Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
Uúönd
,Drep í holdi sem
skera þarf buit“
Mittenand Frakklandsforseti um hiyðjuverkaölduna að undanfömu
Lögreglumaður í Paris leitar vopna á vegfarendum á Champs Elysees. Miklar
öryggisráðstafanir setja nú svip á daglegt líf í frönsku höfuðborginni.
Abbý veldur óskunda á Formósu
Fellibylurinn Abbý gengur nú yfir
Formósu og hefur þegar valdið nokkru
tjóni á mannvirkjum.
Vindhraðinn náði allt að 240 kíló-
metrum á klukkustund í nótt og
hamlaði samgöngum á landi og í 'lofti
fram á morgun .
Einn maður hefur þegar látið lífið í
óveðrinu. Að sögn lögreglunnar fauk
hann fram af þaki, sem hann var að
gera við, og lést samstundis.
Forseti Frakklands, Francois Mitter-
rand, flaug heim í morgun frá Indónes-
íu til fundar við Jacques Chirac
forsætisráðherra vegna sprengjutil-
ræðanna í París.
Mitterrand aflýsti áætlaðri heim-
sókn til sérstaks sumarleyfisstaðar á
Bali eftir að hafa afþakkað allar hátíð-
legar móttökuathafnir og skoðunar-
ferðir sem ráðgerðar voru vegna
opinberrar heimsóknar hans í Indó-
nesíu.
Sagði Mitterrand við brottför-sína
að hann mundi fara strax til fundar
við Chirac til þess að ræða nýjustu
öryggisráðstafanimar. Einnig sagðist
hann mundu íhuga hvort hann ætlaði
að ávarpa þjóðina.
Chirac sagði í ræðu í gærkvöldi að
að Frakkland myndi ekki láta hryðju-
verkamenn kaupa sig og ekki yrði
gefist upp. Mitterrand sagði á blaða-
mannfundi í Balí í gær að hiyðju-
verkastarfsemi væri eins og drep í
holdi sem skera þyrfti burtu.
Markmiðið með heimsókn Mitter-
rand var að ’örva viðskipti milli
landanna og vopnasölu Frakka. At-
hygli almennings beindist þó einkum
að kjamorkutilraunum Frakka á
Kyrrahafi og hryðjuverkunum í París.
Franski sendiherrann, Loic Hennek-
ine, sagði ferðina hafa verið gagnlega
þrátt fyrir breyttar áætlanir en vegna
þeirra missti Mitterrand af danssýn-
ingu í gærkvöldi. Fjórir ráðherrar og
mannmörg viðskiptanefhd vom í fylgd
forsetans.
Haft er eftir Suharto forseta að
Frakkland muni ljúka við seinni hluta
byggingu alþjóðlegs flugvallar í Ja-
karta og er það samningur upp á 220,5
milljónir dollara.
Ætla sér
tvö hundrað
milljarða
kflómeba
út í geim
HaBdór Valdimaiffiom, DV, DaBas:
Þrátt fyrir áföll undanfama
mánuði, harða gagmýni og fyrir-
sjáanlegan samdrátt em stjóm-
endur bandarísku geimferðastofh-
unarinnar ákveðnir í að halda sínu
striki.
Nýjustu merki þess em áætlanir,
er nú hafa verið gerðar opinberar,
um að senda ómannað geimfar í
nær tvö hundmð milljarða kíló-
metra ferðalag út í himingeiminn
i þeim tilgangi að reyna að komast
fyrir um aldur alheims.
Áætlun þessi er ekki komin langt
á veg enn því ekki er tahð að geim-
farið hefji ferð sína fyrr en eftir
næstu aldamót, nánar tiltekið á
fyrsta áratug tuttugustu og fyrstu
aldarinnar.
Um áratug eftir að geimfarið
hefur ferð sína mun það verða
komið út fyrir sólkerfi okkar og
fara að sinna meginhlutverki sínu.
Því er ætlað að ákvarða fjarlægðir
til annarra stjörnukerfa mun ná-
kvæmar en áður hefur verið
mögulegt.
Meðal annars mun geimfarið
mæla fjarlægðir til fjarlægustu
stjömuþoka er þekkjast í dag.
Vitneskja um fjarlægðir þessar
mun svo gefa vitneskju um aldur
alheims sem í dag er talinn um
tuttugu trilljón ára gamall.
Jafiiframt mun fhrið eiga að
kanna hvað hæft er í fullyrðingum
um að sólkerfi okkar sé umkringt
skýi af halastjömum, svonefndum
oorts, sem tahð er samansett af
milljörðum halastjama.
Kostnaður við áætlánir þessar
er áætlaður um einn milljarður
Bandaríkjadala. Miðað við lengd
ferðalagsins verður sá reikningur
að teljast í lægra lagi því að fyrir
hvem dollara fást hundrað og sex-
tíu kflómetrar.
Reiknað yfir í bensín á núgild-
andi verði samsvarar það því að
komast fjömtíu kílómetra á hverj-
um bensínlítra, er hlýtur að teljast
dágott.
Austur-Þjóðverjar takmarka
straum erlendra flóttamanna
Asgeir Eggertesan, DV, Mindien:
Frá og með fyrsta október næstr
komandi mun Austur-Þýskaland
stöðva þann straum flóttamanna er
að undanfömu hefur verið frá Aust-
ur-Berlín til Vestur-Berlínar.
