Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Blaðsíða 9
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1986.
9
Ferðamál Ferðamál Ferðamál
Ef leiðin
liggur til
Lundúna..
Ef leiðin liggur til London í sumar er upplagt að fara í skoðunarferð í þyrlu upp Thames ána. Þyrlurnar fylgja sömu leið
og ferjurnar, en úr lofti fæst algjörlega ný mynd af hinni gamalkunnu heimsborg.
Það eru eflaust margir sem hugsa
sér að ferðast til Bretlands í sumar og
mun ferðamannastraumurinn heinast
mest til London. Þótt margir flarlægir
og spennandi staðir séu nú ofarlega á
blaði hjá ferðaskrifetofum er alltaf
þægilegt að bregða sér til London og
ferðast út írá borginni ef tíminn leyf-
ir. Hér eru nokkrir fréttapunktar fyrir
þá sem ætla sér að heimsækja Engla
og Saxa í sumar.
London úr lofti
Nú er hægt að komast í skoðunar-
ferðir í þyrlu, þar sem fylgt verður
Thames-ánni frá þyrluvellinum við
Battersea og flogið verður hjá West-
minster og hinum fræga tumi borgar-
innar, the Tower of London, til
Greenwich og aftur til baka. Þyrlu-
ferðimar kosta 35 pund, eða um 2.100
krónur, og þeir sem hug hafa á slíkri
ferð ættu að hafa samband við UK
Air Taxis í síma:(01) 228-9114.
Gestrisni járnbrautanna
I sumar verður meira en milljón af-
sláttarpökkum dreift til erlendra
ferðamanna í Bretlandi. Pökkunum
verður dreift á Heathrow og Gatwick
flugvelli og er það breska jámbrauta-
félagið (British Rail) sem er svo örlátt.
Pakkinn inniheldur kort af London,
bækling þar sem skipulögð er eins
dags ferð og lengri ferð út úr borg-
inni, afsláttarmiða á fjöldann allan af
stöðum og uppákomum, þ.m.t. Dom-
esday, 900. sýninguna í Winchester og
ferðir með leiðsögumanni til Bath og
York. Rausnarlegt, ekki satt?
Lúxus-lest
„The Bomemouth Belle“ er fræg lest
sem hætti að ganga á milli London
og suðurstrandarinnar fyrir 19 árum
en hefur nú aftur verið sett á teinana.
Bomemouth fer tvisvar í viku frá
Waterloostöðinni í London og enda-
stöðin er Bomemouth á suðurströnd
Englands. Farið er á hverjum laugar-
degi fram að 27.september.
Lestin er mjög falleg og samanstend-
ur af átta vögnum sem em með
upprunalegum innréttingum frá 1920-
1930. Farþegum er borið vín og
meðlæti á suðurleiðinni þar sem þeir
geta valið um 3 tíma dvöl í Boume-
mouth eða farið að heimsækja óðals-
setur frægra manna í nágrenninu.
Farmiðinn kostar rúmar 6.000 krónur
og er þá allt innifalið.
Þessi glæsilega gamla lest fer einnig
í reglulegar ferðir frá London til Leeds
Castle í Kent ( 5.500 kr.), Bath og
Bristol (6.200 kr.) og til Hever Castle
og Penshurst Place í Kent (4.600 kr.).
Ef þið emð á leið til London og hafið
áhuga á þessum ferðum þá getið þið
hringt í síma: (01) 353-2879 eða 583-
2187.
Kastaiar og herragarðar
Nú er búið að gefa út vegabréf sem
veitir aðgang að öllum helstu köstul-
um, óðalssetrum og herragörðum í
Englandi og Skotlandi, auðvitað að
því tilskildu að þeir séu opnir almenn-
ingi. Þetta er nokkurs konar bækling-
ur í vasabroti, þar sem allar helstu
upplýsingar um 36 sögulega staði, auk
skírteinis sem veitir ókeypis aðgang
að þessum stöðum. Þetta vegabréf er
einungis ætlað erlendum ferðamönn-
um og kostar um 700 krónur. Upplýs-
ingar fást í síma: 0202-26577.
-S.Konn.
I VARAMIi
I AKAHLUTIR
OPIÐ í DAG
E9-2
0 3 7 2 7 3
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
LAUSAR STÖÐUR
Við Fjölbrautaskólann á Akranesi: staða aðstoðar-
skólameistara.
Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti: tvær stöður í hjúkr-
unarfræðum, ein í félagsfræðum, ein í eðlisfræði, ein
í málmiðnum og hálfar stöður í bókmenntum, efna-
fræði og rafeindatækni.
Við Flensborgarskóla: kennarastaða í viðskiptagrein-
um og staða kennara í efnafræði (til eins árs).
Við Menntaskólann á Akureyri: stöður í líffræði, þýsku
stærðfræði/eðlisfræði og hálfar stöður í íslensku og
dönsku. Umsóknarfrestur um allar stöðurnar til 20.
júní.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
KjsSsSS? ÍlÆa?
BRAUTARHOLTI 3* - SÍMI: 6212 40
Renault GTL 9 árg. 1984, ekinn MMC Tredia GLS árg. 1983, ekinn
18.000 km, verð kr. 310.000, grá- 44.000 km, verð kr. 300.000, hvítur.
sans.
Audi 100 CL árg. 1982, 5 cyl., ek- Fiat Uno 45 S árg. 1985, ekinn
inn 48.000 km, verð kr. 400.000, 33.000 km, verð kr. 230.000, svart-
steingrár. ur.
Volvo 240 GL árg. 1984, ekinn VW Jetta CL árg. 1985, ekinn 17.
44.000 km, verð kr. 490.000, blás- 000 km, verð kr. 400.000, vín-
ans. rauður.
G0H ÚRVALIUÝLEGRA BÍLAÁ STAÐNUM
TÖLVUVÆDD ÞJ0NUSTA
RÚMGÓÐUR SÝNINGARSALUR
— REYNDIR SÖLUMENN —
OPIÐ:
Mánud.— föstud.kl. 9.00—19.00.
Laugard. kl. 10.00—19.00.