Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986. Andlát Ragnar Jóhannsson lést 12. sept- ember sl. Hann var fæddur 22. júní 1911 í Auðahrísdal í Ketildalahreppi, Barðastrandarsýslu. Foreldrar hans voru Salóme Kristjánsdóttir og Jó- hann Jónsson. Ragnari var komið í fóstur til Valgerðar Jóhannesdóttur og Finnboga Ólafssonar. Ragnar stundaði sjóinn alla tíð. Eftirlifandi eiginkona hans er Gyða Waage. Þeim hjónum varð átta barna auðið, einnig átti Gyða son áður sem Ragn- ar gekk í föðurstað. Útför Ragnars var gerð frá Fossvogskirkju í morg- Guðjón Friðgeirsson skrifstofu- stjóri lést 13. september sl. Hann faéddist 13. júní 1929 á Stöðvarfirði. Foreldrar hans voru Friðgeir Þor- steinsson og Elsa Jóna Sveinsdóttir. Guðjón stundaði nám í Héraðsskól- anum á Laugarvatni og Eiðum en settist síðan í Samvinnuskólann og lauk þaðan prófi vorið 1950. Að námi loknu hóf hann störf hjá Kaupfélagi Stöðfirðinga og starfaði þar til hausts 1954. Hann var starfsmaður í fjármáladeild Sambandsins í Reykja- vík frá hausti 1954 til ársloka 1956. Kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fá- skrúðsfirðinga var hann í 13 ár, frá ársbyrjun 1957 til ársloka 1969. Árið 1970 hóf hann störf í sjávarafurða- deild Sambandsins og þar var starfs- ^ vettvangur hans til dauðadags. Eftirlifandi eiginkona hans er Ásdís Magnúsdóttir. Þeim hjónum varð sex bama auðið. Guðjón eignaðist einn son fyrir hjónaband. Útfór Guð- jóns verður gerð frá Kópavogskirkju í dag kl. 13.30. Guðbjörn Sumarliðason lést 13. september sl. Hann var fæddur 30. maí 1920, sonur hjónanna Sumarliða Eiríkssonar og Tómasínu Oddsdótt- ur. Guðbjöm lauk vélstjóranámi og réðst síðan í vinnu hjá Radioverk- stæði Landssímans. Ásamt vinnu sinni þar lauk hann námi í símvirkj- un. Vann hann síðan á skipadeild verkstæðisins allt fram til ársins 1980. Tók hann fljótlega við verk- ► stjóm og kenndi jafnframt við Loftskeytaskólann í mörg ár. Eftir 1980 tók hann að sinna lagerstörfum í tvö ár, þar til heilsan brást. Eftirlif- andi eiginkona hans er Valgerður Jónsdóttir. Þeim hjónum varð fimm bama auðið. Einnig átti Guðbjöm einn son fyrir hjónaband. Útfor Guð- bjöms verður gerð frá Neskirkju í x- dag kl. 15. Júlíus Jónasson lést í Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 17. sept- ember. Ingólfur Sigurlaugsson, Lang- holtsvegi 14, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum 18. þessa mánað- ar. Kristín Halldórsdóttir, Fossvogs- bletti 2a, andaðist þann 13. septemb- er. Útför hennar fer fram miðviku- daginn 24. september kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Jarðarför Stefáns Ólafssonar, skó- smiðs í Borgarnesi, fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 20. september kl. 14. Útför Magnúsar Amlín verður gerð frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 20. september kl. 14. Tónleikar Söb með sýningu í Ungverja- landi Sigurður Örn Brynjólfsson opnar sýningu á plakötum og teikningum í dag í borginni Kecskemét í Ungverjalandi. Sýningin stendur yfir í þrjár vikur. Sigurður Örn dvelur um þessar mundir í Kecskemét í boði Janos Probsnér, forstjóra „Internat- ional Experimental Ceramic Studio“. Hann verður þarna í mánuð til að kynna sér Ceramic stúdíóið og setja upp sýning- una. Auk þess að vera í kynnisferð mun hann vinna að verkefnum fyrir „Intemat- ional Experimental Ceramic Studio". Meðal þeirra verkefna er hönnun á kynn- ingarbæklingum, plakötum o.fl. sem hann mun fullvinna hér heima. Sigurður Örn hefur verið deildarkennari í auglýsinga- deild MHl undanfarin ár. Að auki hefur hann rekið auglýsingastofu. Síðast en ekki síst er hann löngu kunnur fyrir teikningar sínar og plaköt. Amað heilla Gefm hafa verið saman í hjónaband í Ytri- Njarðvíkurkirkju af sr. Þorvaldi Karli Helgasyni Ragnheiður Ingólfsdóttir og Ólafur Birgisson. Heimili þeirra er að Heiðarbóli 15, Keflavík. Gefin hafa verið saman í hjónaband í Keflavíkurkirkju af sr. Ólafi