Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. Viðskipti Ferðaskrifstofumar: Stórfelld aukning í leiguflugi næsta ár - ferðaskrifstofumar ætla að auka við sig allt að 40% í leiguflugssastum Vitað er að flestar ef ekki allar ís- lensku ferðaskrifstofumar ætla að auka stórlega við sig leiguflugssæt- um' á næsta ári. Á þessu ári vom ferðaskrifstofumar með um 11 þús- und leiguflugssæti en heyrst hafa tölur um allt að 18 til 20 þúsund sæti á næsta ári. Ástæðan fyrir bjart- sýni ferðaskrifstofanna em mikil ferðalög Islendinga á þessu ári, eink- um þó í sumar er leið, þegar uppselt var í nærri hverja ferð, hvert sem boðið var. Mun flestar ferðaskrifstof- umar hafa vantað leiguflugssæti í sumar. „Ég veit að það verður mjög mikil aukning í leiguflugssætum næsta sumar, en að þau verði 20 þúsund á ég bágt með að trúa. Ég giska á 25% aukningu sem myndi þýða 14 til 15 þúsund sæti,“ sagði Karl Sigurhjart- arson, framkvæmdastjóri ferðaskrif- Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur óbund. 8-9 Ab.Bb. Lb.Sp Sparircikningar 3ja mán. uppsögn 9-10,5 Ab 6 mán. uppsögn 10-15 Ib 12 mán. uppsögn 11-15.75 Sp Sparnaður - Lánsréttur Sparað í 3-5 mán. 9-13 Ab Sp. Í6mán. ogm 9-13 Ab Ávisanareikningar 3-9 Ab Hlaupareikningar 3-7 Sb Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 8b.0b.Vb 6 mán. uppsögn 2.5-4 Úb Innlán með sérkjörum 8,5-17 Innlán gengistryggð Bandarikjadalur 5-8.5 Sb Sterlingspund 8-10,5 Ab Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab Danskar krónur 7.5-9,5 Ab ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán áverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 15,25-16, Úb 25 Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kge/19,5 Almenn skuldabréf(2) 15-17 Lfa Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-18 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf Að2.5árum 5-6,75 Lb Til lengri tima 6-6,75 Bb.Lb.Úb Utlán tíl framieiðslu Isl. krónur 15-16,5 Vb.Sp SDR 8-8,25 Allir nema Ib Bandaríkjadalir 7.5-7,75 Allir nema Bb.lb Sterlingspund 12,75-13 Allir nema Ib 1 Vestur-þýsk mörk 6.5 Allir nema ib Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjáðslán 5 Dráttarvextir 27 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala 1517 stig Byggingavisitala 281 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% 1. okt. HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 111 kr. Eimskip 228 kr. Flugleiðir 180 kr. Hampiðjan 131 kr. Iðnaðarbankinn 128 kr. Versfunarbankinn 98 kr. Á næsta ári mun íslendinga ekki skorta tækifæri til að komast i sömu aðstöðu og stúlkan á myndinni ef marka má pantanir ferðaskrifstofanna á leiguflugssætum. stofúnnar Pólaris, í samtali við DV. Karl sagðist myndi fjölga vemlega hjá sér. í sama streng tók Helgi Jóhannes- son, forstjóri Samvinnuferða. Hann sagðist hafa heyrt svo háar tölur að hann tryði þeim varla, en sagðist vita með vissu að aukingin yrði mik- il á næsta ári. Helgi benti einnig á að ferðaskrifstofum hefði fjölgað og væri það líka innlegg í þetta. Magnús Oddsson, markaðsstjóri Amarflugs hf., sagði að þær ferða- skrifstofur sem skipta við Amarflug hf. hefðu nú þegar lagt inn beiðni um mun fleiri leiguflugssæti á næsta ári en var á því sem er að líða. Hann sagði greinilegt að mikil bjartsýni ríkti hjá ferðaskrifstofunum og væri ástæðan án vafa ferðagleði landans á þessu ári. Sigfús Erlingsson, yfirmaður markaðssviðs Flugleiða, sagði að ef dæma ætti eftir pöntunum ferða- skrifstofanna yrði sætaaukningin 35% og jafnvel upp í 40%, dálítið misjafnt eftir stöðum. Þá sagði Sigfús að Flugleiðir myndu auka vemlega sætaframboð sitt í áætlunarferðum næsta sumar og verða með hagstæð sérfargjöld til ýmissa staða og nefndi hann Norð- urlöndin sérstaklega í því sambandi. Af þessu öllu saman er ljóst að ferðaveisla býður okkar íslendinga næsta sumar. -S.dór Búnaðarbanki, Samvinnubanki og Alþýðubanki saman? „Erum ekki á mat- seðli eins eða neins" - segir Geir Magnússon, bankastjori Samvinnubankans „Ég hef heyrt menn fleygja þessu og hélt satt að segja að þeir væm að gera að gamni sínu. Við höfúm ekki skoðað þetta og það gildir auðvitað það sama og um að Útvegsbankinn gleypi okkur, að við erum ekki á mat- seðli eins eða neins,“ sagði Geir Magnússon, bankastjóri Samvinnu- bankans. Starfsbróðir hans í Alþýðu- bankanum hefur varpað þessari hugmynd inn í umræðuna um samein- ingu bankastofriana. Bæði Geir og Stefán Gunnarsson, bankastjóri Alþýðubankans, hafa lýst þeirri afetöðu sinna banka, að þeir hafi ekki áhuga á að fljóta með