Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1986, Side 6
28
FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986.
♦
Bygginguna, sem saíhið er í,
teiknaði Einar sjólfur ásamt Guð-
jóni Samúelssyni, húsameistara
ríkisins, og var safnið opnað árið
1923. Var bygging hússins styrkt
af ríkinu og nokkrum einstakling-
um ó sínum tíma.
í listasafninu eru sex sýningar-
Höggmyndir Einars Jónssonar, stórbrotin listaverk.
Höggmyndir í fögru umhverfi
Við hliðina á Hallgrímskirkju,
nánar til tekið við Njarðargötuna,
stendur listasafa Einars Jónssonar
myndhöggvara.
Hann fæddist á Galtafelli í Ár-
nessýslu 11. maí 1874. Hann
stundaði nám í Kaupmannahöfn
við einkaskóla Stephan Sindings
og jafaframt við Teknisk Selskabs
Skole. Einnig stundaði hann um
hríð nám við einkaskóla Gustav
og Sophus Vermehren og Konung-
legu Akademíuna fró 1895-99.
Einar sýndi fyrst opinberlega í
Kaupmannahöfn árið 1901. Fram
til órsins 1920, er hann fluttist al-
kominn til íslands, var hann lengst
af búsettur í Kaupmannahöfa en
einnig í Róm, Berlín, London og
Bandaríkjunum. Einar Jónsson
lést 1954 áttræður að aldri.
salir á tveim hæðum ásamt fögrum
höggmyndagarði þar sem högg-
myndum og fögrum gróðri hefur
verið komið fyrir á smekklegan
hótt. Á efstu hæð hússins er íbúð
listamannsins en hún er ekki til
sýnis almenningi. Listaverkin í
safainu eru um hundrað og tuttugu
talsins. Þar gefur aðallega að líta
höggmyndir en einnig eru til sýnis
nokkur málverk eftir listamann-
inn.
Safnið er opið frá kl. 13.30 til
16.00 alla daga nema mánudaga.
Vetraropnunartími hefst í sept-
ember en þá er safnið opið sunnu-
daga og miðvikudaga. Unnendur
fagurra lista eru hvattir til að
skoða þetta skemmtilega safn eins
fremsta listamanns vorrar þjóðar.
Stjörnbíó
Ein vinsælasta myndin hérlendis
sem erlendis á síðasta ári var The
Karate Kid. Eins og við var að
búast hefur verið gerð framhalds-
mynd sem nefnist einfaldlega
Karatemeistarinn 2 (The Karate
Kid II). Nú er Daníel orðinn viður-
kenndur karatemeistari og er enn
í þjálfun hjá Miyagi. Saman fara
þeir í pílagrímsheimsókm til Jap-
ans þar sem karate er upprunið,
nánar tiltekið til heimabæjar Miy-
agi á eyjunni Oginawa. Þar á
Miyagi gamla óvini sem ætla sér
að gera upp sakir sínar við hann.
Það eru þeir sömu sem standa að
Karate Kid II og fyrri myndinni.
Leikstjóri er hinn sami, John
Avildsen, og aðalhlutverkin eru
leikin af Ralph Macchio og Noriy-
uki „Pat“ Tomita.
Austurbæjarbíó
Þú ert sjúkdómur, ég er lækning-
in, segir Sylvester Stallone um leið
og hann drepur morðingja í nýjustu
mynd sinni, Cobra, sem flestir eru
sammála um að taki fram öllum
ofbeldiskvikmyndum sem gerðar
hafa verið. I þetta skiptið leikur
Stallone hvorki fyrrverandi her-
mann né boxara heldur lögreglu-
mann í Kalifomíu sem á að gæta
laga og réttar og það gerir hann
með ofbeldinu. Þrátt fyrir að Cobra
hafí fengið dágóða aðsókn í Banda-
ríkjunum þá er það ekkert á við
þá aðsókn sem Rambo og Rocky IV
fengu. Kenna menn því um að jafn-
vel Bandaríkjamönnum, sem þó eru
ýmsu vanir, ofbjóði ofbeldið í
myndinni.