Oddi Jóns- syni Ingbjörg Guðmundsdóttir og Jón Björgvin G. Jónsson. Heimili þeirra er að Álsvöllum 10, Keflavík. Útvaip - sjónvarp Páll Pampichler Pálsson hljómsveitarstjóri: Vil fá meira af vandaðri tónlist á rás 1 Ég gat frekar lítið hlustað á út- varpið í gær en venjulega hlusta ég mest á rás 1. Þar hlustaði ég á strengjakvarttettana eftir Sjostako- vitsj í gær og voru þeir mjög góðir. Um hádegisbilið hlustaði ég á flóa- markaðsþáttinn á Bylgjunni og haföi gaman af. Þar fannst mér samt popptónlistin sem var skotið inn í viðtalið skemma þáttinn. Bylgjan er greinilega fijálslegri en hinar stöðv- amar tvær og í gærkvöldi heyrði ég slitrur úr viðtalsþætti þar sem mér fannst ágætur. Það sama er að segja um ýmsa viðtalsþætti sem eru á rás 1, þeir eru yfirleitt ágætir og fannst mér þættir Jónasar R. Jónssonar sérstaklega eftirminnilegir. Ég hlusta sjaldan eða aldrei á rás 2 og hef því ekkert um hana að segja, en ég bjóst samt við því að þegar hún kom þá mundum við fá meira af góðri tónlist á rás 1. Mér finnst vera alltof mikið af enskri rokk- og popptónlist á rás 1 og vil fá meira af vandaðri tónlist þar. Ég er ekki endilega að segja að öll rokk- og popptónlist sé léleg en ég held að við ættum að hugsa okkur um því það er varla hollt fyrir bömin og unga fólkið að heyra eingöngu tónlist sem er sungin á erlendu tungumáli. Ég held líka að tónlist- arsmekkur fólks hafi breyst hér á landi og að margir mundu kunna að meta það ef við fengjum að heyra meira af vandaðri tónlist í ríkisút- varpinu. Ymislegt Einstæð samkirkjuleg guðsþjónusta í Langholtskirkju Lokaathöfn í tengslum við fund fram- kvæmdanefndar Alkirkjuráðsins hér í Reykjavík verður almenn guðsþjónusta í Langholtskirkju föstudaginn 19. septemb- er, kl. 20.30, þar sem leiðtogar og fulltrúar helstu kirkjudeilda heims, sem eiga aðild að Alkirkjuráðinu, þ.e. Austur-rétttrúnað- arkirkjunnar, kirkna Vesturlanda, þar á meðal biskupakirkna og mótmælenda Ev- rópu, Asíu, Aíriku, Norður- og Suður- Ameríku og Ástralíu, ennfremur leiðtogar trúfélaga á íslandi, sem eiga aðild að Sam- starfsnefnd kristinna trúfélaga, það er evangelisk-lúthersku þjóðkirkjunnar, rómversk-kaþólsku kirkjunnar, hvíta- sunnumanna, aðventista og Hjálpræðis- hersins. Messuliðir eru teknir úr ólíkum hefðum fyrrgreindra kirkjudeilda. Predik- un flytur erkibiskup biskupakirkjunnar í Botswana, Khosto Makhulu. Hann er mikill ræðumaður og þekktur leiðtogi kirkju sinnar. Hann tók nýlega þátt í vígslu Tutus biskups til erkibiskups í Suð- ur-Afríku. Ræða hans verður túlkuð á íslensku af séra Ólafi Skúlasyni vígslu- biskupi. Ávörp munu flytja séra Sigurður Haukur Guðjónsson, enn fremur fram- kvæmdastjóri Alkirkjuráðsins, dr. Emilio Castro, svo og forsetar Alkirkjuráðsins sem hér eru staddir. Biskupinn yfir Is- landi, herra Pétur Sigurgeirsson, mun flytja lokaorð þessarar guðsþjónustu. Kór Langholtskirkju mun flytja kirkjulega tónlist undir stjóm organista safnaðarins, Jóns Stefánssonar, og leiða saíhaðarsöng. Fulltrúar Hjálpræðishersins munu syngja tvxsöng. 1 guðsþjónustunni verður tekið á móti gjöfiim til Hjálparstofnunar íslensku þjóðkirkjunnar. Messuskrá er á íslensku og ensku. Þessi einstæða guðsþjónusta í sögu ís- lenskrar kristni og sögu þjóðarinnar er opin öllum og fólk er hvatt til að fjöl- menna til hennar og taka þannig í útrétta hönd bræðra og systra frá ólíkum og fjar- lægum kirkjum. Breiðholtsskóli Þið sem erað fædd 1966. Við ætlum að hittast í Ypsilon laugardaginn 20. sept- ember. Borðhald hefst kl. 20. Miðar eru seldir að Vesturgötu 53 og kostar miðinn 1.200 krónur. Mætið öll og takið með ykk- ur gesti. Sædýrasafnið Opið alla daga kl. 10-17. Leiðréttmg Vegna fréttar í DV í gær um veitingu lektorsstöðu til Hannesar H. Giss- urarsonar skal tekið fram að rang- lega var sagt að Hannes hefði verið dæmdur óhæfur til að gegna lektors- starfi í heimspekideild. f áliti dómnefndar, sem vísað er til í frétt- inni, kemur