Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.1986, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986.
Utlönd
BFBr stríðið um Falklandseyjar:
Greftrun hermanns
þrætuepli stríðsaðila
Fjórum árum eftir stríðið um Falk-
landseyjar deila Bretland og Argent-
ína um greftrun argentínsks
flugmanns.
Lík flugmannsins fannst í síðast-
liðnum mánuði í herflugvél sem
skotin var niður á austanverðum
Falklandseyjum þann 28. maí 1982.
Samkvæmt ósk föður flugmannsins
ákvað Bretland að sjá um að flogið
yrði með líkið til Parana í Argentínu
en það var heimaborg Miguel Angel
Gimenez flugmanns.
Argentínsk yfirvöld höfnuðu boð-
inu. Sögðu þau að jarðsetja ætti
flugmanninn á Falklandseyjum,
langt frá syrgjandi ættingjum, „til
vitnis um yfirráð Argentínu" yfir
eyjunum.
Ósveigjanleiki
Bretland túlkar svarið sem enn
eitt dæmið um ósveigjanlega stefnu
Argentínu sem fylgt hefúr verið all-
an tímann frá tíu vikna stríðinu um
Falklandseyjar þegar rúmlega þús-
und manns biðu bana.
Argentína leit á boðið sem enn
eina tilraun Bretlands til þess að
réttlæta yfirráð sín yfir eyjunum.
„Hvemig eigum við að flytja lík
hermanna okkar „heim“ þar sem þau
liggja þegar á argentínskri jörð,“
sagði argentínskur embættismaður.
Þessi sömu rök vom notuð strax
eftir stríðið þegar Argentína lét
Breta jarðsetja 233 argentínska her-
menn á Falklandseyjum.
Bænir mega sín einskis
Þar sem herforingjastjómin er far-
in frá völdum virtust nú fjórum árum
seinna vera horfur á því að tekin
yrði upp mildari stefha af mannúð-
arástæðum. En bænir örvæntingar-
fullra fjölskyldna, sem ekki einu
Enn er deilt um hvar jarðsetja skuli argentínska hermenn sem féllu í stríðinu um Falklandseyjar.
sinni mega heimsækja argentínska
kirkjugarðinn á Falklandseyjum,
mega sín einskis.
Argentína neitar að tala við Bret-
land nema rætt verði um yfirráð
eyjanna. MargaretThatcher, forsæt-
isráðherra Bretlands, sem hrósar sér
fyrir ákvörðun sína að senda liðsafla
til Falklandseyja til þess að veija
þær fyrir Argentínumönnum, segist
vera reiðubúin að ræða allt nema
yfirráð yfir eyjunum.
Auðveldari viðskipti
Þrátt fyrir ósamkomulagið hafa
íþróttakeppnir verið haldnar milli
landanna, viðskipti og ferðalög hafa
verið auðvelduð og bankaviðskipti
hafa verið tekin upp að nýju. Löndin
hafa í sameiningu unnið að málefii-
um innan Sameinuðu þjóðanna,
argentínskir þingmenn hafa farið í
heimsókn til London og breskir
þingmenn eru væntanlegir í heim-
sókn til Argentínu í október.
Samskiptin eru þó stirð og ekki
hefúr verið um beint samband að
ræða milli stjóma landanna.
Heimildarmaður bresku stjómar-
innar segir að svo virðist sem Raul
Alfonsin, forseti Argentínu, taki upp
sömu stefnu og fyrirrennarar hans
nema hvað hann beiti ekki ofbeldi.
Álítur heimildarmaðurinn að Arg-
entína hafi komið á auðveldari
viðskiptasamböndum til að bæta
samskiptin við Evrópubandalagið
frekar en við Bretland.
Argentína hefur vakið athygli á
málstað sínum, bæði hjá Sameinuðu
þjóðunum og á öðrum vettvangi, og
væntanlega verður málið reifað á
allsheijarþingi Sameinuðu þjóðanna
síðar á þessu ári.
