Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Qupperneq 6
6 DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986. Peningamarkaður Innlán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn- stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningarnir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. Þriggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er íyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óvjrðtryggðar. Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán- uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyföri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið- réttingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og 15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8% ársávöxtun eða verðtryggðir óg með 3% vöxt- um. Hærri ávöxtunin gildir hvern mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 13'%, nafnvöxtum og 13,4'%, ársávöxtun eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0.7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextir eru 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8, 50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir 18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um hávaxtareikninginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum. nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum sé hún betri. Samanburður er gerður mánað- arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir sparisjóðs- vextir. 8%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur er óbundinn. Þá ársfjórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankanum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf lausir til útborgunar. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- trvggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með 13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti. 8%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél- stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er því einnig 15,5%. 18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri sparisjóðanna eru með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn- vöxtum og 15,2% ársávöxtun. Spariskírteiní Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldejninum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er almennt 12 16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 391 þúsund krónur til einstakl- ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns- tími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir,' vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150 1000 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15- 42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað- ir í einu lagi yfír þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á -10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma- bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft- ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á mánuði eða 27% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986 er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924 stig á grunni 100 frá 1975. Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04. en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega í samning- um leigusala og leigjenda. VEXTIR BANKfl 0G SPABISJÓÐA (%) 01.-10.06. 1986 INNLÁN MEÐ SÉRKJÖRUM sjA sérlista lllllli ll !i llll INNLÁN ÓVERÐTRYGGÐ SPARISJÓÐSBÆKUR Óbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0 6 mán. uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10,0 10.0 12.5 10.0 12 mán. uppsöqn 14.0 14,9 14.0 11.0 12.6 9.0 12,0 9.0 SPARNAÐUR - LANSRFITUR Sparaí 3-5 mán. 13.0 13.0 8.5 10.0 8.0 10.0 Sp.Bmán.ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0 3.0 TÉKKAREIKNINGAR Ávisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4,0 3.0 3.0 Hlaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 INNLÁN VERÐTRYGGO SPARIREtKNINGAR 3ja mán. uppsögn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 6 mán. uppsögn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3,0 3.0 3.0 INNLÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarikjadollarar 7.0 7,5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.25 7.0 6.25 Sterlingspund 11.5 11.5 9,5 9.0 9.0 10.0 10.0 11.5 9.5 Vestur-þýsk mörk 4.0 4,0 3.5 3.5 3.5 3,5 3.5 3.5 3.5 Danskar krónur 7.5 7.5 7.0 7,0 6.0 7.5 7.0 7.0 7.0 ÚTLÁN ÓVERÐTRYGGO ALMENNIRVlXLAR (forvextir) 15,25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15,25 15.25 VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) kge 19.5 kge 19.5 kge kge kge kfl e ALMENN SKULDABREF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 VIÐSKIPTASKULDABREF 3) kge 20.0 kge 20.0 kge kge kge kge HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9,0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0 ÚTLÁN VERÐTRYGGÐ SKULDABREF Afl 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4 JD 4.0 4.0 Lengrien21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 ÚTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJANEÐANMALSI) 1) Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn- ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur- þýskum mörkum 6,25%. 2)Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum. Utlönd Utlönd Utlönd Skjöl, sem birt voru i Frakklandi í gær, benda eindregið til þess að Waldheim segi ekki satt um fortíð sína. Ekki sanna þau þó þátttöku hans í striðsglæpum. Skjól benda til að Waldheim Ijúgi Frakkland birti í gær opinberlega skýrslur um herþjónustu Kurts Wald- heim frá því í stríðinu en eins og kunnugt er þá er Waldheim í framboði til forseta í forsetakosningunum sem fram fara í Austurríki á morgun. Skýrslumar voru meðal þess sem Frakkar lögðu hald á í stríðslok í Berlín. í yfirlýsingu frá Jacques Chirac, for- sætisráðherra Frakklands, var þetta gert með vitund Waldheims og vegna þeirra ásakana sem hann liggur undir vegna meintra grimmdarverka í stríð- inu, Sagt var að franska stjómin hefði ákveðið að birta skýrslumar að ósk Símon Wiesenthal-stofiiunarinnar sem berst gegn nasistum. Ekki em fleiri gögn um Waldheim í fórum frönsku stjómarinnar. Búist er við því að Waldheim, sem hingað til hefur neitað öllum ásökun- um um stríðsglæpi, fari með sigur af hólmi í kosningunum á morgun. Frakkar höíðu áður lýst því yfir að skjölin innihéldu ekkert merkilegt. Þar er staðfest að Waldheim þjónaði í þýska hemum á Balkanskaga frá 1942-1944, en því hefur hann neitað. Samkvæmt skjölunum særðist Waldheim, sem hafði lautinantstign í lok stríðsins, í Sovétríkjunum í des- ember 1941 í bardaga. Skjölin sýna að Waldheim veiktist af skjaldkirtilsveiki þann 15. janúar 1944 og dvaldi einhvem tíma á sjúkra- húsi. Hann kom aftur til sveitar sinnar þann 29. mars sama ár. Þetta var það síðasta sem skráð var um Waldheim í stríðinu. Hljóp berbrjósta inn á völlinn Tuttugu og tveggja ára gömul kona stöðvaði í vikunni krikketleik í Bret- landi með því að hlaupa út á völlinn í hvitum bikinibuxum einum klæða. Ashley Sommers, sem truflaði lands- leik milli Englands og Indlands, hélt á fána sem á stóð, „Komið aftur með Rnt.ham.“ Ian Botham , sem er ein af skæmstu krikketstjömum Englands, var nýve- rið dæmdur í tímabundið leikbann fyrir að reykja hass. Sommers, sem er sýningarstúlka frá Lancashire í Norður-Bretlandi, var færð út af vellinum í fylgd tveggja lögreglumanna. Vinkona hennar, Lucy Ash, sagði fréttamönnum að Sommers hefði gert þetta vegna þess að hún væri mikill aðdáandi Bothams og hefði fengið sér sterkan drykk í hádeginu. „Það var sennilega það sem fékk hana til að gera þetta,“ sagði hún. Svíar varpa sprengj- um að kafbáti Sænska strandgæslan varpaði i gær nokkrum kafbátasprengjum vegna gmns um að kafbátur væri án leyfis innan sænsku landhelginnar, var haft eftir talsmanni vamarmálaráðuneyt- isins. Hann sagði að sprengjunum hefði verið varpað úr varðskipi sem tók þátt í æfingum í sænska skeijagarðin- um nálægt Stokkhólmi. Hann sagði ekki hve margar sprengjur hefðu sprungið. „Enn sem komið er hefur árás okkar ekki borið neinn árangur. Við crum ekki vissir um að það sé kafbátur þama niðri en okkur fannst vissara að varpa sprengjunum fyrst og athuga árangurinn svo,“ sagði talsmaðurinn. Hann sagði að þetta hefði ekki gerst nálægt hemaðarlega mikilvægu svæði. Flotaæfingamar höfðu staðið í nokkra daga að hans sögn. Við æfíngamar hefði komið upp grunur um ferðir erlendra aðila nokkrum sinnum áður en sprengjun- um var varpað í gær. Hann sagði að leitin héldi áfram en ekki yrði hafður mikill viðbúnaður vegna þessa. Það var í október 1981 sem sovéskur kafbátur strandaði við Karlskrona í Svíþjóð. Sovétmenn kölluðu það atvik, „mistök í siglingatækjum". 1984 var árangurslaust loitað að kafbáti undan ströndinni við Karls- krona og á siðasta ári var einnig varpað djúpsprengjum í skerjagarðin- um, en án árangurs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.