fram að Hannes sé hæfur til að kenna sérgrein sína (stjórn- málaheimspeki) en hafi ekki rétta menntun í lektorsstöðu í heimspeki er veitt var Mikael Karlssyni. Hann- es lauk sem kunnugt er cand. mag. prófi í sagnfræði frá HÍ og doktors- prófi í stjórnmálafræði frá Oxford- háskóla. Blaðið biðst velvirðingar á þessari ónákvæmni. HM í Miami: Allt stefnir í bandarískan sigur Bandarísku atvinnumennimir bám sigurorð af fslendingum í 6. umferð heimsmeistarakeppninnar og veiktu þar með von þeirra um sæti í undanúr- slitin. Rairnar sigmðu þrjár bandarískar sveitir í sex liða úrslitunum og stefnir því allt í bandarískan sigur í Miami. í gær hófst svo útsláttarkeppni átta sveita um fjórða sætið í undanxírslit- unum frá þessum löndum: Íslandi-Frakklandi-Þýskalandi-Pa- kistan-Svíþjóð og þriggja frá Banda- ríkjunum. ísland (Öm-Guðlaugur-Jón-Sig- urður) drógust á móti Þýskalandi og töpuðu leiknum með nokkrum mun. Samkvæmt hinum flóknu reglum mótsins fór sveitin síðan rakleitt til Monradkeppninnar en sú keppni mun ákvarða röð þeirra sveita sem ekki ná að komast í undanúrshtin. Hin íslenska sveitin (Guðmundur- Bjöm-Þorlákur-Þórarinn) hafði hins vegar rétt vel íír kútnum og þegar spilamennsku lauk í gær var hún kom- in í áttunda sætið. Sveit Amar gerði það líka gott því þegar upp var staðið var hún í tíunda sæti. Monradkeppnin heldur síðan áfram og lýkur á laugrdag en þann sama dag verða úrslitin um heimsmeistaratitil- inhn. Á sunnudaginn hefst síðan tvímenn- ingskeppnin og taka báðar íslensku sveitimar þátt í henni. Að auki bætist við fimmta parið frá fslandi, Bjöm Theodórsson, forseti Bridgesambands fslands, og Jakob R. Möller. Nánar verður sagt frá mótinu í blaðinu á mánudaginn. StG. Tapað-Fundið Gleraugu fundust Karlmannsgleraugu með rauðum eða brúnum umgjörðum fundust fyrir utan Gleraugnahúsið í Kirkjuhvoli sl. fimmtu- dag. Eigandi gleraugnanna getur vitjað þeirra í versluninni. Tómataveisla um helgina Tómatar lækka í verði um 50% í dag, úr 100 kr. heildsöluverð niður í 50 kr. Að sögn Nielsar Marteinssonar hjá Sölufélagi garðyrkjumanna er fram- leiðslutoppur á tómötum núna vegna góða veðursins undanfarið. „Þetta stendur ekki nema í nokkra daga eða á meðan birgðir endast," sagði Niels. Það er því ekki spuming hvað verð- ur í matinn um helgina: Gómsætir réttir úr tómötum. -A.BJ. Lokaathöfn Alkirkju- ráðsins Lokaathöfii vegna fundar framkvæmdanefndar Alkirkjur- áðsins verður í Langholtskirkju í kvöld. Það verður erkibiskup Biskupakirkjunnar í Botswana sem flytur predikun. Við athöfhina munu ýsmir flytja ávörp, svo sem séra Sigurð- ur Haukur Guðjónsson og dr. Emilio Castro, framkvæmda- stjóri Alkirkjuráðsins. Þá mun biskup fslands, Pétur Sigurgefrs- son, flytja lokaorð. Einnig verður flutt kirkjuleg tónlist af kór Lnagholtskirkju og fulltrú- um Hjálpræðishersins. Athöfnin hefet klukkan 20.30 og er öllum opin. Verður við guðsþjónustuna tekið á móti gjöfum til Hjálparstofhunar kirkjunnar. -KÞ Leiðrétting Fimmmannanefnd gengur illa að koma sér saman um verð Fimmmannanefhd gengur illa að koma sér saman um verðhækkun á nauta- og kindakjöti. Hennar er þó að vænta í kvöld eða fyrramálið. Eins og DV sagði frá í gær átti að ákveða þetta á fundi nefhdarinnar í gær, en að sögn Guðmundar Sigurðs- sonar hjá Verðlagsstofhun, sem sæti á í nefhdinni, bar svo mikið á milli að ákveðið var að slíta fundi og reyna aftur í dag. Hann sagðist, aðspurður, ekki búast við því að um mikla hækkun yrði að ræða. -KÞ Vegna fréttar í DV í gær undir fyrir- sögninni: „Lögfræðingurinn stal þessu öllu“ vill framkvæmdastjóri Lög- mannafélags fslands taka það fram að félagið hefhr ekki ályktað um vinnu- brögð Gunnars Sólnes í umræddu máli og jafiiframt að það er lögfræð- ingur Rúnars Þórs Bjömssonar sem lagt hefur fram fjámámskröfu í H-100 en ekki lögfræðingur Lögmannafé- lagsins enda er félagið ekki aðili að þessu máli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.