Háskólabíó
Martröð á þjóðveginum (Hitcher)
fjallar um ungan mann sem tekur
að sér að ferja bíl frá Chicago til
vesturstrandarinnar. Þegar hann
álpast til að veita ókunnum putta-
ferðalangi far með bílnum hefst
ógnþrungin atburðarás. Ókunni
maðurinn reynist hið versta fól. í
Háskólabíói er einnig sýnd Reykja-
vík, Reykjavík, ný íslensk kvik-
mynd eftir Hrafn Gunnlaugsson.
Myndin fjallar um Reykjavík nú-
tímans að mestu leyti og er þema
myndarinnar fíölskylda sem er á
hraðri ferð í lífskapphlaupinu að
koma sér upp einbýlishúsi.
Bíóhúsið
Þá er hún komin hingað hin
mikla ævintýramynd Ridley Scott,
Myrkrahöfðinginn (Legend).
Myndin fíallar um baráttu hins illa
gegn hinum góða. Myndin þykir
mikið tækniundur og gengur ó
ýmsu eins og von var frá leikstjór-
anum er gerði Blade Runner og
Alien. Aðalhlutverkin eru í hönd-
um ungra og efnilegra leikara, Tom
Cruise og Tim Curry.
Laugarásbíó
Skuldafen (The Money Pit) er
Regnboginn
í kapp við tímarrn
Sean Penn er þegar orðinn þekkt-
ur og eftirsóttur leikari. Ekki hefur
það skemmt fyrir honum að hann
er giftur poppgyðjunni Madonnu.
Það eru ekki nema þrjú ár síðan
hann vakti fyrst athygli. Það var
í kapp við tímann (Racing With
The Moon) sem loks hefur rekið á
fíörur íslenskra kvikmyndahús-
gesta, síðust mynda hans sem hann
hefur leikið í hingað til. í kapp við
tímann gerist 1942 í smábæ einum.
Stríðið geisar í Evrópu og tveir
vinir ákveða að ganga í herinn.
Myndin gerist að mestu á stuttum
tíma áður en þeir fara í stríðið og
fíallar um samskipti kynjanna.
Vinirnir tveir fó sinn skammt af
óstinni áður en horfið er á braut.
Það er ekki aðeins Sean Penn sem
sýnir úrvalsleik i þessari ágætu
mynd. Nicolas Cage og Elizabeth
McGovern eru einnig mjög góð.
glæný gamanmynd þar sem einn
af aðstandendum myndarinnaer er
enginn annar en Steven Spielberg.
Myndin fíallár um Önnu og Walter
sem héldu að þau væru að gera
reyfarakaup þegar þau keyptu
tveggja hæða villu. Seinna kemur
fram að þetta voru ekki svo góð
kaup, en þá eru þau orðin föst í
skuldafeninu. Það eru úrvals-
gamanleikarar sem fara með
aðalhlutverkin. Tom Hanks leikur
Walter. Hanks er að verða einhver
besti gamanleikari vestanhafs eins
og Splash og fleiri myndir bera með
sér. Önnu leikur Shelley Long sem
sjónvarpsáhorfendum er vel kunn
fyrir írábæra frammistöðu sína í
Staupasteini.
Bíóhöllin
Þeir sem skemmtu sér vel yfir
Funny People eitt og tvö munu
ábyggilega eiga góðar stundir yfir
myndinni Fyndið fólk í bíó (You’re
in the Movies) sem, eins og fyrr-
nefadar myndir, fíallar um hvers-
dagsfólk í hinum ýmsu uppákom-
um ón þess að vita af því.
Kvikmyndavélinni er leynt. Aðrar
myndir i Bíóhöllinni, sem vert er
að mæla með, eru Óvinanáman
(Enemy Mine), mynd sem byrjað
var að taka hér á landi, eins og
flestum er kunnugt, og Út og suður
í Beverly Hills sem er nýjasta mynd
Paul Mazurski, með Nick Nolte,
Bette Midler og Richard Dreyfuss
í aðalhlutverkum. -HK
Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina — Hvað er á seyði um helgina —
Sýningar
Árbæjarsafn
Opið alla daga kl. 13.30-18 nema mánu-
daga er lokað.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
Sýning á Reykjavíkurmyndum Ásgríms
Jónssonar í tilefni af aimæli borgarinnar.
