Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1986, Page 8
30
FÖSTUDAGUR 12. DESEMBER 1986.
Mynd-
bönd
Umsjón:
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
^ —
Rocky brýtur sér leið upp DV-
listann. Fjórða útgáfan situr nú
í þriðja sæti, var áður í því
finunta. Back to the future og
Hithcer hreyfast ekki úr stað.
Mynd Michaels Cimono, Year of
the dragon, kemur nú í fimmta
sæti listans og á vafalítið eftir
að fara hærra. Önnur ný mynd,
Doorman, er í tíunda sæti - hroll-
vekja þar sem rólyndir dyraverðir
eru fórnarlömbin. Þáttalistinn er
lítt breyttur frá því í síðustu viku.
í Bandaríkjunum trónir In-
diana Jones á toppnum. Aðrar
myndir hreyfast lítt úr stað, utan
Police academy 3. Hún tekur
stökk upp í áttunda sæti. Létt-
leikandi löggur þar á ferð.
-ÞJV
Hrollur
DV-LISTINN
__________MYNDIR__________
1. (1)Back To The Future
2. (2)The Hithcer
3. (5)Rocky IV
4. (3)lndiana Jones
5. (-)Year Of The Dragon
6. (6)Jagged Edge
7. (7)Santa Claus, The
Movie
8. (4)White Nights
9. (8)Raw Deal
10.(-)Doorman
I ÞÆTTIR l
1. (1)Réturn To Eden
2. (3)Hold The Dream
3. (2)No Return
4. (4)Bare Essence
5. (5)Knots Landing
I BANDARIKIN I
1. (1)lndiana Jones
2. (2)Down And Out in
Beverly Hills
3. (3)Out Of Africa
4. (4)The Money Pit
5. (6)9 Vi Weeks
6. (5)Pretty in Pink
7. (7)F/X
8. (18)Police Academy 3
9. (9)Sleeping Beauty
10. (11)At Close Range
SILVER BULLET
Útgefandi: Háskólabíó.
Framleiðandi: Martha Schumacher.
Leikstjóri: Daniel Attias.
Handrit: Stephan King.
Aðalhlutverk: Gary Busley, Corey Hall.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Stephan King hefur verið kallað-
ur hryllingsmeistarinn númer tvö.
Hitch heitinn á að sönnu einkarétt
á þeirri vafasömu nafnbót. King
heíur verið afkastamikill skáld-
sagnahöfundur allt frá því bókin
Carrie (og síðar samnefnd mynd)
vakti á honum athygli.
King hefur hins vegar ekki alltaf
haft hönd í bagga með kvikmyndun
sagna sinna. Stundum skrifar hann
handritið, stundum eru myndir ein-
ungis byggðar á sögum eftir hann.
King hefur látið hafa eftir sér að
hann sé undantekningarlaust óán-
ægður með sögur sínar í kvikmynd-
aútgáfum. Það eru stór orð þegar
leikstjórar eins og De Palma, John
Carpender og Stanley Kuybrick
eiga hlut að máli. Stephan King
leikstýrir einmitt sinni fyrstu
mynd, Maximum overdrive, sem
sýnd er í Bíóhúsinu núna.
Myndin Silver Bullet er nýleg.
King skrifar handritið en Daniel
nokkur Attias leikstýrir. í mynd-
inni greinir frá lífi fólks í friðsælum
smábæ. Þar er allt með kyrrum
kjörum þar til presturinn tekur upp
á að breytast í varúlf á fullu tungli.
Hann slátrar heimamönnum hverj-
um af öðrum þar til systkini
nokkur taka til sinna ráða. Þeim
tekst að ráða niðurlögum hans með
hjálp frænda síns.
Silver Bullet verður varla talin
með bestu sögum King. Kvikmynd-
un sögunnar hefur heldur ekki
tekist sem best. Eftir hressilega
byrjun missir leikstjórinn, Attias,
tökin og spennufall verður. Þetta
verður einnig að skrifast á reikning
King sjálfs sem skrifar handritið.
En lokaatriðið er krassandi þar
sem varúlfurinn er lagður að velli
með silfurkúlu.
Silver bullet er í meðallagi á
mælikvarða Stephan King. Við
sjáum í Bíóhúsinu hvort honum
tekst betur upp þegar hann situr
einn að öllu.
Hrollur í eigin persónu.