Hingað til hafa Austur-Þjóðveijar
ekki krafist vegabréfsáritunar til
handa erlendum flóttamönnum er
komið hafa til landsins á leið sinni
vestur yfir jámtjald.
Eftir þann fyrsta október munu
aðeins þeir fá að fara til Vestur-
Berlínar er hafa vegabréfeáritun til
nágrannaríkja Austur-Þýskalands.
Samkomulagið var gert fyrir milli-
göngu sósíaldemókrata í Vestur-
Þýskalandi, sem verið hafa í
stjómarandstöðu hér undanfarin ár.
Hér hefur flóttamannavandamálið
verið ofarlega á baugi undanfama
mánuði og hafði einn stjómarflokk-
urinn boðað breytingar á stjómar-
skránni ef ekki yrði hægt að leysa
vandamálið á annan hátt.
í Vestur-Þýskalandi hefur verið
boðað til kosninga á næsta ári og
er haft eftir talsmönnum sósíaldemó-
krata að stjómarflokkamir notuðu
flóttamannavandamálið í kosninga-
baráttunni.
Á fyrstu mánuðum þessa árs hafa
yfir fjörutíu þúsund flóttamenn beð-
ið um hæli í Vestur-Þýskalandi eftir
að hafa komist til landsins um Aust-
ur-Þýskaland til Vestur-Berlínar.
Bandaríska flugfélagið People Express hefur nú tekið tilboði flugfélagsins Texas Air um kaup á félaginu. Þá mun Texas Air einnig kaupa dótturfyrirtæki
People Express, Frontier Airlines, er átt hefur við mikla greiðsluerfiðleika að etja og hefur nú verið lýst gjaldþrota.
Verður Texas Air stærsta
flugfélag Bandaríkjanna?
því strax árið 1984 var fjögurra millj-
óna doUara halli á fyrirtækinu og á
næsta árinu var hallinn orðinn nær
tuttugu og sjö milljónir Bandaríkja-
dollara.
Á fyrstu sex mánuðum þessa árs
hefiir félagið tapað yfir hundrað og
þijátíu milljónum dollara.
Talið er að fargjöld People Express
muni fljótlega hækka allverulega þó
reynt verði að halda þeim undir því
er almennt tíðkast á markaðnum.
HaBdór Valdimaisaan, DV, DaBas:
Skýrt var frá því í vikunni að banda-
ríska flugfélagið People Express hefði
tekið tilboði fyrirtækisins Texas Air
um kaup á fyrirtækinu.
Ef tilskilin leyfi flugmálayfirvalda
fast mun Texas Air kaupa People Ex-
press fyrir 125 milljónir Bandaríkjad-
ala. Þá mun Texas Air einnig kaupa
dótturfyrirtæki People Express,
Frontier Airhnes, sem nú er gjald-
þrota.
Fyrir skömmu festi Texas Air kaup
á öðru flugfélagi, Eastem Airlines,
fyrir nær sjö hundruð milljónir Banda-
ríkjadala.
Þau kaup bíða einnig samþykkis
hérlendra flugmálayfirvalda.
Ef af öllum þessum flugfélagavið-
skiptum verður mun samruni félag-
anna skapa stærsta flugfélag
Bandaríkjanna því sameinað yrðu þau
um tuttugu prósent stærri en United
Airlines sem nú er stærst.
People Express, sem stofnað var í
upphafi þessa áratugs, hefur alltaf
vakið mikla athygli því margt í starf-
semi þess var ólíkt því er tíðkaðist á
meðal annarra flugfélaga. Félagið
bauð upp á lægri fargjöld en önnur
flugfélög, að sögn forráðamanna þess,
með því að afnema ýmsa þætti í þjón-
ustu svo sem i mat og drykk.
Starfefólk félagsins vann einnig fyrir
mun lægri laun en gerðist annars stað-
ar en fékk í staðinn verulega eignarað-
ild að fyrirtækinu.
People Express gekk vel í upphafi.
Árið 1983 var ágóði af fyrirtækinu
kominn upp í liðlega tíu miHjónir doll-
ara. Upp úr því hallaði þó undan fæti
54 þúsund
nýir Bretar
Stjómvöld í Bretlandi sögðu í
morgun að fimmtíu og fjögur þús-
und innflytjendum til Bretlands-
eyja á síðasta ári hefði verið
veittur breskur ríkisborgararéttur
á árinu.
Helmingur innflytjendanna fékk
ríkisborgararétt ó grundvelli bú-
setu í landinu í tiltekinn tíma og
fimmtán prósent á grundvelli
hjónabands með breskum þegnum.
Helmingur hinna nýju ríkis-
borgara kemur frá ríkjum breska
samveldisins, þar á meðal tíu þús-
und frá Bangladesh, Indlandi og
Sri Lanka.
Tæplega tíu þúsund eiga upp-
runa sinn í Vestur-Indíum og tæp
fjögur þúsund em Afríkubúar.
Pakistanar eru fjölmennastir
íbúa ríkja utan breska samveldis-
ins, er veittur var ríkisborgararétt-
ur, eða sjö þúsund. Nýir þegnar
Bretadrottningar fró Evrópuríkj-
um em fjögur þúsund og sex
hundmð, auk þess sem rúmlega
tvö þúsund fyrrum ríkisborgarar
Suður-Afríku ganga nú með breskt
vegabréf.
I hópnum em einnig sjötíu fyrr-
um sovéskir ríkisborgarar og sjö
hundmð og ellefu fyrrum banda-
rískir ríkisborgarar.