Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1986, Side 22
22
DV. LAUGARDAGUR 7. JÚNl 1986.
Krataveldið
uppvakið
í Hafnarfirði
Hafharfjörður var fyrr á
árum stundum nefhdur
„rauði bærinn“. Þá var
Alþýðuflokkurinn öflugur í bæn-
um og beitti sér fyrir ýmsum fé-
lagslegum aðgerðum m.a. til
atvinnuuppbyggingar, svo sem
stofhun bæjarútgerðar. Kannski
var það tímanna tákn að þegar
bæjarstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samtök óháðra borgara í Hafnar-
firði hafa lengi tekið virkan þátt í
bæjarmálefnum suður frá. Upphaf-
lega voru samtökin klofningsfram-
boð út úr Alþýðuflokknum.
Hugsunin á bak við framboðið var,
eins og víðar, áhugi á að hefja bæjar-
málefnin yfir pólitískt þras eða átök
og reyna að fást við byggðamál á
einhverjum óskilgreindum og ópóli-
tískum grundvelli. Óháðir í Hafnar-
firði nutu mikils fylgis um eitt skeið,
en upp á síðkastið hefur stemmning-
in kringum þetta framboð dofnað,
fylgið reyst af þeim og á síðasta kjör-
tímabili mynduðu hinir óháðu
meirihluta með Sjálfstæðisflokkn-
um. Ámi Gunnlaugsson, lögmaður
og fasteignasali í Hafnarfirði, var
lengst af oddviti hinna óháðu í Firð-
inum. Hann er úr þekktri Alþýðu-
flokksfjölskyldu. Bróðir hans er
Stefán Gunnlaugsson sem var bæjar-
stjóri í Hafnarfirði á árunum 1954 til
62. Synir Stefáns, þeir Gunnlaugur
og Guðmundur Ámi hafa beitt sér
af krafti í Alþýðuflokknum síðustu
árin. Guðmundur Árni var blaða-
maður og svo ritstjóri Alþýðublaðs-
ins. Gunnlaugur, sem nú er
starfsmaður Hjálparstofnunar kirkj-
unnar, sat á Alþingi þegar þingmenn
krata vom fleiri en þeir hafa verið í
seinni tíð. Á sama þingi sat Finnur
Torfi, bróðir hans. Og nú leiddi Guð-
mundur Árni Hafnarfjarðarkrata til
sigurs í bæjarstjómarkosningunum
og er líklegur til að feta í fótspor
föður síns og verða bæjarstjóri - með
stuðningi eina bæjarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins. Helgarblað DV
bað Árna Gunnlaugsson, föðurbróð-
ur Guðmundar Áma, að gefa sína
skýringu á því hvers vegna hafhf-
irskir kjósendur hefðu nú aftur fylkt
sér um Álþýðuflokkinn. En Ámi
vildi ekki fiölyrða um hafnfirska
pólitík. „Þessi mál ræði ég ekki,“
sagðihann.
„Rauði liturinn breytist ekki“
Guðmundur Ámi, forsvarsmaður
nýja meirihlutans, hafði hins vegar
ekkert á móti því að ræða við blaða-
mann. Og við byrjuðum á því að
spyrja hvort Hafnarfiörður yrði hú
aftur „rauði bærinn" eins og fyrrum.
„Rauði liturinn breytist ekki. En
það eru aðrir tímar núna. Það er
vitanlega óhugsandi að við getum
lifað núna eins og gert var áður. Það
verða menn að gera sér ljóst. En
Alþýðuflokkurinn er kominn til
valda aftur. Það hefur ákveðin áhrif.
Við lítum til fortíðar og lærum af
henni, en nú eru aðrar aðstæður. Við
verðum auðvitað að lifa í takti við
tímann. íhaldið sagði í kosningabar-
áttunni að Alþýðuflokkurinn hefði
ekki sinnt dagvistunarmálunum fyrr
á árum. Sannleikurinn er hins vegar
sá að þótt meira sé by ggt af dag-
heimilum núna en þá var, þá full-
nægðu þeir þörfinni fyrir dagvistun
barna hér áður. Þörfin var ekki sú
sama og nú er. Þessi málfiutningur
sjálfstæðismanna er sambærilegur
við það og hefðu þeir álasað fyrri
bæjarstjórnum Alþýðuflokksins fyrir
að tölvuvæða ekki bæjarkerfið árið
1954.“
Að tala viðfólkið
Ný bæjarstjóm tekur við í Hafnar-
firði eftir 15. júní. Þegar við ræddum
við Guðmund Árna voru allar líkur
á að samstarf tækist milli fimm nýrra
bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins og
fúlltrúa Alþýðubandalagsins - og
einhver hafði nefnt þann möguleika
að bæjarstjórinn yrði pólitískur eins
og í Keflavík. - Heitir væntanlegur
bæjarstjóri Guðmundur Ámi?
