Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 12
Fjölmiðlar
Fjölmiðlar
Fjölmiðlar
Fjölmiðlar
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNI 1986.
DV-mynd PK.
Bjarni Felixson í KR-peysunni var ekki með þegar Danir unnu Islendinga 14-2.
„Ég held með Dönum“
- segir Bjarni Felixson sem einu sinni gekk í röndóttum nærbuxum
„Ég held með Dönum í heimsmeist-
arakeppninni. Danir eru drengir
góðir,“ sagði Bjarni Felixson sem
hugsar ekki um annað en knatt-
spymu þessa dagana. Hann byrjar
að hugsa um fótbolta strax og hann
vaknar og hættir því ekki þegar
hann kemur heim á miðnætti.
„Þetta getur verið ansi lýjandi,
sérstaklega þegar búið er að senda
út tvo leiki eins og gert var á mið-
vikudaginn. Þá var ég reyndar
stálhress þegar ég kom heim en
morguninn eftir var ég með harð-
sperrur og leið eins og timbruðum
Taugaspenna
Það er ekki gamanið eitt að senda
út knattspymuleiki frá heimsmeist-
aramótinu. Það tekur Bjama heilan
dag að ganga frá 90 mínútna leik,
enda í mörg hom að líta.
„Þetta tekur á taugamar og reynd-
ar erfiðara en væri maður sjálfur á
vellinum að lýsa. Ég sé ekkert annað
en það sem er á skjánum og verð að
leita mér upplýsinga um allt sem að
leiknum lýtur. Nöfn dómara, línu-
varða, keppenda, nafn leikvangar og
hitastigið. Maður sér ekki á skjánum
hvort hitinn er 25 stig eða 35. Leik-
mennimir finna hins vegar fyrir því.
Danska sjónvarpið hefur verið mér
hjálplegt og ég hef fengið að hlýða
á kynningar þeirra áður en leikurinn
hefst. Danir em með tuttugu manna
lið þarna úti og eigin skrifstofu."
Framburður í fyrstu útgáfu
- Hvemig ferðu að því að muna
nöfh allra leikmanna og þeyta þeim
út úr þér í hvert skipti sem þeir fá
boltann?
„Ég er með nafnalista sem ég hef
kynnt mér rækilega."
- En hvernig með framburðinn?
„Ég reyni að bera þetta rétt fram
og ef það mistekst í upphafi leiks þá
held ég mig bara við fyrstu útgáfuna.
Það tekur enginn eftir því, leikmenn-
irnir eru ekki að fylgjast með
framburðinum hjá mér.“
Bjami Felixson lofar sjónvarpsá-
horfendum því að heimsmeistara-
keppnin eigi eftir að verða enn
skemmtilegri en hún er þegar orðin:
„Ballið er enn ekki byrjað. Riðla-
keppnin er róleg því liðin stefna að
því að ná j afntefli, það er hagstæð-
ast. Þau forðast að tapa en þiggja
sigra ef þeir gefast. Um næstu helgi
ætti hins vegar að færast fjör í leik-
ina. Þá byrja úrslitaleikimir þar sem
liðin verða annað hvort að sigra eða
falla út.“
Bráðum fimmtugur
Sjálfur er Bjami hættur að leika
knattspymu, gaf knöttinn endanlega
frá sér í fyrra, enda að verða fimm-
tugur á þessu ári. Áhuginn er þó enn
vakandi, lifið er meira og minna fót-
bolti.
„Nei, ég hef aldrei leikið landsleik
á móti Dönum og átti sem betur fer
engan hlut að máli þegar íslendingar
töpuðu 14-2 í Kaupmannahöfn 1976.
Ég lék 6 landsleiki á árunum 1962-65
og braut reyndar blað í sögu ís-
lenskrar knattspyrnu þegar ég var
fyrst valinn í landsliðið. Þá hafði það
aldrei gerst áður að vinstri bakvörð-
ur væri látinn leika stöðu vinstri
bakvarðar í landsliðinu. Menn vom
hrifnari af því að láta miðframverði
leika þar. Það gafst misvel eins og
sannaðist á Herði bróður mínum
þegar hann var settur í bakvarðar-
stöðuna. Hann var kominn í bún-
ingsherbergið eftir fimm mínútur."
Röndóttar nærbuxur
Það var aðeins í þessum 6 lands-
leikjum sem Bjarni Felixson fór úr
röndóttu KR-peysunni og lék knatt-
spyrnu i öðrum lit. Hann segir
tímann hjá KR bestu ár lífs' síns.
„Ég hef alltaf laðast að röndum,
hvernig sem á því stendur. Ég geng
í röndóttum skyrtum, röndóttum
jökkum og röndóttum sokkum. Þetta
er ekkert sem ég hef einsett mér, eig-
inlega get ég ekki skýrt þetta nema
í gegnum KR. Áður en litasjónvarpið
kom til sögunnar leit alltaf út fyrir
að ég væri í röndóttum KR-skyrtum
á skjánum en það var nú ekki rétt.
Þessar skyrtur voru allar í lit en
vissulega röndóttar. Ég held að ég
eigi ekki nema eina hvíta skyrtu.
Einu sinni gekk ég meira að segja í
röndóttum nærbuxum. það var ein-
hver kaupmaður sem flutti þetta inn
og gat ekki selt af skiljanlegum
ástæðum. Hann hringdi því í mig og
ég var meira en til í að kaupa af
honum nærbuxumar. Ég gekk lengi
í röndóttum nærbuxum."
Óviss endalok
Heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu lýkur ekki fyrr en 29. júlí.
Bjami Felixson á eftir að þylja mikla
nafnarunu áður en yfir lýkur: „Þetta
er þrælavinna. Ég veit ekki hvernig
ég kem til með að líta út þegar síð-
asta leiknum lýkur.“
Kannski röndóttur?
-EIR