Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986. Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir ffJWk.SW'*'"4 i«rr» &'•>■ 'ívíif'íiwiar<J' ÍJsítSa^j! rfiikií-. R««* láiftái «s«-w ryhfc'-v. Fíkniefnl um borð i Óskari HaiWérsspi '"wsjff A fista með feeste tiáms* mönnumíUSA kmiízi: J&mvr feooa M <>yU:gÍ?V:iÍiife Fréttaskot DV: 62-25-25 Símanúmerinu breytt í dag Frá og með deginum í dag verður símanúmer fréttaskots DV, símans sem aldrei sefur: 62-25-25. Fyrra númer verður þá ekki í notkun lengur. Þeir lesendur sem óska eftir að koma ábendingum um íréttir á framfæri við blaðið hringja því í síma 62-25-25 hér eftir. Þeir sem eiga önnur erindi við ritstjóm, óska eftir að gerast áskrif- endur eða koma auglýsingum í blaðið hringja í sima 27022 eins og áður. Lesendur em iðnir við að koma ábendingum um fréttir til DV sem íyrr. Meðfylgjandi em nokkur sýnishom úr fréttaskotum sem borist hafa síð- ustu daga og vikur og birst á síðum blaðsins. Þau fyalla til dæmis um íslen- skan heimsmeistara í kóresku karate, huldupeninga í sjóði hjá Selfossbæ, mann sem lokaðist inni í hraðbanka og námsafrek íslendings í USA. Einn- ig fræddi DV lesendur sína um dular- fullt smit úr svartflekkóttum ketti sem olli því að lömb fæddust morkin að Mosfelli og dularfulla bíla í gámi í Sundahöfn. Fleira mætti til nefna af spennandi fréttaskotum og athyglis- verðum sem borist hafa að undanfómu en þetta verður látið nægja í bili. Leikreglur hjá okkur varðandi fréttaskotin em hinar sömu og fyrr. Óski lesandi eftir að koma á framfæri ábendingu um frétt, þá hringir hann í síma 62-25-25. DV tekur á móti frétta- skotum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist eða ábendingu sem notuð er i blaðinu em greiddar 1000 krónur. Þá er valið besta fréttaskotið i viku hverri og fyrir það greiðast 3000 krónur. Fullrar nafn- leyndar og trúnaðar er gætt gagnvart þeim sem hringja inn ábendingar um fréttir. Og þá er ekki annað en að slá á þráðinn í síma: 62-25-25 JSS Þingmenn Norðurianda funda: SjáHstæðisflokkur aflboðar komu sína Þingflokkur Sjálfetæðisflokksins heflir ákveðið að taka ekki þátt í starfsnefnd þingmanna frá öllum Norðurlöndunum sem ætlar að fjalla um kjamorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. í framhaldi af þing- mannaráðstefnu, sem haldin var í fyrra í Kaupmannahöfh, hefur Anker Jörgensen, formaður Jafiiaðarmanna- flokksins í Danmörku, farið þess á leit að hvert Norðurlandanna tilnefni fimm þingmenn í starfenefiid sem fjalla á um þetta mál. Ólaflir G. Einarsson, formaður þing- flokks Sjálfetæðisflokksins, sagði að hann teldi ekki ástæðu til að halda nýja ráðsteíhu því of skammt væri lið- ið frá því að þingmenn Norðurland- anna komu saman og ræddu um kjamorkuvopnalaus Norðurlönd. Á þeirri ráðstefiiu hefðu einnig komið fram tvö meginsjónarmið. Annars veg- ar að rétt væri að lýsa yfir kjamorku- vopnalausum Norðurlöndum einldiða og hins vegar, aðallega innan hægri flokka, að ræða þessi mál í víðara sam- hengi. Einnig væri þegar Ijóst að allmargir þingflokkar innan Norður- landanna ætla ekki að taka þátt í þessum viðræðum. „En við erum tilbúnir að ræða þessi mál á grundvelli samþykktar Alþingis þar sem kveðið var á um kjamorku- vopnalausa Norður-Evrópu," sagði Ólafur. Stefht er að því að þessi þingmanna- nefhd komi saman í Kaupmannahöfh í lok þessa mánaðar. Frá Álþýðuflokki fer Jón Baldvin Hannibalsson, frá Al- þýðubandalagi Svavar Gestsson, frá Kvennahsta Guðrún Agnarsdóttir og frá Framsóknarflokki Ingvar Gísla- son. Enn hefúr ekki borist svar frá Bandalagi jafhaðarmanna. -APH Hnrfstungumálið á Bjarkargötu: Hæstiréttur stytti dóminn • sératkvæði um meiri styttingu Hæstiréttur hefiir dæmt í máli ákæruvaldssins gegn Hjálmari Bald- urssyni, sem dæmdur var í undirrétti í tveggja og hálfe' árs fangelsi fyrir að stinga konu sína tvisvar með eldhús- hnífi. Hæstiréttur stytti dóm undir- réttar í eins og hálfe árs fangelsi. Tveir dómarar Hæstaréttar, þeir Magnús Thoroddsen og Sigurgeir