„Það hefur ekki verið rætt - ráðn-
ing bæjarstjóra er ekki afráðin,"
sagði Guðmundur Ámi og varð
leyndardómsfullur á svip eins og
stjórnmálamenn jafnan verða þegar
spurt er um eitthvað sem hefur póli-
tíska þýðingu. Sjómennirnir, sem við
hittum við höfnina í Firðinum, tóku
þeirri hugmynd vel þegar við rædd-
um við þá. „Það skiptir mestu að
nýja bæjarstjómin breyti um vinnu-
framboös Óháðra borgara hafði
lagt bæjarútgerð Hafnfirðinga
niður þyrptust kjósendur aftur að
Alþýðuflokknum og gömlu Hafn-
arfjarðarkratarnir, sem um langt
skeið áttu ekki nema tvo bæjar-
fulltrúa og voru löngum í minni-
hluta, urðu á einni kosninganóttu
á nýjan leik stærsti flokkurinn í
bænum.
brögð frá því sem verið hefur," sagði
einn þeirra. „Bæjarstjórinn og kjöm-
ir fúlltrúar verða að ræða við fólkið.
Hér við höfnina er margt sem þarf
að lagfæra, margt sem þarf að ræða.
Við ætlumst til þess að það verði
rættvið okkur.“
„Já,“ sagði Guðmundur Árni. „ Við
tölum saman.“ Og brosti svo breitt í
júnísólinni - „maður er varla búinn
að átta sig á þessum kosningasigri.
Það er svo margt hér sem þarf að
huga að. Og þessi hugmynd um að
ég verði bæjarstjóri - ég veit varla.
Ég hef í nógu að snúast og veit af
reynslu að það er mikið starf að stýra
einu bæjarfélagi. Hafnarfiörðurer
ekkert smápláss. Fjörðurinn er einn
af stærri kaupstöðum landsins."
Þegar Stefán, faðir Guðmundar
Áma, var bæjarstjóri vom íbúar í
Hafnarfirði um 5000 talsins. Nú em
þeir um 14000. Bæjarfélagið hefur
tekið miklum stakkaskiptum. Og á
áreiðanlega eftir að halda áfram að
vaxa.
„Við viljum opna bæjarstjórn. Við
ætlum að tala við fólkið, svo mikið
er víst,“ sagði Guðmundur Ámi. Ef
hann verður bæjarstjóri verður hann
væntanlega í hópi yngstu manna sem
stýrt hafa stórum kaupstað. Maður-
inn er ekki nema þrítugur.
Kratarósin að springa út
Við ræddum við Guðmund Árna
heima hjá honum á Hringbrautinni
í Hafnarfirði. Sumarsólin var örlát á
geisla sína þennan dag og við stillt-
um krataforingjanum upp til
myndatöku við beinvaxna björk í
garðinum. Innandyra ambraði ný-
fæddur sonur hans í vöggu, tíu daga
gamall - „sannkallaður kosninga-
snáði,“ sagði Guðmundur Ámi og
pírði augun í sólskininu. „Það er nú
ekki sami fyrirgangurinn í þessum
pilti og föðurnum - ekki ennþá,“
sagði frúin í húsinu, Jóna Dóra
j Karlsdóttir. „En það er oft hávaði í
! kringum þessa krata þegar þeir
stækka. Og nú er þeim allt í einu
farið að fiölga “
Rósirnar í stofunni heima hjá Guð-
mundi Áma og Jónu Dóm voru
legíó. Vinir og kunningjar höfðu nær
fyllt íbúðina af þessu blómstri sem
sósíaldemókratar um allan heim hafa
gert að tákni sínu. Nýtt barn; nýr
bæjarstjórnarflokkur; vor í lofti - á
að láta hendur standa fram úr erm-
um, GuðmundurÁrni?
„Kratarósin er að springa út, svo
mikið er víst - en við æðum ekki af
stað eins og kálfar á vori. Við erum
raunsæ. Við gerum okkur til dæmis
ljóst að fæst okkar hafa mikla
reynslu af bæjarstjórnarstörfum.
. Ætli ég sé ekki sá sem mesta reynslu
hefur og hef þó ekki setið í bæjar-
stjórn nema eitt kjörtímabil - í
minnihluta. Nú tekur alvara lífsins
við.“
- Líturðu á fylgisaukningu Al-
þýðuflokksins og Alþýðubandalags-
ins víða um land sem einhvers konar
fyrirboða um vænkandi hag A-flokk-
anna eins og Svavar Gestsson hefur
haft við orð?
„Ég vil engu spá um framtíðina.
En landsmálin spila auðvitað heil-
mikið inn í í hugum fólks þegar það
er að kjósa. Hér í Hafnarfirði hafa
húsnæðismálin t.d. verið í ólestri
eins og annars staðar. En ég held að
það sé ekkert augljóst og heint sam-
band á milli hinna einstöku byggða.
Alþýðuflokksmenn í Keflavík unnu
frægan sigur núna - þar veldur sjálf-
sagt bág staða í útgerðar- og fisk-
vinnslumálum. Sama hefur verið
uppi á teningnum hér.“
Guðmundur Árni Stef-
ánsson - með „kratarós-
ina“ í tilefni kosningasig-
ursins - „félagsmiðstöð
og íþróttahús eru for-
gangsverkefni“.