Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
Neytendur
13
Kannski að hér eigi við hinn fomi sannleikur að það gildi ekki sama um Jón og séra Jón. Odýrir innfiuttir gos-
drykkir eru fjarlægðir úr hillum verslana en í öllum búðum má fá aðra innflutta gosdrykki sem eru öldungis ómerktir
á íslenska tungu. DV-mynd Óskar Öm
Enn eru ómerktar neyslu
vörur í hillum verslana
- þótt búið sé að fjariægja ódýra gosið
„Það er erfitt að meta hvað er hættu-
legt og hvað ekki, en þama var um
neysluvöru að ræða sem var fjarlægð.
Þegar búið er að gera þær kröfur til
framleiðenda innanlands að þeir merki
framleiðsluvörur sínar verða þeir að
geta setið við sama borð og innflytj-
endur,“ sagði Þórhallur Halldórsson,
forstöðumaður Hollustuvemdar ríkis-
ins. er DV spurði um ástæðuna fyrir
því að ódým innfluttu gosdrykkimir
vom fjíirlægðir úr hillum Hagkaups á
dögunum.
Það er aðdáunarvert þegar kerfið
starfar svo skýrt samkvæmt settum
reglum, en nú kemur rúsínan í pylsu-
endanum:
Það em enn á boðstólum ómerktir
drykkir í hillum matvömverslana, eins
og t.d. einn sem heitir Kicko Cooler
og annar sem heitir Sparkling white
cap og innfluttar bjórtegundir. Inni-
haldslýsing er á White cap á sænsku
en samkvæmt upplýsingum Hollustu-
vemdar eiga þessar merkingar að vera
á íslensku.
Þessir drykkir em hins vegar ekki
sérlega ódýrir og innihalda þar að
auki alkóhól en innan levfilegra
marka þó. -A.BJ.
Fyllt paprika
I dag ætlum við að gefa ykkur upp-
skrift að fylltri papriku sem er bæði
ljúffengur og „öðruvísi" réttur.
Hér kemur uppskriftin:
4 paprikur
2 meðalstórir laukar
100 gr sveppir
2 msk smjörlíki
300 gr nautahakk
1-2 dl soðin hrísgrjón
2 msk fínskorin steinselja
2 msk chilisósa
salt
pipar
basilikum
cayennepipar
Skerið kollinn af paprikunni og tak-
ið kjamann úr. Snöggsjóðið papr-
ikuna í 3-5 mínútur og látið vatnið
renna af. Fínsaxið lauk og sveppi.
prófum viö fyllta papriku.
Hitið smjörlíkið á pönnu þar til það
er orðið ljósbrúnt og gljáandi. Setjið
þá laukinn, sveppina og kjöthakkið á
pönnuna og brúnið vel. Hrærið stöð-
ugt í á meðan svo að allt brúnist jafnt.
Bætið hrísgrjónunum út í. Bragðbætið
með steinselju, chilisósu og kryddi.
Varist að setja of mikið af kryddi í
réttinn í einu því hægara er að bæta
við en taka af.
Setjið fyllinguna í paprikuna. Látið
paprikuna í smurt, eldfast mót þannig
að opni endinn snúi niður í mótinu.
Látið lok eða málmpappír yfir mótið.
Bakið í ofni við 200 gráður í 20 mínút-
ur.
Berið paprikuna fram heila eða ske-
rið í sneiðar áður en hún er framreidd.
-Ró.G.
Fæðuval og þunglyndi
Rejmdu að forðast sætindi þegar þú
ert undir miklu álagi. Þegar þannig
er ástatt gengur á forðabúr líkamans,
sem geyma A- og C-vítamínin, hraðar
en endranær.
Þá er ráðlegt að auka neyslu dökka
og gula grænmetisins til þess að bæta
þér upp A-vítamíntapið. Til þess að
vega upp á móti C-vítamíntapi skaltu
borða sítrusávexti, bakaðar kartöflur,
jarðarber og græna papriku.
Borðaðu einnig eggjahvíturíka fæðu
eins og mjólkurafurðir. Þær innihalda
bæði B-vítamín og kalk. Fituskertar
mjólkurvörur innihalda nákvæmlega
sama magn af bætiefnum og þær sem
feitari eru. Reyndu að venja þig á að
drekka undanrennu, því úr mjólkinni
færðu mjög nauðsynleg vítamín og
kalkið. Á þetta ekki síst við um konur
sem komnar eru á miðjan aldur. Þær
þurfa að bæta sér upp kalkskort.
HEMMA VIDEO
Til sölu videospólur, mjög gott efni og hagstætt verð.
Upplýsingar í síma 17845 eða að Tryggvagötu 32.
Ath. Er komin með nýtt efni á leiguna.
SKÓLI
Á GÖTUIMIMI
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir húsnæði fyrir
skóla Unglingaheimilis ríkisins.
Húsnæðið þarf að vera u.þ.b. 150 m2.. Til greina kem-
ur sérbýli, sérhæð, íbúðar- eða skrifstofuhúsnæði.
Leigutími a.m.k. eitt ár. Upplýsingar á skrifstofu Ungl-
ingaheimilis ríkisins, sími 19980.
Menntamálaráðuneytið.
MENNINGARSJÓÐUR
ÍSLANDS 0G FINNLANDS
Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finn-
lands og íslands. í því skyni mun sjóðurinn árlega
veita ferðastyrki og annan fjárhagsstuðning. Styrkir
verða öðru fremur veittir einstaklingum, en stuðningur
við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef
sérstaklega stendur á.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum skulu sendar stjórn
Menningarsjóðs íslands og Finnlands fyrir 15. októb-
er nk. Áritun á íslandi: Menntamálaráðuneytið,
Hverfisgötu 6,150 Reykjavík. Æskilegt er að umsókn-
ir séu ritaðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku.
17. september 1986.
Stjórn Menningarsjóðs
íslands og Finnlands.
&ljíl •ífj&fj&t *3t *3/ t&f «3 f •?/ M *J/ •?/ *3/ «3 / *3/ «3/ *3/ *3/ «3
/(• /(• /S• /S* /ó /£• /(• /(•/(•/(• /í* /(• /í* /(•/(•'/(• /(• /S* /S* /l
Fuglar draga úr þunglyndi
Ljóst fuglakjöt, eins og kalkún og
kjúklingar, bananar, ostur, ananas og
jógúrt eru fæðutegundir sem draga úr
þunglyndi ef þær eru borðaðar með
B-vítamínauðugum mat eins og t.d.
heilhveitibrauði, grænu grænmeti og
brúnum hrísgrjónum.
-A.BJ.
F0RDHUSINU
Höfum fengið í einkasölu
Mercedes Benz 913, árgerð
1973, 23 farþega, nýleg vél,
352 ha. 140 ,i góðu ástandi.
Verð 600.000,-
Mercedes Benz 1517, árg.
1974, 54 farþega, góð vél
360. Verð 1.100.000,-
Opið frá kl. 9 til 19 alla virka daga
og laugardaga frá kl. 10 til 17.
BILAKJALLARINN
Fordhúsinu v/hlið Hagkaups.
Símar 685366 og 84370.
SKRIFST.M: Auöur Edda Jökulsdóttir
SÖLUMENN: Jónas Ásgeirsson
Þórarinn Finnbogason
Skúli Gislason
FR.KV.STJ: Finnbogi Ásgeirsson