Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
Utlönd
Hart deilt um
þá fáu þorska
sem eftir eru
Milli Kanada og Frakklands eru
deilur út af sókn franskra togara í
þorskstofninn við Nýfundnaland en
minnkandi þorskaíli þeirra á Ný-
fundnalandi vilja margir kenna of-
veiði.
Til þess að ná svipuðum afla og fyr-
ir nokkrum árum hefur smábátaútveg-
urinn á Nýfundnalandi þurft að herða
mjög sóknina og fjölga netum um allt
að 100%. Bregður þeim mjög við vegna
þess að lengst af hefur það orð farið
af Nýfundnalandsmiðum að þau væru
mjög gjöful. Var þorskurinn næstum
jafhmikilvægur Nýfundnalendingum
og okkur íslendingum. í flimtingum
var sá guli stundum kallaður gjald-
miðill Nýfundnalands.
Minnkandi þorskafli ber
ofveiðinni vitni
En þorskveiðin hefur mjög tregðast
síðustu árin. Ekki kenna menn því um,
sem beinast lægi kannski við, frysti-
skuttogurum Japana, Rússa og
V-Þjóðverja, því að þeir halda sig á
djúpmiðunum utan 200 sjómílna efha-
hagslögsögunnar. Hins vegar liggur
þeim ámóta þungt hugur til frönsku
togaranna og okkur til bresku togar-
anna á sínum tíma. Þeir segja að
Frakkar ofveiði um 300%. En Frakkar
hafa tilkynnt Kanadastjóm að þeir
ætli ekki að draga úr sínum veiðum
innan 200 mílnanna. Frekar ætla þeir
að auka sóknina á veiðisvæði sem
kallað er 3PS. Það er 862 þúsund fer-
kílómetra þríhymt veiðihólf undan
suðurströnd Nýfundnalands.
Frakkar reisa kröfurnar út af
smáeyjum tveim
Að vísu hefur Kanada ekki verið til
samninga um að annarra þjóða veiði-
skip fái að veiða í þessum hluta
Atlantshafsins en Ottawa-stjómin hef-
ur veitt Frökkum undanþágu, einkan-
lega þó og fyrst og fremst veiðiskipum
frá frönsku eyjunum St. Pierre og
Miquelon sem liggja skammt undan
suður- og vesturströndum Nýfundna-
lands. Enda hefur það sýnst sann-
gjamt vegna landfræðilegrar legu
eyjanna og veiðihefðar eyjaskeggja.
Frakkar hafa þó heimild til þess að
veiða 6.400 smálestir árlega en það em
15,6% af heildaraflanum á 3PS, en þau
mið ganga dags daglega undir nafninu
St. Pierre-bankinn.
Vandræðin em þau að Frakkar vilja
meira því að Frakkland gerir tilkall
‘il þessa svæðis. 1977 lýsti Parísar-
stjóm yfir 200 mílna efnahagslögsögu
þessara tveggja eyja og spannaði hún
þá einnig yfir St. Pierre-bankann. Til
Smábátar dregnir upp á kamb í verkefnaleysinu því að þeir á frönsku eyjunni St. Pierre undan ströndum Ný-
fundnalands telja sig afétna af franska togaraflotanum. Bátafiotinn hefur minnkað um 2/> síðustu tíu árum.
i iiinQ j Wfi ■ IfpÍT Klo/ipr'' ái-f
Li El li
þess að fylgja eftir yfirráðakröfunni
hafa stórir togarar verið gerðir út á
svæðið.
Inn í málið grípur einnig gamall
samningur sem heimilaði Frökkum að
veiða árlega 20 þúsund smálestir úr
St. Lawrence-flóa milli Nýfundnalands
og meginlands Kanada. En gildistími
þess samnings rann út í maí. Telja
Frakkar að það réttlæti það að þeir
auki afla sinn á St. Pierre-banka. Því
hafha Kanadamenn og telja raunar
að eyjamar tvær eigi ekki rétt til
stærri lögsögu en tólf mílna. Þessar
umræður hófust 1977 og þá varð þegj-
andi samkomulag um að geyma
þrætur um veiðikvóta til annars tíma
sem virðist nú vera að renna upp.
Vilja Kanadamenn gjaman skjóta
deilunni til gerðardóms eða einhvers
annars þriðja aðila til úrskurðar.
Eyjaskeggjar andvígir veiðum
Frakkanna
Frakkamir hafa ekki einu sinni
samúð íbúa eyjanna St. Pierre og
Miquelon sem hafa orðið alvarlegar
áhyggjur af því að frönsku togaramir
séu að þurrka upp fiskimið þeirra með
ofveiði. Bátaflotinn á St. Pierre hefur
minnkað um tvo þriðju á síðasta ára-
tug og talsmenn útvegsins þar hafa
margviðrað kröfur um að togumnum
verði bægt frá St. Pierre-bankanum.
Þessi deila verður efst á dagskrá í
viðræðum forsætisráðherranna,
Chiracs og Mulroney, þegar sá franski
heimsækir Mulroney í Ottawa í jan-
úar.