í hugs- anlegri sameiningu Útvegsbanka, Iðnaðarbanka og Verslunarbanka. Geir telur afekipti Seðlabankans af málefnum einkabankanna fráleit og fullkomlega óeðlilegt að ríkið hafi áhrif á framtíð sumra þeirra umfram annarra. Nafni hans, Geir Hallgrímsson seðlabankastjórí, sagði að hugmyndin um sameiningu Búnaðarbanka, Sam- vinnubanka og Alþýðubanka kæmi þeim Seðlabankamönnum ekkert ókunnuglega fyrir sjónir. „Þótt ég taki ekki afetöðu til þessara banka sérstak- lega get ég sagt að menn hér álíta að þróun af þessu tagi sé líkleg, eðli máls- ins samkvæmt, sérstaklega ef sú sameining, sem við könnum nú, tekst," sagði seðlabankastjórinn. HERB Bankamenn í reiknitíma - sameiningarborfur óljósar (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skipt^kuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbankinn reiknar þó vexti af viðskiptavíxlum miðað við 19,5% árs- vexti. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán, nema í Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank- inn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peninga- markaðinn birtast í DV á fimmtudög- um. „Við erum að vinna að ýmsum út- reikningum og upplýsingum en næsti formlegi fúndur með Iðnaðarbanka- og Verslunarbanka-mönnum verður ekki fyrr en eftir helgina," sagði Geir Hallgrímsson seðlabankastjóri um könnunina á sameiningu þessara banka og Útvegsbankans. Nú er að verða liðinn mánuður síðan formenn stjómarflokkanna sögðu ráðstöfun Útvegsbankans ekki þola neina bið. Þá var talað um að málin yrðu að skýrast „í vikunni". Nærri þrjár vikur em síðan sú vika leið. En stjómar- flokkana greinir á um leiðir og nú hafa farið rúmlega tvær vikur i að þaulkanna leið sjálfstæðismanna og óskaleið bankastjómar Seðlabankans. Leið framsóknarmanna sem er yfir- taka Búnaðarbankans á Útvegsbank- anum er enn einnig í fullu gildi. Aðalsamningamenn Verslunar- bankans hafa verið erlendis þessa viku og því hafa sameiginleg fundahöld leg- ið niðri. En tíminn er sem sagt notaður til þess að reikna. HERB Hlutabréf í Flugleiðum hafa tvöfald- ast í verði Áhugi manna á því að eiga hluti í fyrirtækjum hérlendis fer stór- vaxandi. Hjá Hlutabréfamarkaðn- um hf. bíða kaupendur eftir hlutabréfum. Þar er skráð verð á bréfúm í sex öflugum fyrirtækjum. Eftirsóttust em bréf í Flugleiðum hf. og skráð verð þeirra hefur hækkað um 110% það sem af er árinu. Samkvæmt þessu finnst varla betri ávöxtun fjár um þessar mundir en í Flugleiðabréfum. Þess ber þó að geta að hluti af þessari hækkun á skráðu verði kann að felast í því að mat bréfanna hafi verið of lágt í upphafi. Skráningin var tekin upp fyrir ári og þar á undan hafði rekstur Flugleiða ve- rið erfiður. Á j)ví skeiði hefðu hlutabréf í félaginu fremur lækkað en hækk- að og þannig getur þetta gengið, að verðmæti hlutabréfa vex eða minnkar eftir afkomu fyrirtækj- anna. Þannig er áhætta fólgin í spamaði af þessu tagi og ekki á allra færi að spá í þau spil. í upphafi ársins var söluverð Flugleiðabréfa lægra en nafnverð þeirra, fyrir hverjar 100 krónur fengust 95. Nú fást hins vegar 200 krónur fyrir hverjar 100. Gengi bréfa i Eimskipafélagi íslands hf. var 133 á móti 100 en er nú 222. Skráð verð þeirra hefur því einnig hækkað mikið eða um 67%. Þá hafa verið skráð bréf í tveim bönkum, sem báðir hafa raunar verið að sélja viðbótarhluti síðustu misseri. Á tímabili lækkaði verð á hlutabréfum í báðum þessum bönkum en er nú á uppleið. í árs- byijun var skráð verð á bréfum í Iðnaðarbanka íslands hf. 119 á móti 100. Það fór niður fyrir nafn- verð en er nú komið upp f 130 á móti 100. Bréf í Verslunarbanka fslands hf. voru skráð á 109 á móti 100 fyrst á árinu, lækkaði síðan en er komið f 110 núna. Hlutabréf í Hf. Hampiðjunni eru skráð nú á 133:100 og í Almennum tryggingum hf. á 111:100. Bréf í þessum fyrirtækjum komu á skrá hjá Hlutabréfamarkaðnum hf, á Það er bjart yfir Flugleiðum hf. um þessar mundir og ásókn í hluta- bréf á tvöföldu nafnverði. Fram- boð er hins vegar ekki mikið. Blonduós: Nýtt útibú Alþýðubanka Baldur Darúelsson, DV, Hönduósi: Alþýðubankinn heíúr opnað útibú á Blönduósi. Það er til húsa að Húnabraut 13. Útibússtjóri er öm Bjömsson en auk hans starfa þrír starísmenn við bankann. Að sögn starfefólksins hefur hin- um nýja banka verið vel tekið og hafa þessir fyrstu dagar gengið betur en nokkur þorði að vona. Þá má geta þess að um þessar mundir stendur yfir málverkasýn- ing í Alþýöubankanum. Það er Þorlákur Kristinsson (Tolli) sem sýnir þar verk sín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.