Sýningin er opin alla daga nema laugar-
daga kl. 13.30-16 og stendur til ágústloka.
Ásmundarsafn
' við Sigtún
Opnunartími safnsins er á þriðjudögum,
fimmtudögum, laugardögum og sunnudög-
um frá kl. 14-17.
Ásmundarsalur
við Freyjugötu
Engin tilkynning hefur borist um sýningu
þessa helgi.
Borgarleikhúsið
Tæknisýning í tilefni 200 ára afmælis
Rey kj avíkurborgar.
Djúpið
við Hafnarstræti
Danskur grafiklistamaður, Morten
Christoffersen sýnir dúkristur í svarthvítu
og litum
Gallerí Borg,
Pósthússtræti
Sumarsýning stendur yfir, skipt um mynd-
ir reglulega. Galleríið er opið frá kl. 10-18
virka daga.
Gallerí Gangurinn
Þann 4. ágúst var opnuð sýning á verkum
austurríska málarans Fritz Grosz. Hann
málar abstrakt myndir. Nokkrar olíukrít-
armyndir eru einnig á sýningunni. Hún
mun standa yfir í mánuð.
Gallerí íslensk list,
Vesturgötu 17
Þar stendur yfir sumarsýning Listmáiara-
félagsins. 15 félagar Listmálarafélagsins
sýna. Þetta er sölusýning og er hún opin
virka daga frá kl.9-17 og kl. 14-18 um
helgar.
Hótel örk
i Hveragerði
Halla Haraldsdóttir myndlistarmaður
sýnir 19 glerverk um þessar mundir.
Kaldalækur
Ólafsvík
Kjartan Guðjónsson sýnir tólf grafík- og
vatnslitamyndir. Sýningin er opin frá ki.
15-23 fimmtudaga-sunnudaga. Hún stend-
ur til 7. september
Kjarvalsstaðir
Miklatúni
Sýningin Reykjavík í 200 ár - Svipmyndir
maiuilífs og byggðar stendur yfir.
Mokkakaffi,
Skólavörðustíg
Sýning á vatnslitamyndum eftir Sólveigu
Eggerz Pétursdóttur. Myndimar eru svo-
kallaðar Reykjavíkurstemmningar og eru
þær málaðar í tilefni af 200 ára afmæli
Reykjavíkur. Þetta er sölusýning.
Nýlistasafnið,
Vatnsstíg
Þann 28. ágúst var opnuð sýningin Stefnu-
mót þar sem myndiistarmennirnir Þorlák-
ur Kristinsson, Tolli og Kóreumaðurinn
Bong-Kyou Im sýna. Sýningin er opin frá
kl. 14-22 um helgar og 16-22 virka daga.
Henni lýkur 7. september.
Norræna húsið
v/Hrmgbraut
Sumarsýning stendur yfir. Að þessu sinni
eru á sýningunni verk fjögurra listmálara
af yngri kynslóðinni, þeirra Einars Há-
konarsonar, Gunnars Árnar Gunnarsson-
ar, Helga Þorgils Friðjónssonar og
Kjartans Ólasonar. Sýningin verður opin
daglega kl. 14-19:
1 anddyrinu stendur yfir sýning á ljós-
myndum og sáldþrykki eftir þýska ljós-
myndarann Karlheinz Strötzel. Fyrir-
myndir hans að öllum myndunum er
íslenskt landslag og gamlir íslenskir torf-
bæir. Myndimar eru til sölu og rennur
ágóðinn af sölu þeirra til byggingar Hall-
grímskirkju.
Listasafn ASÍ,
Grensásvegi
Á morgun verður opnuð sýningin World
Press Photo 1986. Á sýningunni em um
180 myndir er hlutu verðlaun í alþjóðlegri
samkeppni blaðaljósmyndara. Sýningin
verður opin virka daga kl. 16-20 og um
helgar kl. 14-22. Henni lýkur 14. septem-
ber.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
er opið alla daga nema mánudaga frá kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega frá kl. 10-17.