Jónsson, skiluðu sératkvæði og töldu að hæfileg refeing væri 6 mánuðir. Hnífstungan átti sér stað á Bjarkar- götunni 14. maí 1984. í frétt DV af málinu þá segir að Hjálmar hafi tvi- svar lagt til eiginkonu sinnar með hnífnum. Kom annað sárið undh hægra brjóstið og hitt í upphandlegg konunnar. Síðan hafi hann stungið sjálfan sig í kviðinn. Hvorugt var í lífehættu. Rannsóknarlögreglan greindi frá því að Hjálmar hafi oft hótað konu sinni líkamsmeiðingum, en þau voru um það bil að skilja. Upptök átakanna ósönnuö í sératkvæði sínu segja þeir Magnús og Sigurgeir að upptök átakanna milli hjónanna séu ósönnuð og þeir telja ekki skilyrði til þess að dæma ákærða fyrirvaralaust fyrir visvitandi líkams- árás. I atkvæðinu stendur m.a.: „Við teljum ekki sannað að ákærði hafi að fyrra bragði ráðist að Maríu Sigrúnu Jónínu Óladóttur. í fram- burðum ákærða, sem eru að vfeu nokkuð reikulir, er því haldið fram, að María... hafi að fyrra bragði ráðist að honum með hnífi eða otað að hon- um hnífi. Stendur staðhæfing gegn staðhæfingu um upptök átakanna. Við teljum framburði vitnanna... ekki taka af þann vafa sem um upptök áta- kanna er. Meiðsli ákærða voru af- drifaríkari en meiðsli Maríu...“ -FRI Þórann ritstjóri Vikunnar Þórunn Gestsdóttir, blaðamaður á DV, hefur verið ráðin ritstjóri Vikunnar. Þórunn hefur verið blaðamaðiu í rúm fimm ár og var annar umsjónarmaður helgar- blaða DV áður en hún tók við starfi ritstjóra. Þórunn hefur einnig starfað við þáttagerð hjá Ríkisútvarpinu og sem leiðsögumaður. Sigurður Valgeirsson, sem verið hefúr ritstjóri á Vikunni í rúmt ár, hefúr nú hafið störf sem ritstjóri á tímaritinu Heimsmynd. Þórunn Gestsdóttir Fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins: Sjómannadagurinn á morgun: Kappróður og koddaslagur Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur víðast hvar um landið á morgun. Venjulega er hann haldinn hátíðlegur fyrsta sunnudag júnímán- aðar ár hvert en var frestað um eina viku vegna sveitarstjómarkosning- anna um síðustu helgi. Að venju er ýmislegt til skemmtunar og mörg ávörp verða flutt. í Reykjávík hefet dagskráin klukkan 8.00 árdegis á morgun með því að fánar verða dregnir að húni á skipum í Reykjavík- urhöfn. Um hádegisbilið verður skemmtisigling með hvalbátum fyrir almenning um sundin við Reykjavík og um svipað leyti verður bátum og seglskútum siglt inn á höfnina. Samkoman verður formlega sett við Reykjavíkurhöfh klukkan 14.00 síð- degis með ávarpi Steingríms Her- mannssonar forsætisráðherra. Síðan fer fram kappróður í höfninni og koddaslagur af ekjubrún Akraborgar. Veitingar verða til sölu á hafnarsvæð- inu á vegum kvenfélaga sjómanna- kvenna. í Hafnarfirði verður einnig margt til skemmtunar: reiptog, koddaslagur og kappróður. Rétt eftir hádegi verður farið með börnin í skemmtisiglingu út á Hafnarfjörð. Um kvöldið verður síðan almennur dansleikur í Gaflinum í Hafnarfirði. Heimildir okkar til veiða verða ekki takmarkaðar „Á fúndi Alþjóða hvalveiðiráðsins mun engin tillaga koma fram sem felur í sér takmörkun á heimildum okkar til þess að veiða í vfeindaskyni. Hins vegar er hugsanlegt að áskorun byggð á tillögu Svía og Svisslendinga verði samþykkt þar sem hvatt er til tak- markana á veiðum í vísindaskyni. Ef sú áskorun verður samþykkt er það okkar að taka afstöðu til hennar," sagði Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra. Fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem haldinn verður í Malmö í Svíþjóð, hefet á mánudag, 9. júní, og stendur til 12. júní. Búist er við nokkuð stormasömum fúndi og líklegt að te- kist verði á um þessa áskorun Svía og Svisslendinga. „Það hafa verið miklar deilur um það hvort í áskoruninni skuli standa að löndin setji ekki afurðir sínar af veiðum í vísindaskyni inn í alþjóða- viðskipti. Við höfum ekkert við slíkt orðalag að athuga því auðvitað er með öllu óeðlilegt að blanda saman við- skiptum og vísi nd astarfeem i, “ sagði Halldór. -KB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.