Fréttin um dauða Kim II Sung
Klórað í bakkann efHr söguburðinn
Það var um miðjan nóvember sem
orðrómur um dauða Kim Il-Sung, for-
seta Norður-Kóreu, barst út. Samtímis
kom upp sá kvittur að sonur hans,
Kim Jong II, og vamarmálaráðher-
rann, Oh Jin U, hefðu tekið við
völdum.
Vangaveltunum um dauða Kim II-
Sung lauk þó sólarhring síðar er hann
bauð Mongólíuforseta velkominn í
mikilli móttökuathöfn á Pyongyang-
flugvelli.
Vangaveltunum um hvers vegna og
hvemig kvitturinn kom upp er þó ekki
lokið. Yfirvöld í Suður-Kóreu reyna
að klóra í bakkann þegar krafist er
nánari skýringa á þeim fregnum sem
þau sögðu hafa borist í gegnum hátal-
ara Norður-Kóreumegin við vopna-
hléslínuna.
Engin upptaka
Stjómarandstaðan í Suður-Kóreu og
fjölmiðlar báðu yfirvöld um hljóðupp-
töku af tilkynningunni um dauða Kim
Il-Sung en í fyrstu varð fátt um svör.
Því næst var sú yfirlýsing gefin að
upptakan yrði ekki afhent óviðkom-
andi þar sem þá kæmist upp um
vinnubrögð leyniþjónustunnar. Eftir
að þjarmað hafði verið enn meir að
yfirvöldum viðurkenndi vamarmála-
ráðherrann að yfirvöld hefðu enga
hljóðupptöku.
Sú skýring var gefin að hermenn frá
Suður-Kóreu hefðu reynt að taka upp
tilkynningamar en að þær heyrðust
ekki á segulbandinu vegna þess hve
vindasamt var við vopnahléslínima og
vegna fjarlægðarinnar.
Samt sem áður gat stjómin í Suður-
Talið er að vamarmálaráðherra
Norður-Kóreu sé fallinn í ónáð eftir
tilraun til valdaráns. Yfirvöld fullyrða
hins vegar að hann hafi lent í um-
ferðarsiysi.
Kóreu endursagt í smáatriðum að
minnsta kosti tuttugu og fjórar til-
kynningar sem bárust i gegnum
hátalara norðan að. Suður-kóreskir
hermenn era sagðir hafa skrifað þær
allar niður. Vamarmálaráðherrann
Lee Ki-baek heldur því einnig fram
að hermennimir hafi fest á filmu
krönsum prýdda mynd af forseta N-
Kóreu og fána blaktandi í hálfa stöng.
Andúð á vangaveltum
Stjómin í Pyongyang hefúr svo sem
ekkert á móti því að Kim II Sung og
nánustu ráðgjafar hans komist í
heimspressuna en hún hefur samtímis
lýst yfir andúð sinni á öllum vanga-
veltum. Fjölmiðlar hafa meir en gefið
í skyn að valdabarátta sé háð í N-
Kóreu. Til sönnunar því að ekki sé
um slíkt að ræða hafa stjómvöld bent
á að í kosningunum, sem haldnar voru
í nóvemberbyijun, hafi stjómin og
flokkurinn hlotið öll greidd atkvæði.
Athygli fjölmiðla hefur einnig beinst
að persónudýrkuninni á forsétanum í
N-Kóreu. Sonur hans Kim Jong II ýtir
undir hana til þess að tryggja sér sæti
sem næsti leiðtogi landsins.
Fjölda risastórra stytta af forsetan-
um hefur verið komið fyrir í höfuð-
borginni og telja fréttaskýrendur það
vera eina af aðferðum sonarins til að
tryggja sér völdin þegar faðirinn fellur
frá. Alitið er að sonurinn sjái nú um
öll innanríkismál en forsetinn hafi enn
utanríkismálin á sinni könnu.
Erfðabundið ættarveldi
Dýrkunin á Stalín og Mao Tsetung
á sínum tíma kemst ekki í hálfkvisti
við þá sem Kim II Simg nýtur og er
talið hún sé tilraun til þess að draga
úr gagnrýninni á þvi sem verður fyrsta
kommúnistaríkið með erfðabundið
ættarveldi. Þeim sem gera sér grein
fyrir því að þessi persónudýrkun skað-
ar landið út á við fjölgar stöðugt en
þeir hafa vit á því að hafa ekki hátt
um slíkt.
Vangaveltumar um örlög Oh Jin
U, vamarmálaráðherra N-Kóreu,
halda áfram. Ef það er satt að hann
hafi slasast í umferðarslysi hefði ekki
verið úr vegi að einhveijir óháðir aðil-
ar - ef þeir era þá til eins og sumfr
draga í efa - heimsæktu hann á sjú-
krabeðinn. Og á meðan hann kemur
ekki fram opinberlega er erfitt að
koma í veg fyrir að vangaveltumar
um að hann hafi fallið í ónáð haldi
áfram.