Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1986, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1986, Page 3
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986. 21 Stöð 2 sunnudag kl. 21.25: Nýr framhaldsþáttur Á því herrans ári (Anno Domini) er nýr bandarískur framhaldsmynda- flokkur þar sem frægar persónur úr mannkynssögunni koma við sögu, keisarar Rómaveldis og ynjur þeirra svo og Jesús Kristur. Stórleikarar fara með aðalhlutverk í þáttunum, þau Anthony Andrews, Ava Gardner, James Mason, Damien Thomas, John Housman, Ian McShane, Jennifer O’Neil, Richard Roundtree og Been Veren. Leikstjóri er Stuart Cooper. Rás 2 surmudag kl. 15.00: Tónlistarkrossgátanr. 67 Tónlistarkrossgátan sívinsæla verður á smum stað undir stjórn Jóns Gröndals og sem endranær verður hann með spurningar úr öllum áttum varðandi tónlistina. Lausnir sendist til: Ríkisútvarpsins, rásar 2, Efstaleiti 1, 108 Reykjavík, merkt Tónlistarkrossgátan. Sjónvarpið laugardag kl. 22.00 Saga Jósefínu Baker I leit að regnboganum nefnist ný bresk heimildarmynd sem hlaut Emmyverðlaunin á þessu ári. Bandaríska blökkusöngkonan Josephine Baker vakti heimsat- hygli fyrir djarfar danssýningar á skemmtistöðum Parísarborgar á árunum 1925 til 1939. Einkalíf hennar var einnig á vörum allra, hún giftist tvisvar áður en hún náði 16 ára aldrinum en alls giftist hún fjórum sinnum á æviskeiði sínu. Á stríðsárunum starfaði hún með andspymuhreyfingu Frakka og síðan gaf hún sig æ meir að bar- áttu fyrir friði, jafhrétti og bræðra- lagi allra kynþátta. Hún sýndi viljann í verki með því að taka að sér 12 börn af ólíkum kynþáttum og ala þau upp saman. í myndinni er rakin saga Josep- hine Baker og eingöngu notað myndefni frá æviskeiði hennar, 1906 til 1975. Þýðandi er Ólöf Pét- ursdóttir. Bylgjan sunnudag kl. 17.00: Ný sálfræðiþjónusta Nú geta unglingar sem fullorðið fólk fengið lausn á vanda sínum með því að hringja á Bylgjuna milli kl. 13.00 og 15.00 á sunnudag og næstu sunnudaga og segja þar frá því sem þeim liggur á hjarta, en síðan mun Sigtryggur Jónsson (Kæri Sáli) leitast við að leysa úr vandamálum við- mælenda í þætti Rósu Guðbjartsdóttur á milli 17.00 og 19.00 sama dag. Raddir viðmælenda verða teknar upp á segulband og spilaðar i þættin- um en enginn þarf að kvíða því, í okkar litla landi, að rödd hans þekkist í útsendingu því þeir Bylgjumenn búa yfir tækjabúnaði sem breytir rödd fólksins. Auk þessa mun Rósa Guðbjartsdóttir, stjómandi þáttarins, leika nokk- ur ljúf sunnudagslög og fá fleira fólk til liðs við sig. Josephine Baker vakti heimsat- hygli fyrir djarfar danssýningar. Sjónvarpið laugardag kl. 19.00 Smellir með Smiths Hin heimsfræga hljómsveit The Smiths verður kynnt í Smellum annað kvöld. Saga þeirra, stíll, og allt sem þeim viðkemur verður rak- ið auk sex laga sem sýnd verða, þar af eru þrjú sem ekki hafa sést á skjá hér á landi áður. Lögin, sem kynnt verða, eru How soon is now, The boy with torn in his side, The queen is dead, sem er ádeila á bresku konungsfjölskyld- una, There is a light, Panic og Ask. Þess má geta að meðlimir The Smiths eru allir grænmetisætur og verður sviðsetningin í samræmi við það en sjón er sögu ríkari. Rás 1 laugardag kl. 14.00: Mermingar- málum sinnt í þættinum ræðir Sigurður A. Magnússon rithöfundur um sýn- ingu Þráins Karlssonar á einþátt- ungum Böðvars Guðmundssonar Er það einleikið. Árni Sigurjónsson fjallar um Mannlýsingar Sigurðar Nordals, Guðni Kolbeinsson fjallar um nýja sakamálasögu eftir Ólaf Hauk Símonarson og Eysteinn Þorvaldsson rýnir í Ijóðabók Jóns Helgasonar prófessors. Hlín Agnarsdóttir segir frá sænska leikstjóranum, Susanne Ozsten, sem talin er hafa haft geysileg áhrif á þróun barnaleik- hússins í Evrópu á síðustu áratug- um. iPMiwi KRISTJAN JOHA Vegna Ijölda áskorana áritar Kiistjan Johannsson hina trábæru liljómplötu sína, Með kveðju heirn, í Bc'ikabúð Máls og menningar Laugavegi 18, lauaardaeinn 13. desember kl. 4—6. KókabúÖ MALS & MENNINGAR l.AUGAVEGI 1H SIMI P4JMP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.