Stundvís sljóri
CLOCKWISE
Útgefandi: Háskólabíó.
Framieiðandi: Michael Godron.
Leikstjóri: Christopher Morahan.
Aöaihlutverk: John Gleese.
Öllum leyfð.
Flestir ættu að kannast við John Gleese.
Hann lék eiganda Hótel Tindastóls, Fawlty
Towers, svo eftirminnilega í samnefndum
sjónvarpsþáttum. Einnig lék hann Hróa
hött með tilþrifum í Time bandits og lög-
reglustjóra í Silverado.
I Clockwise er Gleese á ný í æringjahlut-
verkinu, eins konar vasaútgáfa af þeim
tryllta Fawlty Towers. Brian Stimpson (Gle-
ese) er í harðákveðinn skólastjóri í gagn-
★★★
Látlaus leynilögga
fræðaskóla sem lætur unglingana ekki
komast upp með neitt, allra síst að koma
of seint. Hann lendir hins vegar sjálfur í
tímahraki þegar hann fer upp í ranga lest
á leið sinni á ráðstefnu.
Þannig eru raunir Brians raktar. Hann
lendir í ótrúlegustu hremmingum og kemur
of seint til fundarins. Ekki vantar að Gleese
sýni sitt besta í hlutverki skólastjórans. Það
vantar fyrst og fremst skemmtilegra hand-
rit. Hér er á ferðinni hinn dæmigerði breski
aulahúmor. Hver uppákoman rekur aðra
og vitleysan er algjör.
Allt er þetta dálítið pínlegt á að horfa.
Viðleitni Gleese er þó alltént tveggja
stjörnu virði.
EMTY BEACH
Framleiðendur: Timothy Read, John Edwards.
Leikstjóri: Chris Thompson.
Aðalhlutverk: Brian Brown.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Emty Beach er áströlsk eftirlíking banda-
rísku einkaspæjaramyndanna. Brian Brown
leikur spæjarann Hardy sem rík ekkja fær
til að leita að manninum sínum heitnum.
Hann ku vera á lífi. Hardy vindur sér í verk-
efnið og kemst að raun um spillingu meðal
æðstu manna. Líf hans er í hættu.
Fremur óvönduð vinnubrögð aðstandenda
myndarinnar gera það að verkum að hún
bregst hálfpartinn sem spæjaraþriller. Per-
sóna spæjarans er óljós og verkefnið hans
hulið enn meiri þoku. Brian Brown er ágæt-
ur leikari en á betra skilið.
Leigj endasamtökin
THE GOODBYE GIRL
Útgefandi: Warner/Tefli.
Framleiöandi: Ray Stark.
Leikstjóri: Herbert Ross.
Byggt á leikriti Neil Simon.
Aðalhlutverk: Richard Dreyfuss, Marsha Mason.
Öllum leyfð.
The Goodbye girl er gerð 1977. Hér er
Richard Dreyfuss í óskarsverðlaunahlut-
verki sínu. Hann leikur leikarann Elliot
Garfield sem leigir íbúð kunningja síns í
New York. Þar eru hins vegar fyrir fyrrver-
andi vinstúlka vinarins og tíu ára dóttir
hennar. Eftir mikið þref ákveða þau að deila
íbúðinni. Auðvitað gengur sambúðin ekki
andskotalaust enda lífsvenjur leigjendanna
ólíkar. Allt gengur þó upp í lokin. Ástin
blómstrar meira að segja.
Það er enginn annar en Neil Simon sem
skrifar handrit myndarinnar. Þemað er
hefðbundið en Neil glæðir efnið nýju lífi.
Samtöl persónanna eru bráðskemmtileg og
nóg af sprenghlægilegum atriðum. Til dæm-
is er óborganlegt að sjá Garfield leika
Ríkharð III., á þeirri forsendu að persónan
sé hommi! Leikur Dreyfuss í myndinni er
reyndar hnökralaus hvar sem litið er.
Ánægjulegt er að þessi ágæti leikari skuli
vera að ná sér á strik að nýju. Leikur hans
í myndinni Down and out in Berverly hills
veit á gott.
Leigjendurnir fara í hár saman.
O ©
Leikrit Hryllingsmynd Fullorðinsmynd Vísinda- skáldsaga
$ 0 9 ®
Tónlist
Gamanmynd
Hasarmynd Fjölskyldumynd
Íþróttir
© O O
Barnamynd Ástarsaga Annað