Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1986, Síða 44
Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1986. Samningar í sjónmáli Allt útlit er fyrir að samningar takist hjá aðilum vinnumarkaðarins í dag. Fundur, sem hófst kl. 21 í gærkveldi, stóð enn yfir þegar DV fór í vinnslu. Búist er við að fulltrú- ar samningsaðila gangi á fúnd ríkisstjómarinnar um hádegisbilið. Ríkisstjóminni hafa verið sendar til- lögur aðila um hennar þátt í samningunum svo sem í skattamál- gengismálum, opinberum verðhækkunum og fleiru er varðar efiiahagsmál. í morgun var ekki búið að ganga endanlega frá lágmarks- launatölunni en flestir voru inni á því að lágmarkslaun yrðu 26 þúsund krónur á mánuði. Bónuskerfið í fisk- iðnaði yrði fellt að þessari tölu. „Ef ekkert ófyrirsjáanlegt kemur upp á tel ég allar líkur á að samning- ar takist í dag. Á fundinum í nótt hefúr miðað mjög vel og enda þótt ekki sé búið að semja endanlega um lágmarkslaunatöluna þá met ég það svo að ekki beri mikið í milli varð- andi þá tölu,“ sagði Karl Steinar Guðnason í samtali við DV í morg- un. Varðandi samningstímann er talið líklegt að samið verði út næsta ár með uppsagnarákvæði í september en frá þessu hafði ekki verið gengið endanlega í morgun. Það mun ráð- ast af svörum ríkisstjómarinnar um efiiahagsmálin hvort hin svokölluðu „rauðu strik1' verða í næstu samn- ingum eins og var 1. júní, 1. sept. og 1. desember á þessu ári. Ákvörðun um þetta liggur ekki fyrir enn. Þá mun vera ákveðið að á samn- ingstímabilinu verði kauptaxtakerf- ið í heild sinni tekið til endurskoð- unar með algera uppstokkun í huga. -S.dór Eltingarleikur í Reykjavík í nétt Lögreglan í Reykjavík lenti í æsilegum eltingarleik í nótt þegar maður, sem hafði brotist inn í verslun við Starmýri 2, reyndi að stinga lögregluna af. Maðurinn var á stórum fólksbíl sem hann hafði stolið fyrr um kvöldið. Lögreglan var kölluð að verslun- inni klukkan rúmlega þrjú í nótt. Þegar þangað kom var maðurinn í bíl fyrir utan verslunina og lög- reglan lagði sínum bíl í veg fyrir hann en þá ók maðurinn á bíl lög- reglunnar og kræktust þeir saman en innbrotsþjófinum tókst að losa sig frá lögreglubílnum. Hann ók síðan á ofsahraða eftir Háaleitisbraut og síðan vestur eftir Miklubraut og þegar kom að Miklatorgi stökk hann út úr bíln- um á ferð og hljóp niður Snorra- braut. Fótfrár lögregluþjónn elti þjófinn uppi og náði honum í Auð- arstræti. Ekki var um alvarlegar skemmd- ir að ræða á bílunum eftir þennan æsilega eltingarleik. -SJ Eifittað leysa vanda hitaveitna Hitaveitunefnd ríkisstjómarinnar, sem í gær átti að skila tillögum til lausnar á fjárhagsvanda hitaveitna, hefur fengið skilafrest sinn framlengd- an um rúma viku. „Það var ekkert samkomulag í við- ræðunum þegar fresturinn rann út. Fulltrúar sveitarfélaganna báðu þá um að málið fengi lengri tíma," sagði Jónas Elíasson, aðstoðarmaður iðnað- arráðherra, formaður nefndarinnar. Fulltrúar hitaveitna Akureyrar, Vestmannaeyja og Akraness og Borg- arijarðar höfðu í viðræðunum lagt til að ríkissjóður tæki á sig töluverðan hluta af fjármagnskostnaði hitaveitna ' með beinni skuldayfirtöku og skuld- breytingum. Heildarskuldir þessara þriggja hitaveitna nema um fjórurn milljörðum króna. Orsaka þær gjald- skrá þrefalt hærri en Hitaveitu Reykjavíkur. -KMU jyx Komdu með í /MKLAG4RÐ Söngkonan Bonnie Tyler kom til landsins í gær til þess að skemmta landanum og notaði tækifærið og heils- aði upp á vinkonu sina, bresku söngkonuna Hazell Dean, sem syngur i skemmtistaðnum Evrópu i kvöld og annað kvöld. Bonnie Tyler mun skemmta í Laugardalshöllinni í kvöld. Með á myndinni er Vilhjálmur Ástráðs- son, eigandi skemmtistaðarins Evrópu. DV-mynd KAE Þjóðhagsstofnun: Þórður Friðjónsson tekur við Mannaskipti verða í forstjórastól Þjóðhagsstofnunar 1. janúar. Jón Sig- urðsson stendur þá upp, enda kominn á kaf í pólitík. I stólinn sest Þórður Friðjónsson. Hann hefúr verið sér- stakflr efnahagsráðgjafi tveggja síðustu ríkisstjóma með aðsetri í for- sætisráðuneytinu. Að sögn Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra er alger samstaða um þessa ráðstöfun í ríkisstjóminni. -HERB Þórður Friðjónsson. LOKI Getur Stefán ekki bara fengið BP hjá ÓLÍS? Veðrið á morgun: Slydda á Suður- og Suðaustur- landi Á laugardaginn verður austan- átt um allt land. Slydda eða rigning á Suður- og Suðausturlandi en él á annesjum fyrir norðan. Yfirleitt úr- komulaust á Vesturlandi. Hiti verður á bilinu 0 til 3 stig. Andstaða gegn BB Búist er við að kjördæmissamband Framsóknarflokksins í Norðurlandi eystra hafni væntanlegri ósk um að framboðslisti Stefáns Valgeirssonar beri listabókstafina BB. Tveir efstu menn lista flokksins í kjördæminu, Guðmundur Bjamason, ritari flokksins, og Valgerður Sverris- dóttir, em andvíg því að Stefán fái BB. Formaður kjördæmissambands- ins, Snorri Finnlaugsson á Dalvík, leggst einnig gegn því. Snorri flaug suður til Reykjavíkur í morgun til viðræðna við ráðamenn flokksins um hvemig bregðast eigi við Stefáni. -KMU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.