Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 23
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
23
- Hverju munu bæjarbúar fyrst
taka eftir þegar ný bæjarstjórn tekur
við?
„Nýjum andlitum. En ég get ekki
núna sagt til um það hver okkar
fyrstu verkefni verða. En það er ljóst
að við munum láta til okkar taka
strax í sumar. En menn verða jafn-
framt að hafa í huga að við búum
núna við þá fjárhagsáætlun sem sam-
þykkt var fyrir þetta ár. Og sú
fjárhagsáætlun - arfur gamla meiri-
hlutans - setur okkur skorður. En
auðvitað munum við reyna að liðka
til eins og hægt er. Við munum finna
svigrúm til að láta til okkar taka á
þessu ári. En það verður ekki að
neinu marki fyrr en á næsta ári að
við getum farið að starfa í samræmi
við nýja starfsáætlun."
Oddaaðstaða eins alþýðu-
bandalagsmanns
- Samstarf við Alþýðubandalagið?
„Ég á von á því. Við áttum gott
samstarf í minnihlutanum. Og á
málefnasviðinu svipar okkur saman.
Ég á ekki von á að neitt hamli okkar
samstarfi i meirihlutaaðstöðu. Því
er þó ekki að leyna að það skapar
viss vandamál að við erum í yfir-
burðaaðstöðu - og svo koma þeir
með einn mann. Það væri barna-
skapur að sjá ekki ákveðna meinbugi
á því.“
- Ertu hræddur við oddaaðstöðu
kommans?
„Hræddur og hræddur ekki; nei,
ég veit að bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins er sanngjarn maður.
Ég trúi því og treysti að þetta muni
ganga snurðulaust. En ég get vel
sett mig í spor Alþýðubandalagsins.
Þeir sjá okkur rjúka upp úr tveimur
fulltrúum í fimm en sjálfir standa
þeir í stað. Það sæti í mér ákveðin
beiskj a ef ég væri í þeirra sporum.
En ég vona að allar tilfinningar í
þessa veru hverfi fljótlega.“
Guðmundur Árni þegar
hann keppti með hand-
knattieiksliði FH.
Ðæjarútgerðin gufuð upp
- Bæj arútgerðin var löngum óska-
barn Alþýðuflokksins í Hafnarfirði.
Nú er hún ekki lengur til. Áttu von
á að það verði einhver breyting á
útgerðarmálunum í Hafnarfirði
núna?
„Bæjarútgerðin erseld. Það erráð-
stöfun sem ekki verður aftur tekin.
Og þeir aðilar sem tóku við þessum
atvinnutækjum hafa staðið sig prýði-
lega. Þeir hafa haldið fyrirtækinu
og skipunum gangandi. Fólkið sem
á hagsmuna að gæta vegna þessa
rekstrar hefur haft atvinnu. Það
skiptir meginmáli. Við færum þau
mál ekki í fyrra horf. Það er ógjörn-
ingur - og engin ástæða til eins og
málum er nú komið. Við styðjum
þessa nýju aðila eins og aðra út-
gerðaraðila í bænum."
Handboltakappinn Guðmund-
ur Arni
Guðmundur Árni er ekta Gaflari.
Hann hefur alið þar allan sinnald-
ur. Um eitt skeið var hann áberandi
maður í meistaraflokksliði FH í
handboltanum, „þjóðaríþrótt“ Hafn-
firðinga. Og eftir að hann hætti
keppni með FH-liðinu og einbeitti sér
að kratapólitík hefur hann einnig
starfað sem þjálfari í handknattleik.
Æskulýðs- og íþróttamál eru honum
líka hugleikin. „Þótt hér í Firðinum
hafi verið fræknir íþróttamenn, eink-
um á sviði handknattleiks, þá er
æfingaaðstaðan þannig að okkar
bestu menn hugleiða að flytja úr
bænum. Þarna verður að spyma við
fótum. Alþýðuflokkurinn lagði það
til við gerð fjárhagsætlunar í mars
sl. að byggja nýtt íþróttahúshið
fyrsta. Það var náttúrlega fellt þá.
En í kosningabaráttunni komu allir
flokkarnir með það mál þannig að
það varð einn samhljómur flokk-
anna. Bygging nýs íþróttahús verður
þannig varla deiluefni í bæjarstjóm
núna. Sama er að segja um aðstöðu
fyrir æskufólk í bænum. Sú aðstaða,
sem æskulýðnum í bænum er boðið
uppá, er fyrir neðan allar hellur.
Unga fóikið hefst við í gamalli ver-
búð hér uppi á reit. Krakkamir
kinoka sér við að sækja þangað. Það
undrar engan. Enda fara þau út úr
bænum - inn í Garðabæ eða til
Reykjavíkur í leit að skemmtun eða
dægradvöl. Það er þvi mjög knýjandi
verkefni að koma upp félagsmiðstöð
í Hafnarfirði. Þar eiga unglingarnir
að hafa aðstöðu til að sinna sínum
áhugamálum og skemmta sér. Félag- "
smiðstöð erforgangsverkefni." Og
bæjarstjóraefni Hafnfirðinga hélt
áfram að hugsa upphátt um þau
málefni sem taka átti á - og um
breytta stjómarhætti - hraðmæltur
maður Guðmundur Ámi, fljótur að
hugsa, fljótur að ákveða sig, fljótur
að finna leiðir. „Bæjarbúarhafa
kvartað uiidan dræmum viðtökum
þegar þeir hafa þurft að leita til
bæjarkerfisins. Kerfið hefur verið
þungt í vöfum og fráhrindandi. Við
viljum opna stjórnun. Galopna. Við
ætlum að snúa þessu við - og leita
út til fólksins.“
-GG *