Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986.
11
Fréttir
Byggingameistararnir: Ketill, Reinhold, Hróar og (Oddur) Björnssynir. Á myndina vantar Daniel Antonsson.
DV-mynd Anna
Egilsstaðir:
Þurftu ekki húsnæðislán
Aima Ingolfedóttir, DV, Egilsstödum:
Þeir voru hressir strákamir sem
við hittum á Egilsstöðum, enda eng-
in furða. Það er sko ekki á hverjum
degi sem strákar hafa heilan kastala
til umráða. Þegar kyngdi niður snjó
á Austurlandi hugsuðu þeir sig ekki
tvisvar um. Þeir þurftu hvorki að
setjast niður og reikna út vísitölu
né sækja um húsnæðislán heldur
réðust bara strax í byggingafram-
kvæmdir. Og árangurinn lét ekki á
sér standa eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd.
Þetta var góð fréttamennska
- segir Hallur Hallsson, fréttamaður sjónvarps
„Þetta var góð fréttamennska.
Rannsóknarlögreglan var að rann-
saka hvort um skemmdarverk væri að
ræða,“ sagði Hallur Hallsson, frétta-
maður sjónvarps, í gær. Það var
einmitt Hallur sem flutti sjónvarpsá-
horfendum þá frétt í fyrrakvöld að um
hugsanleg skemmdarverk hefði verið
að ræða á Hofsjökli. Áður hafði út-
sending sjónvarpsins verið trufluð
þegar tilkynnt var um mikilsverða
frétt í seinni fréttatima. Skaut sú til-
kynning fólki skelk i bringu.
Hallur sagði ennfremur í samtalinu
við DV að vörður hefði verið við skip-
ið og að skipveijar hefðu talið sig
hafa fengið hótanir. „Þessar stað-
reyndir blöstu við kvöldið sem fréttin
var flutt,“ sagði Hallur.
-EIR/JSS
ÓDÝRI
SKÓMARKAÐURINN
Hverfisgötu 89.
Gott úrval af ódýrum skóm, m.a. kuldaskóm.
Skómarkaðurinn, Hverfisgötu 89.
Látið ekki happ úr hendi sleppa
Laugaidagsmaikaðnr
WlhmUMA
V/SA
m BVGGINCAVDRURl
• Fullur stadgreiðsluafsláttur.
• Afsláttur við helmingsútborgun, en
raðgreiðslur í 2-12 mánuði.
• Þægilegur og ódýr greiðslumáti.
Lagerinn verður opinn
á morgun frá kl. 10-16
Þar eru til sölu með
ríflegum afslætti
ýmsar gerðir af gólfteppum, flísum,
hreinlætistækjum og öðrum
byggingavörum.
Stórhöfða, sími 671100. — Hringbraut, sími 28600.
2 góðar byggmgavöruverslanir.
Austast og vestast í borginni
OPIÐ KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA
Ödýr tölvuborð
og prentaraborð
Ein fjölhæfustu tölvuborð og prentaraborð á markað-
inum. Opið laugardag kl. 10-14.
TÖLVUBORÐ,
Smiðjuvegi 11, Kópavogi, simi 641135.