Munur á Anderson og Bildt sem
munur á atvinnumanni og viðvaningi?
Harka hlaupin í sænska stjómmálaumræðu eftir lognmollu í kjölfar Palmemorðs
Gunnlaugur A Jcmssan, DV, Lundi:
Tekið er að hitna í kolunum í
sænskum stjómmálum að nýju eftir
þá deyfð er færðist yfir sljómmála-
baráttuna í kjölfar morðsins á Olof
Palme í vor.
Samtímis hafa nú borgaraflokk-
amir í fyrsta sinn eftir morðið meira
fylgi en sósíalisku flokkamir, sam-
kvæmt skoðanakönnunum, þó að
vissulega sé mjög mjótt á mununum.
Carl Bildt, hinn nýi formaður
sænska íhaldsflokksins, hefur, eins
og margir áttu von á, hleypt aukinni
hörku í stjómmálaumræðuna.
Á dögunum líkti hann nýjum
skattaálögum Feldts fjármálaráð-
herra við þjófiiað og var auk þess
sá sænskra stjómmálamanna sem
harðast gagnrýndi Ferm, sendiherra
Svíþjóðar hjá Sameinuðu þjóðunum,
er töluvert hefur átt í vök að veijast
undanfama daga. Var fúllyrt í mál-
gögnum borgaraflokkanna að Sten
Anderson utanríkisráðherra hefði
ákveðið að sparka Ferm fyrir bmðl
og margvísleg mistök í starfi, og
Bildt virtist vilja leggja sitt af mörk-
um til þess að af þessum brottrekstri
gæti orðið.
Til þess kom þó aldrei, í þess stað
hlaut Ferm stuðningsyfirlýsingu frá
forsætisráðherranum.
í fyrrakvöld fékk Carl Bildt mjög
kaldar kveðjur frá einum nánasta
samstarfsmanni Palmes, Pierre
Schori, ráðuneýtisstjóra í utanríkis-
ráðuneytinu.
Sagði Schori að munurinn á Sten
Carl Bildt, nýkjörinn formaður
sænska íhaldsflokksins, hefur hleypt
aukinni hörku í sænska stjóm-
málaumræðu að undanförnu.
Anderson og Bildt væri eins og mun-
ur á atvinnumanni og viðvaningi.
Svenska Dagbladet, aðalmálgagn
íhaldsmanna, tekur þessi ummæli
mjög óstinnt upp í leiðara í morgun
og segir að maður eins og Schori
ætti að tala varlega um viðvanings-
hátt. Bætir blaðið við að auki að
hins vegar eigi Schori sér fáa jafn-
ingja í hroka.
Þá hafa Feldt fjármálaráðherra og
Bengt Westerberg, leiðtogi Þjóðar-
flokksins, átt í deilum undanfama
daga. Hófúst málalengingamar með
því að Westerberg sýndi fram á
reikningsskekkju í skattadæmi
Feldt. Feldt svaraði um hæl að West-
erberg hefði í sumar ferðast um
landið þvert og endilangt með margs
konar loforð en aldrei sýnt fram á
hvar ætti að taka peningana.
Westerberg sagði að þau ummæli
ráðherrans væm einfaldlega ósann-
indi.
Þá var Ingvar Carlsson forsætis-
ráðherra á ferð um Skán nýverið og
réðst þar harkalega á hina nýju
stjóm borgaraflokkanna i Malmö.
Sagði Carlsson að það væri nánast
glæpsamlegt athæfi hjá borgara-
flokkunum að taka lán til að geta
staðið við kosningaloforð sín um
skattalækkanir, og enn verra væri
að þessi stjóm styddist við skánskan
stjómmálaflokk er hefði kynþátta-
hatur á stefriuskrá sinni.
Það virðist því augljóst að sú logn-
molla, er færðist yfir sænska stjóm-
málaumræðu í kjölfar morðsins á
Palme, sé á hröðu undanhaldi þessa
dagana.
Umsjón Hannes og ingibjörg Bára