
á í erfiðleikum með að halda
andlitinu eftir lestur nýútkominnar
bókar i Bretlandi sem fjallar um
kynlif Karls prins fyrir giftingu.
Hún er ekkert hrifin af því að
hafa verið aftarlega í heilum her
kvenna sem eiginmaðurinn átti
samskipti við í þeim efnum og
nú tipla hallarbúar á tánum til
þess að styggja ekki hennar há-
tign á erfiðum tímum.
vann tiu þúsund krónur í fjár-
hættuspili á Ítalíu. Þetta gerðist í
San Remo og þar eru menn
ýmsu vanir - kalla ekki allt ömmu
sína - en samt gekk Grace ger-
samlega yfir liðið þegar hún lýsti
gleðinni yfir vinningnum með því
að henda aurunum yfir viðstadda.
Julie
Christie
er að safna hári. Á meðfylgjandi
mynd situr hún á hárgreiðslustofu
Jean-Marc Maniatis við rue Mar-
beuf í París og nýtur tilsagnar
starfsfólksins við uppsetningu
hársins. Hún segist hálfleið á
síddinni en þorir samt ekki að
stíga skrefið til fulls og láta stýfa
allt heila strýið af höfðinu.
MSKSLAVS
SKEMMTUN!
Félag makalausra hélt árshátíð
sína um síðustu helgi og þar
skemmtu menn sér að sjálfsögðu
makalaust vel. Þegar félagið var
stofnað héldu margir því fram að það
gæti vart átt fyrir höndum langa
lífdaga. í slíkri félagsstofiiun væri
fólgin nokkurs konar sjálfseyðingar-
hvöt og eðli málsins samkvæmt
myndi félagið hverfa eftir fyrstu
árshátíðina. En það hefur sem sagt
ekki gengið eftir, árshátíðir eru
árviss viðburður og hafi einhverjir
félagsmanna ruglað saman reytun-
um hefur það ekki haft merkjanleg
áhrif á starfsemi FM.
Dansgólfið var allt kvöldið krökkt af makalausu fólki. Meðal annarra má
þekkja Pétur Ó. Jónsson, Auði Rögnvaldsdóttur, Guðrúnu Ólöfu Ágústsdóttur
ogGestGeirsson.
KÉTTA KONAN
FYKŒ. HOPE
Sagt var frá því í Sviðsljósi á þriðju-
dag að Bob Hope og eiginkona hefðu
átt samleið í um það bil fimmtíu og
tvö ár og sá gamli þakkaði það eink-
um löngum fjarvistum sínum frá
heimilinu. Meðfylgjandi mynd var
tekin af Hope og eiginkonunni Dol-
ores - ekki Karin eins og sagt var í
Sviðsljósinu - þegar þau komu til
Svíþjóðar sama daginn og Olof
Palme varskotinn.
„Þetta varhræðilegt áfall," sagði
Bob Hope. „Við vorum að nálgast
flugvöllinn þegar flugstjórinn til-
kynnti í hljóðnemann hvað gerst
hafði. Það voru ekki bara Svíamir
sem vom harmi slegnir heldur er-
lendir farþegar vélarinnar einnig.
Það er engin ástæða til að dæma
ástandið í Svíþjóð eftir einum at-
burði og vonandi að þetta haldi
áfram að vera jafnöruggt land og
áður, laust við voðaverk af þessu
tagi.“
Erindi Bobs til Svíþjóðar var að
skemmta Svíum, sem fæstum var
hlátur í huga um þessar mundir, og
einnig að gefa Dolores færi á nokk-
urra daga leyfi ásamt eiginmannin-
um eina og sanna síðustu fimmtíu
og tvö árin - stórstjömunni Bob
Hope.
Þegar grannt er skoðað vantar ekkert upp á innlifun i dansinum. Gestur
Geirsson og Guðrún Ólöf Ágústsdóttir.
í danshléi eru málin skoðuð. Hlynur Antonsson, Jón Hafliðason og Ástríður
Friðgeirsdóttir. DV-myndir GVA
Tatum O'Neal og John McEnroe dönsuðu alla nóttina þegar John
varð tuttugu og sjö ára nýlega.
Þetta var á diskóteki i New York
og á staðinn mættu lika faðir Tat-
Min, Kyan. og oiginkona hans,
anleg merki um sundurlyndi og
■iuyi,# dagskránni. Tatum verður stöðugt
%.;> ntngameiri og bíða ntenn nú í of-
I T vami eftir þvi að barnið liti dagsins
'V' * ljós. Sagt er að þá muni brúðkaups-
\ dagurinn fljótlega renna upp. vin-
lun °S vandamönnunt til mikils
Á irriUi mála íKelduh verfí
Frá Jóni G. Haukssyni, blaðamanni
DV á Akureyri:
Hann kom á móti okkur á vélsleða,
var einn, ók geyst eftir veginum
niður í Kelduhverfið. Svona kúreka
verður að stöðva og spyrja. „Ég er
svona rétt að fá mér frískt loft, leika
mér á milli gjafa,“ var svarið hjá
Hafþóri Jóhannssyni, bónda á bæn-
um Víkingavatni í Kelduhverfi.
Hann segist fara oft einn á sleðan-
um í smátíma eftir hádegið. „Það
þarf að halda dellunni við. Annars
hefur þessi vetur verið helvítis harð-
indi fyrir okkur vélsleðamenn, það
er búið að vera svo snjólétt."
Nægur var snjórinn þó í þetta
skiptið. Nú og búið var að spyrja
til vegar með smáhliðarrabbi. Hafþór
hélt áfram, hinn ökuþórinn líka - inn
i Kelduhverfið.
Hafþór Jóhannsson,
bóndi á bænum Vík-
ingavatni í Keldu-
hverfi: „Það þarfað
halda dellunni við.“
DV-mynd JGH